Og hann var að senda frá sér nýja bók – Öld ímyndunaraflsins – sem trónir nú efst á metsölulistum. Er ég að gleyma einhverju?
„Nei, nei, ég er reyndar ekkert hrifinn af svona titlasúpum.“
Þetta er rosaleg súpa!
„Þú varst nú líka að reyna að lengja í þessu.“
Nei, nei.
„Það er nú eitthvað þarna sem er nánast sami hluturinn. Ég er reyndar hrifinn af þessu síðasta, frumkvöðull, en svo bættist við í hlaðvarpsgerð. En jú, ég er mjög hrifinn af þeim titli að mörgu leyti.“
Horfa má á viðtalið í heild sinni í spilaranum að neðan og helstu veitum.
Og það mætti kannski bæta enn einum titlinum við sem er fjármálasérfræðingur?
„Já, ég er í stofnendahópi fyrirtækis á sviði fjármála sem heitir Spesía sem er nýsköpun á viðskiptavísu. Gaman að vera kominn svolítið inn í þann heim.“
Það var óvænt skref?
„Nei, ekki endilega. Bæði hef ég unnið í banka einhvern tímann á mínum ferli og svo hef ég lært frumkvöðla- og nýsköpunarfræði og verið ráðgjafi um svoleiðis mál. Ég hef verið mjög mikið inni í fyrirtækjum og stofnunum, með fyrirlestra og ráðgjöf á sviði framtíðargreiningar, nýsköpunar og þess háttar.
Þannig að mér fannst mig vanta þessa reynslu, að starfa í frumkvöðlastarfi og nýsköpunarfyrirtæki nánast frá byrjun. Og því fylgir til dæmis svona fjármögnunarferli og svo núna að koma vörunni sem við erum með á markað. Þetta hafa verið 2–3 ár í meðgöngutíma og nú er komið að því að þetta er komið á markað.“
Ég er ekki viss um að ég skilji þetta fyllilega?
„Nei, varan sjálf er bara útskýrð sem svo að um sé að ræða fjárfestingarþjónustu fyrir almenning.“
Bergur Ebbi útskýrir að bankar hafi í rauninni boðið fólki sem það vill að kaupa hlutabréf eða hlutabréf í sjóði.
„Nú er það mögulegt án þess að nota þessar hefðbundnu fjármálastofnanir. Við teljum þetta mjög mikið og þarft neytendamál. Fólk hefur ekki verið gjarnt á að gera þetta af því að það hefur verið dýrt og óaðgengilegt og eins og þú nefnir skilur maður kannski þetta ekki og ég get mjög tengt við það. Þessi heimur hefur ekki verið mjög opinn almenningi.“
Ekki mælt með því að henda öllum eggjunum í sömu körfuna
Eitt sinn var ég kallaður ríkasti blaðamaður landsins, en það var nú bara af því að ég var á milli íbúða og setti allan sparnaðinn í hlutabréf.
„Maður myndi einmitt alveg örugglega aldrei mæla með því.“
Nei, ekki ég heldur, ekki við þá sem er sárt um aurinn sinn.
„Já, þetta er ýmist í ökkla eða eyra. Annaðhvort lætur fólk hluti alveg vera, sko, eða það fer aðeins of djúpt inn í þetta. Kaupir í stökum hérna fyrirtækjum eða kaupir rafmyntir. Ég ætla ekkert að reyna að hafa vit fyrir fólki. En einhvers staðar þarna mitt á milli er gott að vera, að setja einhvern reglulegan sparnað í verðbréfasjóði. Það gæti alveg verið skynsamlegt.“
Bergur Ebbi segir þennan heim hafa til þessa verið óaðlaðandi, fólk fari og skoði hvað sé í boði, viti ekki hvar skal byrja og hvaða nöfnum þetta nefnist allt saman.
„Við viljum meina að ef fólk kíkir á þetta hjá okkur, það fer bara á spesia.is, þá sé haldið í höndina á því frá upphafi til enda. Þannig að það lendi kannski ekki í einhverjum skakkaföllum eins og þú.“
Skakkaföllum. Það þurrkaðist allt út við hrunið. Ekki að ég sé að grenja þetta, mér er ekki mjög sárt um veraldleg gæði en á móti er hart að horfa upp á húseigendur fara hamförum og knýja fram þessa „Leiðréttingu“ og þurfa að borga fyrir þá mismunun alla. Það var aldrei svo mikið sem imprað á bótum fyrir menn í minni stöðu.
„Það skil ég vel. Ég man alveg eftir þessum tíma. Þótt ég hafi ekki farið svona illa út úr þessu eins og þú þá skil ég vel að fólk sé skeptískt út í hvers konar fjárfestingar á þessu landi. Það var nýbúið að skapa einhvers konar grunn að fjármálamörkuðum hérna á Íslandi, að sýsla með skráð eða skráð fyrirtæki á markað og fleira. Þetta var bara kannski 10, 15 ára gamalt fyrirbæri þegar skall á með þessu hruni.“
Traustið fór með hruninu
Bergur Ebbi segir allt þetta og lífeyriskerfið hafa verið rétt nýkomið af stað þegar fótunum var svipt undan.
„Traustið fer einhvern veginn í upphafi og heilu kynslóðirnar treysta þessu kannski ekki. Og vilja þá leggja sparifé sitt í steypu, sem sagt kaupa fasteign sem er að sjálfsögðu ágætis fjárfesting eða geyma fé sitt á bankabókum.“
Þetta er grjótharðasti kröfugerðarhópur landsins og stjórnvöld munu aldrei gera neitt til að styggja hann. Ef húsnæðið lækkar eitthvað aðeins í verði þá sturlast fólk.
„Það eru nú blikur á lofti akkúrat núna. Ég var nú bara að hlusta á hádegisfréttirnar og seðlabankastjóri var að tala um að húsnæðisverð myndi líklega gefa eitthvað eftir.“
Þá er þessu bara haldið uppi handvirkt.
