Eigandi Valaskjálfar á Egilsstöðum segir að möguleiki á að sveitarfélagið leigði sal hússins hafi ekki verið útræddur. Endanlegt leiguverð hafi aldrei verið nefnt. Eigendur láta nú hanna smáherbergjahótel inn í salinn en eru þó enn tilbúnir til viðræðna við sveitarfélagið.
Salurinn í Valaskjálf þarf opinberan stuðning
Eftir vatnsskemmdir í Valaskjálf í sumar undirbúa núverandi eigendur hótelsins að breyta stóra viðburðasalnum í gistirými. Salurinn hefur ekki borið sig fjárhagslega en verið mikilvægur fyrir ýmsa menningarviðburði, svo sem tónleika, og er öðrum sölum í þessari stærð ekki til að dreifa á Egilsstöðum. Ákall kom því frá íbúum um að sveitarfélagið Múlaþing myndi skerast í leikinn og kaupa eða leigja salinn til að halda honum starfandi.
Múlaþing skoðaði málið en Valaskjálf hentar ekki undir bæjarskrifstofur og félagsheimili. Þá myndi kosta of mikið að leigja salinn.
Aðspurður segir Gísli Steinar Gíslason, einn af eigendum Valaskjálfar, að viðræður um leigu hafi aldrei komist á það stig að rætt væri um endanlegt verð.
„Við komumst eiginlega aldrei á þann stað að fara í neinar samningaviðræður við bæjarfélagið. Þessari hugmynd um að leigja salinn eins og gert hafði verið af fyrri eiganda, henni var í raun og veru bara hafnað. Við fórum aldrei í eiginlegar samningaviðræður. Við hefðum alveg klárlega getað sest niður og reynt að finna endanlegt leiguverð og miðað við einhverjar endanlegar forsendur,“ segir Gísli Steinar.
„Alltaf tilbúnir í samtalið“
Í samtali um leigu lögðu eigendur til að horft yrði til eldri leigusamnings og hann yrði grundvöllur að viðræðum. Núvirtur myndi hann hljóða upp á rúmar tvær milljónir á mánuði. Gísli segir að Múlaþing hafi hins vegar aðeins viljað borga „nokkra hundraðþúsundkalla“ eins og það var orðað. Mikið bar í milli og viðræður komust aldrei á samningastig.
Gísli bendir á að ef Múlaþing myndi leigja félagsheimilishlutann væri hægt að semja um eitt og annað, svo sem not hótelsins af salnum en sú greining hafi ekki verið gerð.
„Svo er það náttúrulega þannig að þetta er ekki bara kostnaður. Sveitarfélagið fær eitthvað á móti. Það getur nýtt salinn þannig að þetta er ekki eins og þetta sé peningur út um gluggann. Við erum alltaf tilbúnir í samtalið. Þrátt fyrir að við séum í fullri undirbúningsvinnu fyrir þetta smáherbergjahótel þá erum við alltaf tilbúnir að setjast niður og ræða málin,“ segir Gísli Steinar Gíslason, einn af eigendum Valaskjálfar á Egilsstöðum.