Saqar Yari ólst upp í samfélagi þar sem hún þurfti sífellt að gæta orða sinna og hegðunar. Hún segist snemma hafa átt í árekstrum við kennara sína vegna þess að hún spurði óþægilegra spurninga og sætti sig ekki við þær reglur sem henni var gert að fylgja. Kennararnir hafi ítrekað reynt að þagga niður í henni.
Á Íslandi hefur Saqar ekki hætt að segja skoðanir sínar. Hún hefur vakið athygli fyrir myndskeið á samfélagsmiðlum þar sem hún gagnrýnir íslam og trúarlegar takmarkanir á frelsi kvenna. Viðbrögðin hafa þó verið hörð og segist hún meðal annars hafa fengið líflátshótanir frá einstaklingum sem hún telur vera múslima búsetta á Íslandi.
„Þú talar of mikið“
Saqar er elst þriggja systkina og ólst upp í Karaj, um 1,6 milljóna manna borg sem er 40 kílómetra vestur af höfuðborginni Teheran.
Foreldrar hennar voru aðeins 18 ára þegar hún fæddist og faðir hennar starfaði sem kokkur og rak veisluþjónustu. Þrátt fyrir að hafa kynnst fátækt og erfiðum aðstæðum í nærumhverfi sínu telur Saqar sig hafa verið heppna með foreldrana. Þau voru að hennar sögn mun frjálslyndari en margir aðrir foreldrar í samfélaginu og studdu hana í því að rækta eigin áhugamál og skoðanir.
„Heima hjá okkur gat ég verið frjáls. Mamma og pabbi sögðu alltaf við mig: ‚Þú getur gert allt.“
Utan heimilisins giltu hins vegar aðrar reglur. Þar var meðal annars skylda að bera höfuðslæðu, eða hijab, og Saqar segir föður sinn ítrekað hafa þurft að biðja hana um að hylja hárið til að forðast afskipti lögreglu.
Þótt foreldrarnir hefðu stutt sjálfstæði hennar voru hefðbundin viðhorf til kynjahlutverka ekki með öllu fjarverandi á heimilinu. Faðirinn hafði síðasta orðið um ýmsar ákvarðanir og var til að mynda lengi mótfallinn því að dóttirin flytti ein til útlanda.
Hún kveðst snemma hafa átt erfitt með að sætta sig við reglurnar sem giltu um stúlkur og konur í Íran. Það átti ekki síst við í skólanum, þar sem kynin voru aðskilin og trúarbragðafræðsla skipaði stóran sess.
Hún var forvitin og vildi fá skýringar á því hvers vegna henni bæri að hlíta ákveðnum reglum. Hún segist oft hafa andmælt kennurunum, meðal annars þegar rætt var um trúarbrögð og stöðu kvenna.
„Ég gat aldrei tjáð mig. Ég gat aldrei sagt hvað ég var að hugsa. Kennararnir voru alltaf að segja við mig: „Þú talar of mikið. Þú munt annaðhvort deyja í þessu landi eða flytja út.“
Önnur eldri minning tengist trúarlegri sorgarathöfn í skólanum þegar Saqar var átta ára. Slíkar athafnir eru meðal annars haldnar í sjíaíslam á Ashura, þegar píslarvættis Husseins, dóttursonar Múhameðs spámanns, er minnst.
Nemendur áttu að sýna sorg sína með því að gráta, en Saqar gat ekki grátið. Það vakti athygli kennarans sem brást illa við.
„Þá kom kennarinn og lamdi mig. Hún spurði af hverju ég væri ekki að gráta og sagði að ég myndi fara til helvítis. Ég reyndi og reyndi og loksins kom eitt tár. Þá fór ég til hennar og spurði hvort ég færi enn til helvítis. Hún sagði: „Nei, vel gert, haltu áfram.“
Skóladagurinn í Íran hófst ekki alltaf á hefðbundinni kennslu. Saqar segir að strax við sjö ára aldur hafi hún þurft að taka þátt í morgunsamkomum þar sem hundruð stúlkna voru látnar fara með slagorð gegn Bandaríkjunum og Ísrael.
