Ríkisstjórnin verður ekki metin af því hvort einhverjir flakki milli flokka. Hún verður metin af verkum sínum. Hluti af því að vera í pólitík er að fara í erfið mál til að vinna í haginn fyrir framtíðina. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, fagnar því að fólk vilji að hún sé meira heima á Íslandi en telur ekki þörf á að hún hverfi úr utanríkisráðuneytinu til að sinna hlutverki sínu sem formaður flokksins. Hún segir toppinn í pólitíkinni vera að fara um landið og ræða við fólk og verður á ferðinni hér innanlands á næstunni.
Þorgerður Katrín: Við verðum dæmd af verkunum, ekki flokkaflakki einhverra einstaklinga