Lagðar voru niður fjórar stöður og ein tímabundin ráðning var dregin til baka. Rannveig Þórisdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs staðfestir þetta en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá.
Meðal þeirra sem fékk uppsagnarbréf í dag var Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri almannavarna. Hún sinnti því starfi í gegnum faraldur kórónuveirunnar og eldgos á Reykjanesi.
Rannveig Þórisdóttir segist ekki geta tjáð sig um það hvernig samskiptum almannavarna og fjölmiðla verði háttað úr þessu.
„Það sem blasir við okkur núna er að við höfum bara ákveðna fjármuni. Komi upp breyttar aðstæður þurfum við að bregðast við því,“ segir hún.