Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst útkallið klukkan 12:40 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var eldurinn töluverður en vel gekk þó að ráða niðurlögum hans. Slökkvistarfi á vettvangi lauk upp úr klukkan 13.
„Það var alveg töluverður eldur þarna inni en þetta var lítið rými þannig það vel gekk að slökkva eldinn,“ segir Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Enginn var inni í húsbílnum þegar eldur kviknaði og engin slys urðu á fólki. Upptök eldsins eru óljós.
Hjólhýsabyggðin hefur verið til umræðu síðustu vikur. Þann 1. nóvember var lokað fyrir vatn og rafmagn á svæðinu eftir að Reykjavíkurborg gaf þau fyrirmæli að íbúarnir ættu að yfirgefa svæðið. Meðal ástæðna var að slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði sett út á brunvarnir á svæðinu og telur þær vera ófullnægjandi.