„Já. Það er fyndið að nú þegar ég er kominn aðeins inn í þennan bransa þá heyri ég endalaust og bara fréttirnar um hagtölur og svoleiðis. En eitt vil ég segja að endingu varðandi Spesíu, að við leggjum mikla áherslu á að fjárfest sé erlendis. Þetta er sem sagt alþjóðlegt safn hlutabréfa. Krónan er hátt skráð, það getur verið sniðugt að dreifa því aðeins. Það er ekki víst að þetta háa gengi krónunnar haldist endalaust. Maður finnur það meira að segja núna ef maður er í útlöndum að þetta er eiginlega of gott til að vera satt, sko. Ég var í Kanada og Kanadadollarinn var 80 og eitthvað krónur. Það gæti verið góð tilfinning að koma einhverjum krónum í eitthvað erlent.“
Gervigreindin eins og „blood doping“ í Tour de France
Þú átt hreint magnaðan feril að baki og hér er ég til að mynda með bók sem ég var að lesa mér til mikillar ánægju. Vel skrifuð og þessi bók hefur verið að tróna á toppi metsölulista að undanförnu. Þetta er fimmta bókin þín en áður hafa komið út bækur sem eru kannski svona svipaðs eðlis og eru Skjáskot og Stofuhiti nema þær fjalla um samfélagsmiðla meðan þessi er helguð gervigreindinni.
Þú lætur þess getið í þessari bók að þú hafir verið með hana lengi á teikniborðinu, hafir í raun ætlað að skrifa um gervigreindina miklu fyrr en líkir þessu við það að skrifa og gefa út bók um rokkið 1955, þegar það er að springa út?
„Já. Þetta eru bækur um samfélag, samtímann og rokk nútímans, ef við getum nú haldið þeirri líkingu, er tæknin, samfélagsmiðlar. Þar slær púlsinn og hefur gert undanfarin ár. Þess vegna fjölluðu þessar fyrri bækur um áhrif þessara samfélagsmiðla á sjálfsvitund okkar og sjálfsmynd. Nú er það gervigreind en ég er að reyna að byggja ákveðna brú þarna á milli.“
Bergur Ebbi telur að við skiljum gervigreind betur með því að setja hana í samhengi við byltingar sem urðu með samfélagsmiðlunum fyrir kannski 15 árum og þá þessari snjallmenningu allri, snjallsímanum og því öllu.
„En það er náttúrulega rosalega mikið skrifað um gervigreind – mál málanna – en þá mikið út frá forsendum tækninnar sjálfrar. Ef ekki tækninnar sjálfrar þá út frá bara hreinni hagfræði; hvernig þetta getur bestað hluti, sem sagt bestun er hugtakið sem notað, hagræðing, og áhrif þess á efnahagslíf. Ég tel mikilvægt að því sé haldið til haga og skrifað um það. En ég vildi fjalla um gervigreind út frá svo mörgu öðru líka sem mér finnst við vera í smá skuld með að gera.“
Þá kannski stöðu mannsins gagnvart þessari gervigreind?
„Algjörlega og mér finnst tilfinningin sem ég fæ ekki notaleg. Gervigreindin er eins og eitthvað tól sem skellur á okkur og við höfum ekkert um að segja. Og það er svo leiðinlegt hlutskipti að þurfa einhvern veginn að takast á við þessa tækni. Það sem er í gangi núna er stundum kallað „race to the bottom“ í viðskiptalífinu. Ég veit ekki hvað er besta íslenska hugtakið yfir það. Ég nota líkingu í bókinni; að þetta sé eins og þegar þeir byrjuðu að dópa í hjólreiðunum í Tour de France.“
Lance Amstrong og félagar?
„Já. Þótt þeir hafi kannski verið siðlausir sækópatar, þessir gæjar svona upp til hópa, þá skil ég þetta upp að ákveðnu marki. Þú getur ekki unnið þessa keppni nema taka þetta ákveðna lyf eða hvernig sem það er.
Að einhverju leyti finnst mér hvernig gervigreind kemur til okkar eins og verið sé að rétta okkur hana eins og þetta sé „blood doping“ í Tour de France. Þú verður að gera þetta til þess að geta aukið framleiðni í þínu fyrirtæki eða afkasta meira sem blaðamaður eða hvað það er. Það er eiginlega enginn bransi undanskilinn. Þetta finnst mér svo erfitt hlutskipti.“
Bylting á við Gutenberg-prentið
Kannski er þetta hlutskipti okkar að verulegu leyti en Bergur Ebbi vill snúa blaðinu við.
„Getur verið að gervigreind sé ekki bara eitthvað sem var búið til af geimverum og okkur afhent fyrir einhverjum árum? Og við höfum ekkert með að segja? Getur verið að þetta sé raunverulega okkar sköpunarverk sem spretti úr okkar hugsjónum, eitthvað sem við sáum fyrir, bjuggum til bara með okkar ímyndunarafli og er háð okkar sköpun? Og þá eitthvað sem við eigum að taka ábyrgð á til samræmis við það. Það er kannski það sem drífur mig áfram í þessum rannsóknum og skrifum.“
Þú líkir þessari byltingu við það þegar Gutenberg-prentið kemur til sögunnar og teymir okkur úr hinum myrku miðöldum?
„Já, það má alveg taka svona stórar líkingar og það hafa fleiri gert. Svo margt sem gerist þarna – sem er nokkuð sem við sjáum nokkur hundruð árum síðar – nokkrir risastórir atburðir þegar miðöldum lýkur sem eru landafundirnir og þessi Gutenberg-prentvél, svo siðaskiptin í trúarbrögðunum. Þetta helst að einhverju leyti í hendur og er meiriháttar upplýsingabylting.“
Alger.
„En kynslóðir sem koma löngu síðar munu dæma um hvort við séum að upplifa svoleiðis tíma núna.“
Við öðlumst náttúrlega ekki skilning nema með fjarlægð frá viðfangsefninu?
„Já. En það er spennandi að lifa tíma sem ég trúi raunverulega að séu sögulegir. Ég hef heyrt fleiri lýsa svipaðri tilfinningu; að það hafi fram til þessa verið að lifa tíma þar sem ekkert mikið var í gangi.
