Haft er eftir Georgi Arnari Halldórssyni þjálfara Kokkalandsliðsins í tilkynningu þess efnis: „Dagurinn gekk mjög vel og liðið stóð sig frábærlega þrátt fyrir ákveðna tæknilega erfiðleika hjá mótshöldurum,“ en vegna vandamála tengdum rafmagni í keppniseldhúsinu var framreiðslu seinkað um hálftíma.
Liðið keppti í gær í „heita eldhúsinu“ eða „Restaurant of Nations“ þar sem mikið reyni á skipulag og samvinnu liðsmanna. Verkefnið felst í því að elda þriggja rétta kvöldverð fyrir rúmlega hundrað gesti og dómara og hlaut liðið gull fyrir frammistöðu sína.
„Það er alltaf sérstakt að fylgjast með liðinu okkar stíga inn í keppniseldhúsið eftir allan þann undirbúning sem liggur að baki. Við vissum að liðið væri vel undirbúið en það er ekki síður mikilvægt að sjá hvernig það bregst við þegar hlutirnir ganga ekki alveg samkvæmt áætlun,“ er haft eftir Þóri Erlingssyni, forseta Klúbbs matreiðslumeistara.
„Liðið sýndi mikinn styrk í dag og það er alveg ljóst að þetta lið er komið hingað til að ná árangri. Við ætlum okkur alla leið.“
Úrslit ráðast ekki fyrr en í lok móts en liðið stefnir ótrautt á sæti á verðlaunapalli. Á þriðjudaginn keppir liðið í Chefs Table-keppninni. Þar verður íslenskur þorskur og lamb í forgrunni á diskum dómnefndar.
Sjá einnig: Matseðlar Kokkalandsliðsins afhjúpaðir – íslenskt hráefni í aðalhlutverki