Já: ÆLUFÆLNI er til.
Og eins og orðið gefur til kynna, byggir ælufælni á ótta við uppköst. Sín og annarra.
Alvarlegustu dæmin um ælufælni eru þegar fólk er verulega vannært vegna vandans eða fer í fóstureyðingu af ótta við ógleði á meðgöngu, en um 5% hafa gert það síðarnefnda.
Við höfum alveg séð dæmi um þetta á KMS,“
segir dr. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni.
Sóley og Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir sálfræðingur hafa prófað nýja meðferð við ælufælni sem lofar góðu.
„Mjög líklega er ælufælni vangreind, því einkennin skarast við einkenni annarra raskana. Ælufælni á margt sameiginlegt með OCD, sem er þráhyggju- og árátturöskun, en líka heilsukvíða og ofsakvíða, þar sem fólk hræðist viss líkamseinkenni,“ segir Sigurbjörg.
Einkenni og upphaf ælufælni
Það fyrsta sem við þurfum að gera er að skilja betur hvað þetta fyrirbæri – ælufælni – er.
„Ælufælni einkennist af miklum ótta við það að kasta upp eða verða vitni að uppköstum annarra. Oftast er óttinn þó sá að maður muni sjálfur kasta upp á endanum,“ segir Sigurbjörg.
Ælufælni er fremur sjaldgæf en er sennilega sú fælni sem er mest hamlandi og sú sem fólk leitar sér oftast aðstoðar við.
„Því sjáum við þennan vanda reglulega á KMS,“ segir Sóley og bætir við:
Það sem gerir ælufælni svona erfiða er að fólk hræðist bæði ýmislegt sem bærist innra með því eins og magaónot eða ógleði og hluti eða aðstæður í umhverfinu eins og að vera einhvers staðar þar sem maður gæti veikst.
Það er auðveldara að forðast hluti sem eru bara í umhverfi manns, eins og köngulær.“
Sem dæmi um hvað ælufælni á sameiginlegt með þráhyggju- og árátturöskun, OCD, segir Sigurbjörg:
„Margir þvo sér óhóflega um hendur, sótthreinsa yfirborðsfleti og forðast að hugsa eða tala um ógleði og ælupestir. Þá er hjátrúarfull hegðun stundum til staðar, eins og að ganga ekki í gulu eða sniðganga hugsanir um veikindi. Sem sé að varast að ‚jinxa‘ hlutunum.“
„Fólk hefur viðvarandi áhyggjur af því að veikjast og um 80% fá óþægilegar hugsanir og sjá jafnvel fyrir sér það sem þau óttast mest,“ segir Sóley.
Mikill ótti og vanlíðan fylgja ælufælni.
„Fólki er misjafnlega ljóst hvað það óttast mest að gerist við uppköst, en algengt er að óttast að missa stjórn á sér, falla í yfirlið, kafna, fá kvíðakast eða vekja viðbjóð hjá öðrum,“ segir Sóley.
Hvers vegna ælufælni?
Sóley og Sigurbjörg segja ekki vitað fyrir víst hversu algeng ælufælni er.
Í hollenskri rannsókn sýndu niðurstöður að 8,8% þátttakenda óttuðust uppköst. Það er þó ekki það sama og að vera með ælufælni en eldri rannsóknir benda til þess að um 0,1% fólks sé með ælufælni.
Langflestir með ælufælni eru konur, eða níu af hverjum tíu.
Algengast er að vandinn hefjist í æsku – eða við tíu ára aldurinn að meðaltali.
„Konur eru sérstaklega útsettar fyrir vandann, en konur virðast klígjugjarnari en karlar, uppteknari af hreinlæti og því líklegri til að þróa með sér þvottaáráttu og mögulega ælufælni,“ segir Sóley.
Sigurbjörg segir ælufælni geta tengst slæmri reynslu, til dæmis því að hafa fengið slæma gubbupest sem barn eða orðið fyrir harkalegum viðbrögðum eða niðurlægingu við það að kasta upp til dæmis í skólanum. Þá geti börn þróað með sér ælufælni við að horfa upp á einhvern nákominn veikjast illa, til dæmis af salmonellusýkingu.
Alvarlegar afleiðingar
Það er hræðilegt til þess að vita að konur séu að fara í fóstureyðingu eða fólk að verða vannært af ótta við að æla.
Þetta er þó hin sorglega og alvarlega staðreynd.
„Líf fólks með ælufælni verður undirlagt,“ segir Sóley og nefnir að algengt sé að fólk forðist vissar fæðutegundir, staði sem virðast ótryggir, ferðalög, ákveðin farartæki, umgengni við veikt eða ölvað fólk, inntöku lyfja eða aðstæður sem það tengir við veikindi, svo sem spítala eða biðstofur lækna.