Þessir tímar eftir að kalda stríðinu lauk. Það hafði lengi verið rótt í geópólitíkinni blessunarlega náttúrulega. Friðartímar og rólegir tímar eru vitaskuld mikil blessun en manni leið eins og það væri bara búið að mappa þetta allt saman út. Svo hefur verið ákveðin kyrrð í menningunni líka. Svo er einhvern veginn öllu snúið á haus og maður verður líka að vera svolítið þakklátur og spenntur að fá að lifa svoleiðis tíma.“
Ekki góð ökónómía að vera rithöfundur
Er ekki svolítið skrýtið, þegar þú ert að fjalla um svona hátæknilegt efni, að skrifa um það í bók? Sem er ekki beinlínis það nýjasta nýtt?
„Jú, en ég er meira að segja með kafla í þessari bók þar sem ég tala máli bókarinnar, tala um alla kosti hennar sem mér finnst alltaf verða skýrari og skýrari. Þessi hugmynd um það að vera með hugsunum sínum og það er enginn annar að hlera þær hugsanir. Bara sú staðreynd að það veit enginn hvar þú ert staddur í bókinni, á hvaða blaðsíðu þú ert, hvað býr til einhverjar hugrenningar hjá þér af því að náttúrulega, eins og við vitum þegar við erum að neyta upplýsinga með öðrum hætti í gegnum snjallmenninguna, þá er það ekki svo. Nýjast er það sem við getum kallað „Reels“ sem er sem sagt það sem TikTok og aðrir samfélagsmiðlar ganga út á.“
Akkúrat.
„Þar sem við gefum í rauninni alltaf viðbragð jafnóðum við upplýsingunum sem við erum að fá, annaðhvort með því að skipta yfir eða vilja lesa meira, þá erum við náttúrulega að hugsa með öðrum, deila með öðrum. Þar eru ákveðnir kostir, við erum að einhverju leyti að taka þátt í einhverri sameiginlegri sköpun. En það eru ákveðin gæði fólgin í því að fá að vera bara einn með sínum hugsunum og bókin býður enn þá upp á það. Það kom einhver lestrarkönnun í fréttum í gær sem sagði að lestur væri aðeins að aukast.“
Jæja.
„Ég fæ mjög mikið út úr því að lesa.“
Ég hef verið að ræða við útgefendur og rithöfunda að undanförnu sem segja mér að bóksala hafi hrunið um sem nemur helmingi á tíu árum?
„Já, já, það er rétt. Þótt mögulega sé komið eitthvert viðbragð við því núna er bóklestur ekkert að ná þeim hæðum sem var. Það má endalaust tala um þetta og það er líka lúmskt. Raunvirði bóka hefur lækkað svo mikið. Bækur kosta alltaf einhverja þúsundkalla en ef þær myndu fylgja verðlagi þá væri glæpasagan að slaga í 20 kallinn. Það er ef þær myndu kosta það sama og við aldamót. Það er eins með músíkina. Þannig að þetta er lúmskt að það sé að kvarnast úr þessu. Það er náttúrulega ekki góð ökónómía að vera höfundur. En það er svo sem umræða sem væri hægt að taka alveg sér.“
Heillaður af mælskulistinni
Bergur Ebbi segir að ef menn reyni að líta á björtu hliðarnar og hann hafi fulla trú á hinu ritaða orði þá megi einnig líta til hins talaða orðs, ef út í það er farið.
„Á svona samtali, kannski aðeins dýpri viðtölum, sem hægt er að gera líka með nútímatækni, svona hlaðvarpi eða hvaða formati við erum í nákvæmlega núna. Ég hef svo mikla trú á þessu.
Ég hef mikla trú á bara mælskulistinni. Þú kynntir mig í upphafi með titlaromsu og bara mjög skemmtilegt að heyra það allt saman. Ég hef stundum verið að hugsa um hvað það er sem dró mig í lögfræðina á sínum tíma og ég er búinn að finna samnefnarann fyrir það allt saman. Sem er kölluð oratoría eða mælskulist. Ég hef alla tíð verið spenntur fyrir því en er bara að skilja það núna, sem sagt þegar ég horfi til baka eftir á og loksins að átta mig á því. Nemendafélagið í lögfræðinni í lagadeild HÍ heitir Orator. Lögfræðin er mjög gömul fræðigrein. Ég veit ekki hvort það var hjá Forn-Grikkjum eða Rómverjum en þá var oratoría sama fræðigreinin sem heitir bara mælskulist. Og tengist sviðum innan heimspeki í dag, skylt fagurfræði líka og slíku.“
Bergur Ebbi er með öðrum orðum heillaður af mælskulist, sem á ekki bara við um hið ritaða orð heldur ekki síður hið talaða.
„Sem sagt töfrar röksemdanna og þar er flest sem ég er að fást við: uppistand og svo var ég líka í tónlist … þetta er allt saman mælskulist.“
En mælskulist hefur samt á sér frekar slæmt orð og það kemur strax fram bara með Forn-Grikkjum, sófistum sem stærðu sig af því að geta með mælskulist haft fram verri málstað?
„Það er rétt. Það er óorð á þessari list. Ég var í ræðukeppnum í menntaskóla og fór þá með veggjum, maður var ekkert mikið að flagga því. Mælskulistin hafði á sér þetta orð. En ég vil meina að maður geti alveg haft ást á sannleikanum, maður getur alveg verið sannleikans megin þó þú heillist af mælskulistinni. Það að kunna fræðin eða þá list og átta sig á retóríkinni og áhrifum stílbragða er tól sem gagnast manni þegar maður vill leita sannleikans og finna hann. Maður er fljótur að sjá brellurnar sem andstæðingar sannleikans nota.“
Stefán Einar ekki hrifinn
Talandi um mælskubrögð og mælskulist. Þessi bók hefur fengið góðar viðtökur og góða gagnrýni nema einn er sá maður sem ekki er mjög hrifinn. Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður og siðfræðingur, vildi meina að þarna væri nú bara ekkert nýtt frá sjálfum framtíðarfræðingnum.
„Já, ég held ég hafi misst af því, hvar kom þetta fram?
Hann tók smá einræðu um þetta efni í þætti Þjóðmála; að þetta væri nú bara alls ekki gott frá manni sem gefur sig út fyrir að vera framtíðarfræðingur.