„Ímyndaðu þér fjögur hundruð stelpur, frá fyrsta bekk til tíunda bekkjar, sem standa í röð á hverjum einasta morgni. Við byrjuðum daginn klukkan sjö eða átta á því að hrópa: „Dauði yfir Ameríku!“ Og þú varðst að taka þátt, annars kom kennarinn og spurði af hverju þú værir ekki að segja þetta.“
Hún segir jafnframt að bandarískir og ísraelskir fánar hafi verið brenndir í skólanum. Sjálf hafði hún mikinn áhuga á bandarískri menningu og dreymdi um að heimsækja Bandaríkin. Hún átti því erfitt með að skilja hvers vegna börnunum væri kennt að hata land sem þau þekktu lítið til.
„Ég var alltaf að spyrja: „Af hverju?“ Ég var ekki einu sinni búin að borða morgunmat. Af hverju ætti ég að segja „Dauði yfir Ameríku“?
Hágrét allan tímann
Saqar var um 14 ára þegar hún lenti í afskiptum lögreglu á meðan Ramadan, föstumánuður múslíma, stóð yfir. Hún hafði verið að drekka vatn og tyggja tyggjó á almannafæri og þótti auk þess ekki nægilega vel klædd. Lögreglumenn stöðvuðu hana og tóku hana með sér í bíl. Hún segir tvær konur hafa setið hjá sér á meðan karlmenn sátu frammi í. Hún vissi ekki hvað tæki við og óttaðist afleiðingarnar.
„Svo byrjuðu þau að keyra og stoppuðu til að sýna fólki mig. Þau voru að segja: „Sjáið þessa stelpu, sjáið hvernig hún er klædd.“ Ég bara hágrét allan tímann.“
Að sögn Saqar stóð þetta yfir í um hálftíma áður en farið var með hana á lögreglustöð. Að lokum var haft samband við móður hennar.
„Mamma sagði bara: „Nei, hún er fjórtán ára, ég er að koma strax.“ Hún kom með önnur föt handa mér og ég skipti um. Svo fórum við heim. Ég var rosalega heppin að þau hringdu í mömmu. Ég veit ekki hvað hefði gerst annars.“
Atvikið hafði mikil áhrif á Saqar. Óttinn við lögreglu varð hluti af hversdagslífinu og hélst áfram eftir að hún flutti til Íslands.
„Þetta er ennþá þannig í dag að ég get ekki andað þegar ég er nálægt lögreglunni. Ég vildi óska þess að ég væri að ýkja, en líkaminn bregst bara svona við. Ég drekk ekki einu sinni og er ekki að gera neitt rangt. Samt, þegar ég sé lögreglu, þá hugsa ég bara: „Ekki tala, ekki gera neitt.“
Frá Íran til Egilsstaða
Löngunin til að yfirgefa Íran kviknaði snemma.
Hún var um tólf ára þegar hún tilkynnti móður sinni að hún ætlaði að flytja úr landi þegar hún yrði fullorðin. Hún hafði þá farið að fylgjast með lífinu annars staðar í heiminum í gegnum netið og áttað sig á því að stúlkur og konur bjuggu við allt annað frelsi víða utan Írans.
„Ég man að ég sagði við mömmu: "Ég mun fara eftir sex ár. Þegar ég verð fullorðin þá mun ég fara." Ég vissi ekkert hvernig ég ætlaði að gera það, en ég vissi að ég myndi fara.“
Móðir hennar benti henni á möguleikann á að gerast au pair. Saqar hóf að hafa samband við fjölskyldur víða um heim og leit hennar stóð yfir mánuðum saman.
Um tíma virtist mögulegt að hún myndi flytja til Svíþjóðar. Saqar hafði komist í samband við mann sem sagðist vilja ráða hana til barnagæslu og þau ákváðu að hittast í Tyrklandi. Þegar þangað kom reyndist maðurinn hins vegar hafa annað og meira í huga en að ráða hana sem au pair. Saqar ákvað því að halda ekki áfram með þau áform og sneri aftur heim til fjölskyldunnar.
Að lokum fann hún fjölskyldu á Egilsstöðum sem var tilbúin að taka á móti henni. Þá hófst langt ferli við að útvega nauðsynleg leyfi.
Faðir hennar hafði upphaflega verið mótfallinn því að dóttirin flytti ein til útlanda. Afstaða hans breyttist þó eftir að Saqar hafði unnið með honum í veisluþjónustunni og sýnt að hún gæti tekið ábyrgð.
