Björgunarsveitir í Reykjanesbæ og Kópavogi voru kallaðar út í morgun vegna þakplötu og klæðninga sem hafði losnað. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í þrjú útköll vegna hvassviðris í nótt.
Á Keflavíkurflugvelli voru snarpir vindstrengir og landgöngubrýr teknar úr notkun milli klukkan tvö í nótt og sjö í morgun, og því töluverð röskun á millilandaflugi. Þá urðu seinkanir á innanlandsflugi í morgun.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir útköllin ekki hafa verið fleiri vegna veðurs. Gular veðurviðvaranir vegna suðaustan hvassviðris eða storms eru í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og miðhálendið. Flestar eru í gildi fram yfir hádegi nema á miðhálendinu þar sem gul viðvörun er í gildi til klukkan sex í kvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varð foktjón í Kópavogi um klukkan fjögur í nótt þegar framrúða á bíl brotnaði eftir að þakplata fauk á hann.
Rétt eftir miðnætti fóru bárujárnsplötur á flug í Garðabæ og þakplata losnaði einnig í Norðlingaholti rétt eftir fjögur í nótt.
Rólegt í miðborginni í nótt. Þar hafði veðrið áhrif því fáir voru á ferli. Heilt yfir var nóttin róleg hjá lögreglu.