„Hann hefur lesið þó, ég gleðst alltaf yfir því.“
Þetta er náttúrulega maður sem rekur sérstakan bókaklúbb Spursmála – þessi bók verður væntanlega ekki tekin fyrir þar eða hvað?
„Ég veit það ekki, ég hef nú reyndar átt samtöl við Stefán, reyndar ekki um þessa bók, en ég held að það fari vel á með okkur, sko. Margt að ræða … alltaf.“
Ég er svo sem ekki að reyna að koma á staðinn illindum. Eða þannig. En það er eins og hann hafi búist við einhvers konar Nostradamusi sem heldur um penna?
„Já, einmitt. Ég hef í sjálfu sér ekkert sérstakt um það að segja. Bókin bara stendur fyrir sínu og fólk metur hana bara að verðleikum.
Auðvitað fer fólk að einhverju leyti inn í lestur með mismunandi væntingar eins og gengur. Ef fólk er að pæla í nýjustu vendingum í tækni eða þess háttar sem eru að koma fram í gegnum gervigreind þá er hægt að lesa um slíkt víða annars staðar en í þessari bók. En þarna er þó að finna ákveðnar framreiknanir og hugsanir um hvert þetta fer með okkar, okkar ímyndunarafl, okkar sjálfsmynd og þess háttar. En það eru nú samt hugleiðingar sem ég set þarna fram. En bókin fjallar um stöðuna í dag og samtímann frekar en framtíðina.“
Í því felst einhvers konar framtíðarsýn og frumleiki. Ef ég vitna í bókina: „Sársaukinn geymir viskuna. Gervigreind er komin til að vera en tölvur hafa ekki sársaukann, fallegan, undursamlegan, ógeðslegan sársaukann. Þær hafa ekki úttaugakerfið, vöðvana, æðarnar, beinin, vessana, blóðið, tenginguna við hjarta sem mun ekki slá að eilífu. Þær hafa ekki sársaukann og þær geta ekki lokið upp þeirri visku sem hann geymir.“ Viskan felst í sársaukanum?
„Já, einmitt. Líkamlegum sársauka. Við erum náttúrulega tvíeðlis. Eða vitund okkar er það. Maður vill nú ekki fara á allt of mikla dýpt með þetta en við vitum að með okkar hugræna atferli getum við hugsað skýrt og frjálst. Við erum bundin þó ekki sé nema bara af þyngdaraflinu sjálfu. Okkur svimar ef við stöndum of hratt upp og þetta er ekki í tölvulægri hugsun þótt mögulega sé hægt að bakka það upp að einhverju leyti.“
Blandar saman persónulegri reynslu og kollektívum trega
Bergur Ebbi segir þannig ákveðna visku erfast.
„Sem sagt að áföll erfist í taugakerfi kynslóðanna, oft bara í líkamanum sjálfum, einhverjir draugaverkir og þetta er kannski hraðasta leiðin í að sameina kynslóðir; einhver áföll og mótlæti. Við virðumst geta lokið upp einhverri visku þar. Ef ég set einhverja slaufu á þessa hugsun þá erum við takmörkuð af líkama okkar, eðlilega. Þó við getum flogið í huga okkar erum við bundin af þyngdaraflinu. Líkaminn takmarkar okkur og líkaminn er endanlegur líka.
Við deyjum, við erum okkur meðvituð um það og að öllu leyti ófullkomin vegna líkama okkar. Á meðan gætir þú fært rök fyrir því að þessi gervigreindartölvulæga hugsun sé það ekki. Hún varir að eilífu eða eins langt og það nær af því hún er ekki bundin við þennan líkama sem mun tortímast á endanum. Og við erum þrátt fyrir allt mælikvarði allra hluta. Við miðum hinstu rök við ófullkomleika okkar. Það verður allavega einhver munur á tölvulægri hugsun og mannlegri hugsun af því að við erum bundin þessum ófullkomleika. Með þessu er í rauninni gefið í skyn að gallinn við tölvulæga hugsun sé að hún sé of fullkomin. Hún er ekki háð þessum miklu takmörkunum. Kannski er hægt einhvern veginn að reikna það inn í þá hugsun, ég veit það ekki.“
Þú reyndir sjálfur að fljúga og greinir frá því í bókinni, fjögurra ára gamall. Það endaði ekki vel. Þú gengur býsna nærri þér í bókinni og talar til að mynda um fráfall bróður þíns, Sveins. Hvernig er að tengja það inn í þessa hugsun alla?
„Já, eins og ég kem inn á í bókinni, sko, ég vil meina að svona bók eins og þessi er og fyrri bækur, uppistandið líka, þá er ég í rauninni að segja hvað ég er búinn að vera að hugsa síðustu tvö, þrjú ár. Og í þessu tilliti reyndar lengur af því að það er lengra síðan síðasta bók kom út. Þetta er í rauninni bara ég að tappa af. Mér finnst svo mikill veldisvöxtur á þróuninni. Eins og var skrifað um rokkið 1955, það bara æðir áfram mánuð frá mánuði, það er einhver mikil kerfisbreyting í loftinu.“
Bergur Ebbi segist hafa verið í miklum bollaleggingum um þetta við bróður sinn.
„Hann var meiri upplýsingatæknigaur, starfaði meira á því sviði og hafði meiri bakgrunn þar en ég en hann hafði reyndar líka mjög mikinn áhuga á þessari fagurfræði upplýsingatækninnar. Já, hann féll frá á ritunartíma bókarinnar eða þegar ég var að pæla í þessu.“
Mikill tregi fylgir þessum hugsunum og Bergur Ebbi segir okkur standa á tímamótum sem samfélag. Við virðumst standa á ákveðnum tímamótum og því fylgir tregi. Við erum að kveðja gamalt samfélag og því fylgir ákveðið sorgarferli og allt í lagi að afmarka það sem slíkt.
„Ég blandaði saman þessari persónulegu sorg og þessari kollektífu sorg í einhverjum hugleiðingum. Þetta er eitthvað sem maður liggur á og það kemur inn í frásögnina. Ég er að færa rök fyrir því að gervigreind sé samofin hjartalagi okkar, að hún sé mikið til byggð á tilfinningalífi okkar frekar en röksemdum. Hún kemur til og er keyrð áfram af óeirð okkar hjarta, sem sagt spurningunum sem við erum alltaf að spyrja okkur.“
Og hvaðan koma þessar spurningar?