Menningarsjokk
Árið 2022, þá nítján ára gömul, lagði Saqar loks af stað til Íslands.
„Ég vissi ekki einu sinni að það væri hægt að fara til Íslands. Ég vissi ekki hvort þetta myndi gerast fyrr en ég var komin á flugvöllinn. Og svo kom ég bara frá Íran til Egilsstaða, af öllum stöðum í heiminum.“
Sama ár og Saqar yfirgaf Íran lést hin 22 ára Jina Mahsa Amini eftir að hafa verið handtekin af siðgæðislögreglunni vegna meintra brota á reglum um höfuðslæður.
Andlát hennar 16. september 2022 hrinti af stað umfangsmiklum mótmælum í Íran undir slagorðinu „Kona, líf, frelsi“. Konur voru í fararbroddi mótmælanna og margar þeirra tóku af sér höfuðslæðurnar opinberlega í andstöðu við stjórnvöld.
Það tók Saqar nokkurn tíma að venjast því að geta gengið um án höfuðslæðu eftir að hún flutti til Íslands. Hún þurfti ekki lengur að hafa áhyggjur af því að klæðaburðurinn gæti kallað á afskipti lögreglu.
Fyrstu mánuðirnir á Austurlandi reyndust þó erfiðir. Breytingarnar voru miklar og Saqar var langt frá fjölskyldu sinni og öllu því sem hún þekkti.
Smám saman fór að birta til. Hún eignaðist vini, fór að njóta þess að búa á Austurlandi og lærði að meta rólegheitin og náttúruna.
Að loknu ári á Egilsstöðum ákvað Saqar að flytja til Reykjavíkur. Í dag starfar hún á leikskóla, hefur tekið að sér ýmis aukastörf og stundar nám til að verða einkaþjálfari.
Móðir hennar hefur einnig yfirgefið Íran og flutt til Þýskalands ásamt yngri systkinunum. Tvö ár liðu þar til Saqar gat hitt móður sína aftur og sameinuðust þær loks í Þýskalandi. Faðirinn býr hins vegar enn í heimalandinu, að sögn Saqar, vegna vandkvæða með pappíra og leyfi.
Aðskilnaðurinn frá föðurnum hefur reynst erfiður, ekki síst þegar fréttir berast af mótmælum og átökum í heimalandinu. Ný mótmælaalda hófst í Íran í lok desember 2025 og í janúar á þessu ári gripu stjórnvöld til víðtækrar netlokunar samhliða harðri aðgerð gegn mótmælendum.
Saqar náði þá ekki sambandi við föður sinn í tvo daga, að eigin sögn. Hann hafði tekið þátt í mótmælunum og hún vissi ekki hvort hann væri óhultur.
„Ég vissi ekki hvað pabbi var að gera. Ég gat ekki heyrt í honum,“ segir Saqar.
Þegar þau náðu loks sambandi hafi faðir hennar sagt að hann hefði farið í mótmælin vegna hennar.
„Hann sagði: „Ég fór út af þér af því ég vissi að þú myndir vilja fara.“
Draumurinn um frjálst Íran
Þótt Saqar hafi verið ákveðin í að yfirgefa Íran er samband hennar við heimalandið flóknara en svo að hún hafi einfaldlega snúið við því baki. Hún talar af mikilli hlýju um menningu landsins, bókmenntirnar, matinn og gestrisnina. Það kemur henni stundum á óvart hversu litla hugmynd Íslendingar hafa um landið.
„Fólk hefur til dæmis spurt mig hvort við eigum bíla eða hvort það sé snjór í Íran. Auðvitað er snjór í Íran. Við förum líka á skíði. Þetta er risastórt land og það er svo margt sem fólk veit ekki um. Og Íran er ótrúlega fallegt land. Maturinn, menningin, bókmenntirnar, tungumálið, allt þetta er svo ríkt. Ef Íran væri frjálst væri þetta ótrúlegt land til að ferðast um.“
Og þótt Saqar hafi lengi verið ákveðin í að yfirgefa Íran dreymir hana um að geta einhvern tíma snúið aftur til heimalandsins. Hún saknar ættingja og vina og langar að ganga á ný um göturnar þar sem hún ólst upp. Hún veit þó ekki hvenær sá dagur kemur né hvort hún muni nokkurn tíma fá tækifæri til að heimsækja heimalandið á ný.