Stundum hefur fólk með ælufælni ranglega verið greint með átröskun.
Sumir sem haldnir eru ælufælni eru í undirþyngd vegna þess að þeir forðast svo margar fæðutegundir.
Eða þeir geta aðeins borðað lítið í einu, því þeir óttast að verða bumbult borði þeir mikið,“
segir Sigurbjörg.
Margir eru líka með nánast stöðuga ógleði. Sem lýsir því vel hversu mikill óttinn er, hversu lengi hann hefur staðið og það að vera jafnvel undir æskilega kjörþyngd.
Þá er algengt að fólk með ælufælni glími við annan vanda líka, svo sem aðrar kvíðaraskanir og þunglyndi.
„Þetta skerðir auðvitað lífsgæði fólks verulega,“ segir Sóley.
Hér er áhugavert viðtal við Sóley um fullkomnunaráráttu.
Meðferðin tekur fjóra daga
Meðferðin sem Sóley og Sigurbjörg hafa verið að prófa með góðum árangri tekur aðeins fjóra daga. Hún byggir á meðferð sem á uppruna sinn að rekja til Bergen í Noregi og hefur á undanförnum árum vakið alþjóðlega athygli sem árangursrík meðferð við þráhyggju- og árátturöskun, OCD.
Sem betur fer eru leiðir til að sporna við ælufælni. Sóley og Sigurbjörg segja frá árangursríkri meðferð frá Bergen í Noregi, sem aðeins tekur fjóra daga. Doktorsverkefni Sóleyjar fjallaði einmitt um innleiðingu meðferðarinnar á Íslandi og hvort hún væri álíka árangursrík hérlendis og í Noregi.
„Á árunum 2018 til 2023 fóru 86 manns með OCD í gegnum meðferðina hjá KMS. Af þeim svöruðu 95 % meðferðinni, það er að segja voru betri að henni lokinni, og álíka margir voru mjög ánægðir með hana,“ segir Sóley. Um 68 % uppfylltu viðmið um bata og hélst árangurinn við eins árs eftirfylgd.
Í kjölfarið ákváðu Sóley og Sigurbjörg að kanna hvort meðferðin gæti einnig gagnast við ælufælni.
„Niðurstöður voru þær að allir svöruðu meðferð og 80 % þeirra sem fóru í gegnum hana náðu viðmiðum um bata,“ segir Sigurbjörg.
„Þetta var samt lítil rannsókn með fáum þátttakendum og nauðsynlegt er að endurtaka hana með fleirum. En þetta er betri árangur en í þeim fáu rannsóknum sem gerðar hafa verið erlendis. Við vitum ekki enn hvort meðferðin er öflugri, það þarf að rannsaka þetta betur. En hún lofar mjög góðu,“ segir Sóley.
Hér má lesa gagnlegt viðtal við Sóleyju um OCD.
Góðu ráðin
Við fengum Sóleyju og Sigurbjörgu til að gefa okkur góð ráð, ef við teljum okkur glíma við ælufælni.
1. Leitaðu þér aðstoðar. Ælufælni er ein sú fælni sem fólk leitar sér oftast aðstoðar við og vel má ná tökum á vandanum.
2. Ekki óttast meðferðina. „Fólk er oft hrætt við að koma til meðferðar en vandinn er skoðaður í rólegheitum í tvö til þrjú skipti áður en meðferð hefst og fólk stýrir sjálft ferðinni. Það er með öðrum orðum aldrei neytt til að gera hluti sem það vill ekki. Því er um að gera að koma í matsviðtal og skoða möguleikana,“ segir Sigurbjörg.
3. Þú þarft ekki að vita orsökina. „Það þarf ekki að vita hvað orsakaði vandann til að laga hann,“ segir Sóley.
4. Veldu meðferð sem virkar. Hugræn atferlismeðferð er öflugasta og mest rannsakaða úrræðið við ælufælni. Fjögurra daga meðferðin sem var nefnd hér að ofan er veitt bæði sem einstaklingsmeðferð og í hópi.
5. Ekki pína þig áfram. „Það er ekki sama hvernig þetta er gert, því margir hafa pínt sig til að gera alls konar hluti og það hefur alltaf verið jafn erfitt,“ segir Sigurbjörg.
6. Lærðu hvernig kvíðinn virkar. „Í meðferðinni er kennd tækni til að bregðast öðruvísi við kvíðanum en áður, þannig að hann fari minnkandi. Um leið og maður veit hvernig kvíðavandinn virkar má fara að breyta viðbrögðunum, þannig að önnur skilaboð séu send inn í kvíðakerfið,“ segir Sóley.