„Af hverju erum við forvitin? Af hverju erum við að reyna að skilja hluti? Endalaust kemur ný spurning. Við verðum aldrei fullnægð þegar kemur að svörum sem við fáum og það er það sem keyrir spunagreindina áfram.
Þetta er ekkert eins og við spyrjum, fáum svar og svo bara búið. Þetta kallar alltaf á nýja spurningu. Og þá fer maður aðeins að kanna sitt tilfinningalíf og kemst að því að það eru bara spurningar, það verða alltaf til spurningar og það eru bara til spurningar sem eru ekki til svör við. Eins og fólk þekkir eftir svona fráfall og sorg þá situr fólk uppi bara með spurningar, rosalega knýjandi spurningar og núna erum við í einhverju opnu samtali við gervigreindina um að finna svör við þessum hlutum. Einhvern veginn spannst þetta saman í þessa frásögn og ég lét þetta bara standa.“
Mannskepnan háð hugmyndinni um að allt sé að farast
Þetta er auðvitað sammannleg reynsla? Þú talar um að maðurinn sé ekki rökræn vera og þú tekur trú sem dæmi. Að tölva hefði aldrei komist að þeirri niðurstöðu að trú væri sjálfsögð. Ertu trúaður?
„Já, eða … ég er örugglega eins og margir sem iðka ekki trú í gegnum stofnanir.“
Bergur Ebbi segist hins vegar nálgast trú sína í gegnum pælingar og að hann stjórnist mikið af sögum og táknmyndum sem hann telur leika stærri part í vitund sinni og ákvarðanatöku en hann gerir sér fyllilega grein fyrir.
„Ég hef allavega lært og mitt hyggjuvit segir mér að ég ætti ekkert endilega að vera að krukka of mikið í því. Það eru til hlutir sem eru stærri en ég sem vert er að sýna ákveðið æðruleysi. Þar stend ég í þessu. Finnst svona ákveðnar sögur og ákveðnar táknmyndir sem ég er ekkert að segja að séu heilagar, svo stórar að ég er ekki maður í að hnika þeim. Þetta er einhvers konar trú. Ég trúi á einhverja ákveðna fasta. En ég er ekki nógu djúpur í þessum fræðum til þess að geta sagt af eða á en ég finn alveg að trú stjórnar okkur greinilega mjög mikið. Það eru stórar narratífur sem eru undirliggjandi, stærri en bara fréttaflutningur og þetta daglega amstur.“
Og nú stöndum við á flekaskilum þar sem óttinn við heimsendi ræður.
„Loftslagsmálin. Hugsanleg tortíming lífs á jörðinni út af gjörðum mannanna sem hafa að gera með iðnvæðingu og notkun á jarðefnaeldsneyti og allt þetta. Það eru þessi yfirvofandi endalok og það eru ákveðnir vísindamenn sem ljúka upp sannleikanum um þau mál.
Þetta hefur verið heimsmyndin okkar í kannski 15 ár og ég veit ekki hvort sú hugmynd náði einhverjum hápunkti einhvern tímann. Vísindin og allt það hefur ekkert breyst í sjálfu sér en þetta var það sem við vorum að hugsa mest um. Svo er eins og nú sé verið að skipta því út núna fyrir heimsendinn keyrðan áfram af gervigreind.“
Maður er búinn að heyra alveg rosalegar heimsendaspár. Eins og mannkyn sé háð þeirri hugmynd. Ég man ekki eftir mér öðruvísi en að yfir hafi vofað einhverjar heimsendaspár. Ég hef reyndar fært rök fyrir því að það sé nú frekar ógáfulegt að vera hérna heimsendaspámaður því að þú verður aldrei í þeirri stöðu að geta sagt: „I told you so“.
„Nei, maður fær aldrei þá fróun að geta horft framan í efasemdafólkið. En það er eins og við séum með einhverja bandvídd í huganum um að stærsta saga samtímans sé sögð með yfirvofandi hugmynd um að endalokin séu nærri. Þetta er eflaust eitthvað sem þú getur farið alltaf aftur í en einhver benti mér á að þetta sé kannski svolítið í takti við miðaldaspeki, sérstaklega kristna trú. Sem okkur finnst mjög fornfálegt, kannski ekki mjög vísindalegt og eitthvað sem við höldum að við séum kannski vaxin upp úr. Að það sé hægt að stýra hugsun okkar á þeim grunni að ef þú gerir ekki svo og svo þá bara farist veröldin. Það er ákveðinn ótti og ákveðin skilyrðing. Maður sér samt að þetta er mynstur sem virðist stýra vestrænum samfélögum, allavega.“
Kvíðakast í Kanada
Föstudagurinn 13. þessa mánaðar var eiginlega skelfilegur. Það var, sko, maður, það var nú ekki síst þess vegna sem ég hérna kallaði á þig akkúrat núna að það er þarna Microsoft dettur þarna út og flugumferðarkerfið, eða flugstjórnarkerfið, ég veit ekki alveg hvernig ég á að orða þetta. Það dettur út, fellir niður flug þarna í Bandaríkjunum, virðist nú vera eitthvað tengt Bandaríkjunum, eitthvað dularfullt samskiptanet NSA eða? Bíddu, hvað er að gerast? Ég spyr þig sem framtíðarfræðing.
„Já. Ég fékk þetta svo beint í æð. Ég var nú staddur í Kanada reyndar. Og í hvert skipti sem maður kveikir á fréttunum og maður er staddur á hóteli í Norður-Ameríku fær maður oft kvíðakast. Hlutirnir eru bara þannig fram settir. Þarna birtist hver fréttin á fætur annarri og meira að segja var bætt inn í mixið þarna úti í Kanada einhverjum fuglaflensufréttum og einhverjum dauðsföllum. Kannski var þetta ekki í fréttum hér.
