Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveit á Suðurnesjum hafi sinnt útkalli í Suðurnesjabæ þegar þakplata losnaði af húsi. Þá sinnir björgunarsveit á höfuðborgarsvæðinu nú útkalli í Kópavogi en klæðning hefur losnað af Turninum í Kópavogi. Enn standi vinna yfir.
Þá sé björgunarsveitin Bára á Djúpavogi á leið sinni inn í Hamarsdal að hjálpa kind sem sé í sjálfheldu.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust í nótt tilkynningar um foktjón, meðal annars um bárujárnsplötur sem höfðu fokið.
Á Breiðafirði er viðvörun í gildi til klukkan 14 í dag en hvassast er á Snæfellsnesi. Á miðhálendinu er viðvörun í gildi lengst, eða til klukkan 18 í kvöld. Búast má við vindhviðum allt að 35 til 40 metrum á sekúndu. Varasamar eða hættulegar aðstæður geta verið fyrir ferðamenn og útivistarfólk, segir á vef Veðurstofunnar, og er fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Hvassast er í efri byggðum á höfuðborgarsvæðinu og er viðvörun í gildi þar og á Faxaflóa til klukkan 13 í dag.