Bikar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er til sýnis í Kringlunni í dag.
Bikarinn er einn sá þekktasti í fótboltaheiminum, er um meter á hæð og vegur tuttugu og fimm kíló.
Sigurjón Tómas Sigurðsson var búinn að bíða spenntur í margar klukkustundir eftir að berja bikarinn augum.
Emil Freyr Árnason, 8 ára, Hanna Sóley Hugadóttir og Halldór Smári Hugason 11 ára, voru líka búin að bíða spennt og ætla öll að verða atvinnumenn í fótbolta þegar þau verða stór.
Gyða Guðrún Halldórsdóttir var mætt með barnabörnin.
Bjartmar Pálsson sagðist vera spenntari en sonurinn, sem hafði þó dregið hann í Kringluna.
Vinirnir Sveinbjörn Benedikt Eggertsson og Haukur Guðmundsson voru líka spenntir.