Meirihluti Bandaríkjamanna telja Barack Obama vera besta forseta þessarar aldar. Donald Trump er einnig langóvinsælasti forsetinn samkvæmt nýrri könnun.Í nýrri könnun Politico var kannaður hugur fólks til allra forseta Bandaríkjanna á þessari öld og þeir beðnir um að raða þeim röð frá þeim besta til hins versta.Málið er ekki flókið þar sem forsetarnir eru aðeins fjórir. Annars vegar Demókratarnir Barack Obama og Joe Biden og hins vegar Repúblikanarnir Donald Trump og George W. Bush. Allir voru þeir tvíkjörnir nema Biden, sem bauð sig aðeins einu sinni fram vegna aldurs.
Meirihluti Bandaríkjamanna sammála um besta og versta forseta 21. aldarinnar