Og það er mikill tímamismunur, ég var staddur á vesturströnd Kanada þarna í Vancouver. Mig langaði bara að hringja í konuna mína af því ég hélt bara að ég yrði kannski fastur líka, flugvélar fóru ekki af stað þarna frá Ameríku, ég hélt þetta yrði einhver keðjuverkun. Og þá næ ég ekki í gegn. Þetta er bara eins og gengur en ég hafði einmitt verið að senda einhverja tölvupósta fyrr um daginn sem höfðu ekki ratað til viðtakandans út af þessu Outlook-veseni þarna hjá Microsoft. Og þegar maður er einhvern veginn einn á hótelherbergi einhvers staðar í veröldinni þá allt í einu finnst manni eins og allar dyr séu að lokast. Þannig að ég fékk þessa örvæntingartilfinningu – í einhverri míkrómynd allavega.“
Bergur Ebbi segist reyndar ekki hafa tengt þetta við þá staðreynd að það væri föstudagurinn 13.
„Þú ert bara að benda á það núna. Ég er reyndar ekki hjátrúarfullur þannig að ég ætla kannski ekkert að fara að bæta því inn í greiningu mína. En auðvitað er þetta líklega tilviljun nema það má kannski samt segja eitt að við erum náttúrulega sífellt samtengdari heimi upplýsinga. Við erum háð sumum upplýsingatæknikerfum. Við erum, sem er sagt á ensku, svona „volatile“. Við erum óvenju brothætt og búið er að setja svolítið mörg egg í sömu körfuna. Og maður getur alveg ímyndað sér að flugumferðarstjórn Ameríku, sem er líklega stærsta slíka kerfið í veröldinni, keyri á mörgum, örugglega mismunandi upplýsingatæknikerfum.“
Bergur Ebbi segist vera að greina þetta á yfirborðinu og hann hafi ekki lesið neina djúpa greiningu á þessu.
„Þessi kerfi vinna öll saman og maður sér fyrir að vera þannig úr garði gerð að ef einhverjum „server“ einhvers staðar í Oklahoma er kippt úr sambandi út af því að einhver þurfti að setja fiskabúr í samband eða eitthvað, þá getur orðið samverkandi keðjuverkun. Svo leggjast ofan á það gríðarlega miklar öryggiskröfur sem alls konar öryggiskerfi byrja að flagga ef þau eru ekki alveg 100 prósent viss. Þannig að lítil þúfa getur velt miklu hlassi hérna. Þetta er náttúrulega það sem fólk var hrætt við á sínum tíma, þarna var þetta sem er stundum kallað 2000-vandinn.“
Ekki líklegt að gervigreindin snúist gegn manninum
Bergur Ebbi segir nánast hlægilegt að rifja upp en fólk hélt að upplýsingakerfi samtímans væru svo samtengd að það að klukkan myndi færast aftur, sem sagt að við færum frá 1999 til 2000, myndi búa til einhverja keðjuverkun sem myndi til dæmis láta koma í veg fyrir að flugvélar gætu farið af stað.
„En ég held að svoleiðis ótti, sem sagt þessi kerfislægi vandi, sé nú eitthvað sem við þurfum að hafa í huga að muni gerast kannski í auknum mæli og ekki síst út af því að við erum líka svolítið á krossgötum þar sem ný upplýsingatæknikerfi eða næsta kynslóð er svolítið að taka við.
Gervigreindarkerfi sem byggja svolítið á annarri hugsun og þau eru ekkert bara að fara að bætast ofan á fyrri kerfi, þau eru líka að einhverju leyti að fara að ráðast á fyrri kerfi.“
Þetta er eðli nýsköpunar og kerfa.
„Stundum er sagt að mesti óvinur nýsköpunar sé „infrastrúktúrinn“ sem er þegar til. Stundum þarf bara að brjóta niður gömul kerfi og það er stundum sagt að þessi gervigreind sé rök þar sem hún hafi sinn eigin vilja og í sumum tilfellum gæti það verið vilji hennar beinlínis.“
Er ekki mesti óttinn að hún hafi eigin vilja og komist þá að þeirri niðurstöðu að við mannskepnan séum bara að þvælast fyrir?
„Jú, ég held það sé alveg raunhæft allavega að segja að gervigreindin sjái oft önnur kerfi sem hindranir. Hún sér ekki nein not fyrir einhver kerfi sem eru fyrir og brýst inn í þau. En hvort hún sjái bara engin not í okkur og okkar holdi og blóði, sko, það efast ég um.“
Þetta er hrollvekjan með stóru há-i?
„Já, já, það er létt að framreikna sig inn á það svið. Hvernig svona hlutir geta skollið á okkur, nokkrir hlutir í einu á sama deginum og hvernig við upplifum hluti, það sé raunverulegur hluti til að stúdera líka. Hvernig er virðing okkar fyrir gervigreind og fyrir tækni og fyrir því sem við getum kallað svona ráðgátuna í því eða dulmagninu? Hún er gríðarlega mikil.“
Akademían í klípu
Bergur Ebbi segir okkur setja alls konar tækni með mismunandi eiginleika undir þennan eina gervigreindarhatt en það höfum við oft gert áður í mannkynssögunni.
„Eins og í kringum 1970 þá var allt eitthvað „space“, eitthvað. Menn voru lúnaðir á því vegna þess að þá var „space race-ið“ í gangi og menn að fara til tunglsins. Við erum að nota niðurstöður frá NASA til þess að búa til þennan penna og það er búið til eitthvað svona „magic dust“ í tengslum við einhverja tækni og sett yfir allt. Núna erum við að gera þetta með gervigreind og allt er gervigreind eitthvað, jafnvel hlutir sem hafa ekkert að gera með hefðbundna gervigreind, fyrir utan það að gervigreind er margs konar undir þessu húddi.
Við berum mikla virðingu fyrir því og við berum svo mikla virðingu fyrir orðunum og tungutakinu og þessu dulmagni. Þetta tengist mælskulistinni en ég trúi því að orð hafi dulmagn og séu þrátt fyrir allt eitt það sterkasta sem við höfum er hvernig við ræðum um hlutina og hvaða nafni við köllum þá. Það er kannski tólið sem við getum snúið til og höfum þrátt fyrir allt forræði yfir.“
Bergur Ebbi telur þetta stóran hluta af því sem gerðist á föstudaginn 13. Fólk varð slegið yfir fréttaflutningnum sjálfum, einhverjum tengingum og ímyndun sem við bjuggum til í okkar kollum. Þú gengur reyndar býsna langt í hugleiðingum og í bókinni varpar þú fram spurningunni um háskóla, hvort þeir verði eins og kirkjur með daufa lykt af fúnu timbri. Og spyrð hvenær tæknin verði farin að aðstoða svo mikið við upptöku þekkingar að hin gagnrýna hugsun, sem er í raun og veru forsenda vísindalegrar hugsunar og þar með akademíunnar, hverfi. Þetta finnst mér alveg risaspurning?