„Mig langar að fara til baka þegar landið mitt er frjálst.“
Gildi sem stangast á
Gagnrýni Saqar beinist ekki aðeins að írönskum stjórnvöldum heldur einnig að íslam, sem hún telur hafa skaðleg áhrif á réttindi kvenna.
Hún segir erfitt fyrir fólk sem hefur alist upp í frjálsum samfélögum að skilja hvernig það sé að búa í landi þar sem trúarlegar reglur séu samofnar löggjöf og opinberu lífi. Sú mynd sem margir hafi af íslam á Vesturlöndum sé verulega frábrugðin þeirri reynslu sem hún og fjölmargir aðrir Íranar hafi af trúarbrögðunum.
Hún vísar meðal annars til reglna um stöðu kvenna, kynjahlutverk, hjónaband og refsingar. Að hennar mati eru ýmis viðhorf sem finna má í trúarlegum kenningum ósamrýmanleg þeim réttindum og gildum sem íslenskt samfélag byggist á.
„Ég er búin að lesa Kóraninn; ég þurfti að læra þessa bók í tólf ár. Ég veit hvað stendur þar. Þegar ég var að lesa þetta fannst mér ég vera niðurlægð. Mér fannst eins og ég væri minni manneskja. Ég hugsaði alltaf: ‚Hvernig er hægt að tala svona um konur?“ segir Saqar en hún gagnrýnir sérstaklega þá hugmynd að karlar eigi að hafa vald yfir konum og að konum beri fyrst og fremst að sinna heimili og fjölskyldu.
„Af hverju má karlmaður eiga fjórar konur? Af hverju má konan ekki velja það sama? Konum er sagt að þær eigi ekki að hafa áhyggjur af peningum eða stjórnmálum, að það séu málefni karla. Þeim er sagt að þær eigi að vera góðar konur, annars fari þær til helvítis. Þetta er svo mikil hræðsla.“
Saqar telur að sumir múslímar sem flytji til Íslands vilji njóta þess frelsis sem íslenskt samfélag býður upp á en haldi engu að síður í viðhorf og siði sem samræmast ekki jafnrétti kynjanna.
„Nú veit ég til dæmis um karlmenn hér á Íslandi sem eiga tvær konur. Þeir eru svo góðir og segja að Ísland sé besta land í heimi. En svo, á bak við luktar dyr, sjáðu hvernig þeir koma fram við konur.“
Hún segir mikilvægt að íslenskar konur standi vörð um þau réttindi sem barist hefur verið fyrir í gegnum tíðina.
„Mér finnst þess vegna mjög mikilvægt að konur haldi áfram að tala og leyfi ekki svona karlmönnum að koma og taka réttindi frá þeim.“
Saqar segir gagnrýnina ekki eingöngu snúast um eigin reynslu. Hún hugsi einnig mikið til kvenna í Íran sem hafi ekki sama möguleika og hún til að tjá skoðanir sínar eða ráða eigin lífi.
„Röddin mín er allt sem ég hef. Og mig langar að vera rödd þessara kvenna,“ segir hún og bendir á að fjölmargar konur í heimalandinu búi yfir miklum hæfileikum og menntun en fái ekki tækifæri til að nýta þá.
„Kannski var ég bara ótrúlega heppin að komast hingað og geta gert allt sem mig langar til. En þær geta það ekki.“
Hótanir í kjölfar gagnrýni
Gagnrýni Saqar á íslam hefur vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum. Hún hefur reglulega birt myndskeið á TikTok þar sem hún segir meðal annars frá lífinu í Íran, afskiptum lögreglu, trúarlegum reglum og þeim takmörkunum sem konur þurfa að búa við.
Ekki hafa allir tekið frásögn hennar vel. Saqar segist hafa fengið fjölda niðrandi athugasemda og einkaskilaboða, meðal annars frá einstaklingum sem hún telur vera múslima búsetta á Íslandi. Alvarlegustu skilaboðin hafi hins vegar innihaldið hótanir um ofbeldi og líflát.
