Jensen Huang, sem lét af störfum sem forstjóri bandaríska tæknirisans Nvidia í síðustu viku, segist reiðbúinn að snúa aftur til starfa hjá fyrirtækinu.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi breska ríkisútvarpinu, BBC.
Hlutabréfaverð Nvidia tók mikla dýfu þegar upp komst um framhjáhald Huangs með konu sem er sögð vera kínverskur njósnari. Hann er einnig sagður hafa haldið við samstarfskonu sína hjá Nvidia en þau eru bæði gift. Huang lét af störfum í síðustu viku.
Þetta er í fyrsta skipti sem Huang tjáir sig opinberlega eftir að hafa látið af störfum en hann hafði verið forstjóri frá stofnun fyrirtækisins fyrir 33 árum.
„Ég hef gert alvarleg mistök í mínu einkalífi. Ég bjó til vandamál fyrir stjórn fyrirtækisins sem ég iðrast innilega. Ég tek fulla ábyrgð á mistökum mínum,“ segir Huang í yfirlýsingunni.
Stuðningsmenn Huangs stofnuðu til undirskriftarsöfnunar þar sem stjórn Nvidia er hvött til að setja hann aftur í starf forstjóra fyrirtækisins.
Meðal þeirra sem hafa skrifað undir áskorunina eru Elon Musk, stofnandi SpaceX og ríkasti maður heims, og Tim Sweeny, framkvæmdastjóri Epic Games sem framleiðir Fortnite.
Óvíst er hvort Huang snúi aftur í forstjórastólinn en BBC greindi frá því í gær að stjórn fyrirtækisins hefði ekki áform um það. Háttsemi hans er til rannsóknar hjá fyrirtækinu.