„Já. Auðvitað er gervigreindin ekki fyrsta tækniundrið sem gerir einhverja atlögu að menntakerfinu, ég átta mig alveg á því, en það er hægt að færa rök fyrir því að gervigreind sé í rauninni ekki, í grunninn, vísindaleg. Sem sagt: Hvernig gervigreind framkallar þekkingu er ekki vísindalegt. Til að útskýra þetta, og er kannski grunnatriðið í því, er að þekkingin er í rauninni löðuð fram í því sem kallaður er svartur kassi. Við sjáum ekki ferlið. Í það minnsta fyrir okkur leikmennina þá sjáum við það ekki. Við spyrjum einhverrar spurningar og við fáum bara svarið tilbúið á meðan vísindin ganga svolítið út á það að þú getir rakið þig til baka.“
Orsök og afleiðing?
„Já, þú sérð ekki bara niðurstöðuna, heldur líka rökleiðslurnar að henni. Auðvitað er hægt að fara í gegnum þetta allt saman með gervigreindinni en fólk lætur oft bara duga að fá tilbúna svarið og við vitum ekki hvernig svarið er búið til. Einhver útskýrði sem svo að ef þú spyrð sko gervigreind: Hvað er 2+2? þá færðu svarið 4. En þá er gervigreind ekki að reikna það út með aðferðum vísindanna, í þessu tilfelli stærðfræðinnar, heldur bara að gefa þér líklegasta og nytsamlegasta svarið fyrir þig.“
Gervigreindin spilar inn á væntingar?
„Aðferðafræði gervigreindar minnir meira á tilfinningalegt þel manneskjunnar þar sem hún spilar á væntingar og les meira í aðstæður. Hún hefur kannski meira af hyggjuviti og innsæi sem gervigreind er stundum gagnrýnd fyrir að hafa ekki. Ég er ósammála því.“
Sem er ískyggileg hugmynd í sjálfu sér?
„Ég held hún hafi einmitt mjög mikið innsæi, mjög mikinn lestur en skortir kannski þetta heila, heildstæða abstrakt hugsunarkerfi sem er vísindaleg nálgun. Mér finnst svo mikilvægt að við hlúum að því.“
Nýr krakki kominn á skólalóðina
Ég held reyndar að háskólar hafi nú bara sjaldan staðið á öðrum eins tímamótum og núna, víða að þeim sótt.
„Svo er það líka. Það er sótt að þeim fyrir að vera elítustofnanir sem séu ekkert annað en hreinræktaðar valdastofnanir sem viðhaldi ríkjandi ástandi. Það er önnur umræða og önnur teoría á bak við það en þetta er alveg rétt. Sérstaklega í Ameríku.
Þar er sótt að háskólum af stjórnmálamönnum og fleirum. Og við náttúrulega erum komin með svo margar aðrar leiðir til þess að halda utan um þekkingu, miðla henni svo, YouTube og fleira þar sem þú getur viðað að þér þekkingu. Og núna gervigreindin líka sem gerir kannski ákveðna hluta háskólanna óþarfa. Fyrir nokkrum áratugum héldu bókasöfn háskólanna og fræðiritgerðirnar sem þar voru geymdar fýsískt utan um ákveðna þekkingu.“
Akkúrat.
„Tilgangur þeirra hefur öðrum þræði verið að halda utan um þetta. Þetta er náttúrulega rosalega stór og kannski gróf líking en við vitum að kirkjur og stofnanir kirkjunnar héldu mikið til utan um þekkingu á tímum miðalda. Og líka eftir það.“
Og klaustrin náttúrlega.
„Klaustrin einmitt og háskólar spretta að einhverju leyti líka bara upp úr þeim stofnunum. En síðan taka nútímastofnanir við og nútímaháskólarnir vilja svona oft hafa sem minnst með kirkjuna að gera. Og skilgreina sig, ef eitthvað er, frekar frá þeim stofnunum. Núna er kominn nýr krakki á skólalóðina, sko, sem lætur háskóla og þess háttar umsýslu um þekkingu virka gamaldags. Það er nú sú stóra líking sem ég er að draga.“
Hefur tekið hljómsveitamennskuna í sátt tuttugu árum síðar
Í titlasúpunni þegar þú varst kynntur til sögunnar varstu sagður tónlistarmaður og komst fyrst fram sem slíkur, sem meðlimur í Sprengihöllinni. Var það skólahljómsveit?
„Nei, eða, við vorum reyndar í rauninni félagar úr menntaskóla en við vorum á háskólaárum á þessum tíma. En þetta er náttúrulega býsna langt síðan.“
Uppáhaldslagið mitt var lengi „Verum í sambandi“. Frábært lag.
„Snorri Helgason, sem var með mér í Sprengjuhöllinni, er ennþá starfandi tónlistarmaður og fólk getur ennþá hlýtt á sum þessara laga „live“ með honum.“
Lagðirðu gítarinn á hilluna eftir þetta?
„Já, ég einhvern veginn „morfaðist“ með þetta, hvað segir maður (?), umbreyttist og steig eiginlega yfir í uppistandið. En það er rétt. Ég fór fyrst að koma fram í tónlist. Það var bara svo gaman að vera í bandi með öðrum og allt sem því fylgir. Ég hef alveg gaman af þessu og finnst bara gaman að tala um þetta núna því núna. Þetta er að detta í 20 ár.
Það er góður tími fyrir endurlit. Við vorum í rauninni starfandi að mestu leyti frá um 2006 til 2009. Þannig að það eru komin 20 ár síðan við gáfum út fyrstu lögin okkar. Fyrri breiðskífan kom út 2007 og það væri nú örugglega gaman að fagna því á einhvern hátt eða minna einhvern veginn á það á næsta ári.“
Bergur Ebbi segist þó ekki vera að lofa því að hljómsveitin komi saman eða neitt þannig.
