Rannsókn leiddi í ljós að eldurinn var líklega kveiktur viljandi á nýársdag. Hann var slökktur en blossaði aftur upp þann 7. janúar og dreifðist hratt um Pacific Palisades. Gróður á svæðinu var þurr og vindur töluverður.
Sjá einnig: Handtekinn fyrir að kveikja skæðasta eld Los Angeles
Rinderknecht var handtekinn í októberbyrjun á síðasta ári. Var þetta í annað skiptið sem alríkisdómur réttaði yfir manninum vegna eldanna en í fyrra skiptið komst kviðdómur ekki að einróma samkomulagi og voru réttarhöldin því úrskurðuð ógild. Nú í seinni réttarhöldunum komst kviðdómurinn að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að hann væri sekur um íkveikju og eignartjón.
Önnur ákæran snýr að því að hann hafi kveikt upphaflega eldinn á nýársdag í Pacific Palisades. Hin snýr að tjóninu sem varð þegar eldurinn kviknaði á ný sex dögum seinna. Tólf létu lífið í eldunum í Pacific Palisades og tæplega sjö þúsund byggingar brunnu til grunna.
Neitar sök
Fangelsisdómur hans verður kveðinn upp í mars næstkomandi en hann á yfir höfði sér allt að fjörutíu ára fangelsi fyrir brotin tvö.
Rinderknecht hefur neitað sök og hafa verjendur hans haldið því fram að ekki séu nægileg gögn í málinu til staðar til þess að sanna að Rinderknecht hafi raunar kveikt eldinn. Saksóknarar hafa sagt að gögn úr farsíma hans, vitnisburður farþega hans, en hann starfaði sem Uber-bílstjóri, og upptökur úr öryggismyndavélum bendi til þess að Rinderknecht hafi verið á vettvangi íkveikjunnar.
Eldurinn var einn nokkurra sem kviknuðu hver á fætur öðrum víðs vegar um Los Angeles í janúar árið 2025 sem alls urðu 31 manns að bana og eyðilögðu um 16 þúsund byggingar.