Í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi í nóvember mælist Samfylkingin stærst með 27,8% fylgi. Flokkurinn missir örlítið fylgi milli mánaða en hann mældist með 28,6% í október.
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir helstu tíðindin fylgistap Viðreisnar. Flokkurinn fékk tæp 16% í síðustu þingkosningum. Mældist með 11,4% fylgi í október og fer niður í 9,2% nú í nóvembermælingu Maskínu.
„Það er eins og þau mál sem hafa verið uppi í kringum flokkinn hafi haft allnokkur áhrif. Það er svona skarpasta línan niður á við, alveg augljóslega,“ segir Eiríkur
Miðflokkurinn bætir við sig milli mánaða en hann fer úr 13,4% í 15,1%. Þá mælast Vinstri græn inni á þingi með slétt 5% fylgi.
„Þó þau standi bara alveg á þröskuldinum að þá eru það tíðindi auðvitað í sjálfu sér.“
Eiríkur segir að þó að fylgi Samfylkingarinnar hreyfist lítið sem ekkert falli samanlagt fylgi rikisstjórnarinnar töluvert og er nú í kringum 40%.
Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 21,9% fylgi í október og mælist nú með 22,3%.
„Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að ná algjörlega vopnum sínum. Hann hreyfist ekki mikið upp á við í þessari könnun og svona leiðin liggur ekki eins augljóslega upp á við og flokksmenn þar á bæ myndu vilja.“