„En kannski kemur í ljós hvort eitthvað af þessu stenst tímans tönn nú þegar eru liðin 20 ár. Á meðan, ef maður horfði til baka þetta tíu ár, þá var maður miklu frekar spenntari fyrir því að hugsa bara: Hvað er ég að gera akkúrat núna og ég nenni ekkert að vera að rifja þetta upp eða pæla í því. En núna hugsa ég bara með hlýju til þessa tíma og er nú svo heppinn að vera í góðu sambandi við, við hljómsveitarfélaga mína frá þessum tíma.“
Hlaðvarpsgerðin vindur upp á sig
Þið Snorri gerist svo frumkvöðlar á sviði hlaðvarpsgerðar með þættinum Fílalag. Það þarf kannski framtíðarfræðing eins og þig til að sjá hvað myndi gerast á þeim vettvangi?
„Já, sá bransi hefur heldur betur sprungið út. Já, við vorum frumkvöðlar hérna á Íslandi og fórum af stað 2014. Við vorum mjög duglegir og keyrðum þetta nánast sleitulaust en þetta er meira tilfallandi í dag.“
Já, þið eruð allt of latir. Ég er alltaf að ýta á refresh-hnappinn. Þetta eru frábærir þættir.
„Já, takk fyrir það. Árið 2014 vorum við í ákveðnu tómarúmi, allavega hér á Íslandi og líka að öðru leyti af því að þó að hlaðvarp hafi verið komið af stað í Ameríku og víðar þá var maður ekkert að hlusta á það, maður var ekkert að pæla í því. Né í þessum svakalega miklu möguleikum sem svona miðill hefur en þegar maður horfir á það eftir á gefur það auga leið að það að geta farið og skapað í rauninni bara sinn eigin fjölmiðil og vera ekki háður þessum innviðum sem fylgja því leysir úr læðingi svakalegan kraft.“
Bergur Ebbi nefnir að hlaðvarparar séu frjálsari en gerist og gengur í hefðbundnum fjölmiðlum.
„Eins og við vitum þá hafa hlaðvörpin getað leikið sér að lengdinni, þau eru ekki háð þessari tímalengd sem hefðbundnir fjölmiðlar hafa. Og menn geta leyft sér að vera kjaftforari eins og gengur. Í raun algjörlega fylgt eigin sannfæringu og hugðarefnum og vera bara bundnir af takmörkunum eigin ímyndunarafls. Enginn yfirmaður.“
Og þannig hafa þeir í Fílalagi haft þetta lengstum.
„Við höfum bara verið að gera þetta fyrir okkur sjálfa og varla verið með einhverja styrktaraðila. Þetta hefur verið grunnstoð í okkar svona samneyti og vináttu. Þess vegna þykir mér rosa vænt um þetta. Svo hefur þetta náð að stækka. Eins og ég segi þá eru eiginlega engin takmörk fyrir því hvað ímyndunaraflið getur gert. Við byrjum og erum bara að spjalla saman, ekki með neitt annað en það sem er á dagskránni. Erum með einhvern smá fókus sem sá að fjalla um músík.“
Og tísku?
„Jú, jú, tónlist er oft tengd tíðaranda og stemningu. Svo vorum við byrjaðir að gera „live-þætti“ af því að það er komið samfélag sem hlustar. Það stækkar þetta ennþá meira. Við vorum komnir í Borgarleikhúsið, bara atvinnuleikhús, og allt rosa flott. Og svo varð þetta ennþá stærra þegar Sinfónían bað okkur um að koma til samstarfs.
Við höfum tekið þrjár sýningar í Eldborg og fleiri í rauninni af því við höfum verið hluti af fræðsludagskrá Sinfó þegar þau eru að kynna sinfóníska músík og hljómsveitina fyrir skólakrökkum. Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt, mörg þúsund krakkar, nokkrir Eldborgarsalar í röð. Að taka kannski fjórar Eldborgir á tveimur dögum. Svo hittir maður einhverja krakka bara í sundi og strætó og eitthvað löngu seinna sem segja: Hæ, ég sá þig þarna með Sinfó. Þannig að okkur var treyst fyrir því.“
Hvað ef gervigreindin væri ekki sleikjuleg?
Svo voruð þið með sjónvarpsþætti líka byggða á þessu sama konsepti?
„Við gerum tvær seríur þátta fyrir RÚV. Já, mér finnst þetta vera dæmi um það að bara vera með tilfinningu fyrir einhverju, einhverja ástríðu og einhverja vináttu og einhvern veginn byrja að spinna … það hefur eiginlega engin takmörk af því að það eru engin takmörk. Þetta er bara það sem það er.“
Ég hérna spurði náttúrulega gervigreindina: Hver er Bergur Ebbi? Hún sagði: Þetta er þýskur rithöfundur, uppistandari og leikari… Nei, ég er að grínast. Það segir ekkert hér um að þú sért þýskur.
„Já! Eins gott.“
En þú tekur einmitt dæmi um að þú hafir spurt hana um vefarann mikla frá Kasmír og þá hafi komið á daginn að Halldór Laxness væri sænskur rithöfundur?
„Já, já. Ég tók þetta sem dæmi um það hvernig gervigreindin gefur aldrei sömu svörin. Í viðleitni sinni til að leiðrétta sig þá er hún sífellt að leita og þróa sig áfram og neglir kannski eiginlega aldrei alveg rétt svar.
Svo þegar maður reynir aftur er kominn einhver annar vinkill. Þetta er einn af stóru ókostum gervigreindar og kannski það sem gerir hana síður vísindalega. Hún er viss með sig og neglir út þessum svörum án fyrirvara. En það er líka spennandi að svörin eru aldrei eins.“
Svo hefur fólk verið að kvarta undan því að hún sé frekar sleikjuleg?
„Jú. En það væri nú óþægilegt ef stillingarnar bara breytast allt í einu og hún fer að verða fjandsamleg manni. Þetta gæti farið illa með sjálfstraustið okkar, held ég.“