Launakostnaður vegna veikindafjarveru hjá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu er áætlaður um tólf milljarðar króna á ári. Framkvæmdastjóri samtaka þeirra segir mögulegan ávinning nema 5,4 milljörðum ef takist að lækka veikindahlutfallið um þrjú prósentustig. Sveitarfélögin skoða nú hvernig þau geti unnið saman að því.
Hagfræðingur segir greinileg samdráttarmerki í hagkerfinu. Hagvöxtur sé lítill, sem sé alþjóðlegt vandamál, en hann segir stöðuna verri hér en víða annars staðar.
Þolendur millifærslusvika bera langstærstan hluta tapsins þegar ekki tekst að ná peningunum aftur. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu segir oft erfitt að rekja féð og telur að skömm geti orðið til þess að fólk tilkynni ekki svikin.