„Ég fæ skilaboð frá fólki sem þekkir mig ekki neitt. Stundum eru þetta einhverjir falskir aðgangar með múslimskum nöfnum. Ég hef fengið skilaboð eins og: „Ég mun drepa þig“ og „Pabbi þinn hatar þig“ og „Farðu úr fokking landinu.“
Að sögn Saqar hafa einnig borist skilaboð þar sem einstaklingar segjast vilja hafa uppi á henni og berja hana. Ekki liggur fyrir hverjir standa að baki öllum skilaboðunum eða hvort um sé að ræða einstaklinga sem raunverulega eru búsettir á Íslandi.
„Fólk segir: „Ég sé þig, ég vil lemja þig, ég hata þig.“ Og ég er bara: „Af hverju ertu svona reiður ef ég er að segja satt?“
Saqar telur að sumir upplifi gagnrýnina sem einhvers konar persónulega árás vegna þess hversu stór hluti trúin er af sjálfsmynd þeirra.
Það skýri þó ekki eða réttlæti hótanirnar. Og hún telur mikilvægt að geta gagnrýnt trúarlegar hugmyndir án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar.
„Ég veit að þegar ég tala um svona stórt mál þá verða margir reiðir og taka því persónulega. En mér er alveg sama. Mér finnst að ég megi vera hreinskilin og hafa skoðanir, þótt þær séu harðar. Mig langar að vera frjáls og segja nákvæmlega það sem ég er að hugsa.“
Viðbrögðin hafa ekki orðið til þess að Saqar vilji draga sig í hlé. Hún segist þvert á móti ákveðin í að halda áfram að tjá sig.
„Ég mun bara tala meira. Ef þú ert svona reiður mun ég bara halda áfram að tala um hvernig íslam hefur haft áhrif á líf mitt.“
Að verða hluti af samfélaginu
Saqar hefur náð óvenjugóðum tökum á íslensku á einungis fjórum árum.
Hún telur að þeir sem flytja til Íslands og hyggjast búa hér til lengri tíma eigi að leggja sig fram um að læra íslensku. Tungumálið sé ekki aðeins mikilvægt í daglegu lífi heldur einnig til þess að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.
„Það er ekki auðvelt að búa á Íslandi og ekki tala íslensku,“ segir hún og bendir á hversu óþægilegt henni þótti til dæmis að vera í vinahópi þar sem allir þurftu sífellt að skipta yfir í ensku hennar vegna.
„Ef þú ert að plana að búa hérna í meira en tvö ár, lærðu tungumálið.“
Hún segist stolt af írönskum uppruna sínum en lítur ekki svo á að hún þurfi að velja á milli tveggja menningarheima. Þvert á móti telur hún að það auðgi lífið að kynnast nýjum tungumálum og menningu.
„Ég verð alltaf persneska stelpan,“ segir hún.
„En ég hef líka lært svo mikið af íslensku samfélagi og Íslendingum og það er búið að gefa mér svo mikið. Það tekur ekki neitt frá þér þótt þú lærir tungumálið og tengist fólki og verðir partur af samfélaginu. Það þýðir ekki að ég sé búin að gleyma hvaðan ég er. Ég veit hver ég er.“
Þótt Saqar sé ánægð með lífið á Íslandi er framtíðin ekki fullmótuð. Hún hefur mikinn áhuga á ferðalögum og útilokar ekki að búa annars staðar um tíma. Ísland skipar þó sérstakan sess í huga hennar. Starfið á leikskólanum hefur meðal annars fengið hana til að hugsa um hversu ólíka bernsku íslensk börn eiga miðað við þá sem hún sjálf upplifði í Íran.
„Mig langar að börnin mín alist upp á Íslandi. Ég vinn á leikskóla og sé hvernig börnin eru bara frjáls. Ég fékk aldrei tækifæri til að vera barn, skilurðu. Þess vegna langar mig að börnin mín fái að vera börn.“
Þegar hún lítur til baka á síðustu ár er henni sérstaklega hugleikið að frelsið hafi ekki komið allt í einu. Þótt hún væri flutt til Íslands og þyrfti ekki lengur að lúta sömu reglum og áður tók tíma að venjast því að geta tekið ákvarðanir án þess að óttast stöðugt afleiðingarnar.
Og enn í dag þarf hún stundum að minna sjálfa sig á það.
„Ég fékk aldrei að vera ég sjálf. Núna get ég það án þess að vera hrædd.“