Samskiptaforritið Signal herðir varnir gegn því að gervigreind geti lesið einkasamtöl notenda. Í því felst meðal annars að taka fyrir að notendur geti tekið skjáskot af spjalli sem þeir eiga í.
Meredith Whittaker, forstjóri Signal, segir á vef fyrirtækisins að stýrikerfi í Apple-, Android- og Windows-snjalltækjum séu „þau höf sem Signal og önnur snjallforrit verða að synda í“ og að þetta umhverfi breytist ört. Nú sé svo komið að gervigreindarspjallmenni og þjarkar sem knúnir eru með gervigreind séu orðnir aðgangsfrekari við að bæta upplifun notenda.
Tökum dæmi: iPhone-notandi felur gervigreindarforriti að fylgjast með símanum sínum, lesa tölvupóstinn sinn og vakta tilkynningar til þess að missa örugglega ekki af neinu. Forritið gefur skýrslu um hvaða póstum á eftir að svara og við hvaða tilkynningum á eftir að bregðast. Til þess að svo megi verða gæti forritið – sem virkar eins og einkaritari – þurft að vakta skjáinn og fylgjast með öllu sem þar kemur fram.
Signal, sem dulkóðar öll samskipti notenda sinna, vill tryggja persónuvernd þeirra með því að sporna gegn þessu. Í því felst að notendur geti ekki tekið skjáskot af spjalli sínu við aðra í gegnum Signal, sem önnur forrit í símanum geta svo skoðað.
Signal ætlar þó að heimila notendum að stilla forritið þannig að þeir geti áfram tekið skjáskot af spjalli innan þess. Sé forritið stillt þannig verði þó ekki hægt að tryggja persónuvernd notenda eins vel né heldur persónuvernd þeirra sem notendur spjalla við.
Signal er notað víða í efstu lögum íslenskrar stjórnsýslu. Vitað er að ráðherrar og aðstoðarmenn þeirra nota gjarnan Signal til samskipta, til dæmis við fjölmiðlamenn.
Það varð að heimsfrétt þegar blaðamanni Atlantic var fyrir mistök bætt við Signal-spjall þar sem Pete Hegseth, stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna, og JD Vance varaforseti ræddu eldflaugaárásir í Jemen auk annarra.