Pétur Georg Markan bæjarstjóri Grindavíkur segir það einlægan vilja bæjarstjórnar að nálgast sprunguviðgerð af nærgætni og fagmennsku þannig að aðstæður til leitar geti skapast. Bæjaryfirvöld hafi átt fundi með fjölskyldu Lúðvíks og lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
„Við leggjum upp í þessa framkvæmd þannig að við viljum hámarka möguleikana á því að þetta geti orðið leitarstaður aftur. Og svo er það lögreglustjórans að taka yfir vettvanginn ef þær aðstæður skapast.“
Bæjarráð Grindavíkur samþykkti á fundi í fyrradag að stuðla að því að hægt verði að endurheimta lík Lúðvíks. Hann týndist við sprunguviðgerðir í Grindavík í janúar 2024 og er talið að hann hafi fallið í sprunguna og látist.
Leitað var í einn dag í síðasta mánuði án árangurs og leit síðan hætt. Fjölskylda Lúðvíks lýsti miklum vonbrigðum en bindur nú vonir við að lík hans finnist. Elías Pétursson bróðir hans lagði til nýja aðferð til leitar. Pétur segir uppástungu hans ekki verða fylgt alveg í hörgul.
„Þessi framkvæmd er nú ekkert ósvipuð og í sjálfu sér má segja að við höfum alveg náð saman um hvernig við nálgumst framkvæmdina.“
Það skiptir mestu máli að mati Péturs enda verkið hættulegt og sprunguviðgerðir umfangsmiklar framkvæmdir. Lögreglustjóri hafi sagt á fundum að um leið og aðstæður skapist muni hann ákveða að hefja leit. Verkið fari nú í útboð.
„Þetta er heilmikil aðgerð og framkvæmdin mun teygja sig yfir á árið 27. Við erum svolítið að sjá hvernig aðstæður eru til að meta framvinduna,“ segir Pétur. Hann segir mikla umræðu hafa verið kringum þennan atburð og eftirmála hans.
Hann segist finna fyrir miklum samhuga og vilja bæjarstjórnar til að fara inn í framkvæmdina með þeim hætti sem lagt er til svo aðstæður til leitar geti skapast. „Vonin er að þarna verði til aðstæður þar sem hægt er að hefja leit aftur.“
Bæjarráð fjallaði á síðasta fundi um drög að svari bæjarstjóra við fyrirspurn fjölskyldu Lúðvíks.
Í bókun ráðsins kemur fram að allir séu sammála um hvernig staðið verði að framkvæmd og öryggi á vettvangi. Einnig á að upplýsa fjölskyldu Lúðvíks reglulega og gefa henni kost á að koma með ábendingar.