Tómas Hrafn Sveinsson, formaður umdæmisráðs Barnaverndar Reykjavíkur, hefur verið metinn hæfastur umsækjenda til að gegna dómaraembætti við Héraðsdóm Reykjavíkur. Dómsmálaráðherra auglýsti tvö embætti við dómstólinn.
Þóra Hallgrímsdóttir, settur héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, kemur næst Tómasi að mati dómnefndar um hæfni umsækjenda sem hefur skilað dómsmálaráðherra umsögn. Sex sóttu um.