Þóra Björg Sirrýjardóttir hefur stutt vel við bakið á fólki sem hefur farið út af réttu brautinni. Hún þekkir líka vel veruleika þeirra. Neyslusaga hennar hófst þegar hún var táningur og varði meira og minna í tvo áratugi. Hún afplánaði í nokkur skipti í fangelsum, bæði kvennafangelsinu í Kópavogi og Kvíabryggju. Þóra er þakklát fyrir að hafa aldrei setið í Hólmsheiðarfangelsinu þar konur sem afplána dóma í lokuðu fangelsi eru vistaðar.
Þóra er meðal viðmælenda í áttunda þætti Betrunar á Rás 1. Í þættinum er fjallað um málefni kvenna í fangelsum landsins. Í þáttaröðinni Betrun er fjallað vítt og breitt um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð.
Hreinn Hákonarson, sem var fangaprestur í rúman aldarfjórðung, og Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, sem starfaði í nokkur ár í geðheilsuteymi fangelsanna, eru sammála um að staða kvenna í fangelsum sé verri en karla, ekki síst vegna þess að margar eiga börn og eins eru mjög margar langt leiddar í neyslu þegar þær fara í fangelsi. Þetta á við um íslenskar konur í fangelsum því flestar útlendu kvennanna eru svonefnd burðardýr og oft ekki með neina tengingu við landið aðra en að hafa tekið að sér að smygla fíkniefnum hingað.
Þóra, sem er 37 ára, segir að fyrstu tengslarofin í hennar lífi hafi orðið þegar hún flutti út á land með móður sinni en þær mæðgur bjuggu fyrstu æviár hennar hjá móðurforeldrum hennar. Þóra kynntist föður sínum um tíu ára aldur en segist samt aldrei hafa kynnst honum að neinu marki þrátt fyrir að hafa búið hjá honum um tíma. Stjúpfaðir hennar beitti hana ofbeldi og neyslan hófst fljótlega eftir að þær mæðgur fluttu aftur til Reykjavíkur eftir tæpan áratug á Norðurlandi.
Þóra segist hafa verið fyrirferðarmikið barn og tekið upp á ýmsu. Henni gekk vel að læra og það var aldrei vandamál þegar hún sinnti náminu. Hún segir að samspil þessa alls hafi sennilega haft mikil áhrif á hvernig líf hennar þróaðist. Heimilislífið sveiflaðist eftir því hvernig stjúpföður hennar leið, hvort þögn ríkti á heimilinu eða það var gargað allan tímann þegar hann var í landi.
Þóra prófaði að drekka áfengi 13 ára gömul og fann strax að það átti ekki við hana og henni fannst áfengi vont. Það voru engir himnar sem opnuðust og engin flugeldasýning, segir Þóra. Það var annað upp á teningnum þegar hún prófaði að reykja hass nokkrum vikum síðar. „Þá man ég eftir að ég var bara vá ég ætla að gera þetta aftur á morgun og ég gerði það.“ Hún bætir við: „Þarna byrjar mín saga.“
„Þetta var ömurlegur staður, ömurlegur“
Þessi saga varði í 20 ár og þróaðist að sögn Þóru á ljóshraða í byrjun. Í þættinum lýsir hún baráttu móður sinnar vegna áhættuhegðunar Þóru, Stuðlatímabilinu og því þegar hún var send til blóðföður síns í Noregi, þar sem henni leið mjög illa, og vanrækslu hans. Eftir dvölina þar var Þóra send á Laugaland í Eyjafirði sem er úrræði á vegum barnaverndar og heitir Varpholt í dag.
Þóra var á Laugalandi í 13 mánuði og segir að þar hafi ljótir hlutir gerst. Hún hafi lofað móður sinni öllu fögru bara ef hún þyrfti ekki að vera þar mínútu lengur. Stuttu eftir heimkomuna notaði Þóra vímuefni í æð í fyrsta skipti. „Sem segir mér líka að ef allt hefði verið í góðu á þessu heimili og mér liðið vel þá væri saga mín kannski allt öðruvísi. Ég efast um að stelpa sem hefði liðið vel og hefði gengið vel hafi bara farið að sprauta sig,“ segir Þóra í áttunda þætti Betrunar.
Það var ekki bara Þóra sem mátti þola hræðilega meðferð á Laugalandi og þær lentu margar á mjög ljótum stöðum eftir dvölina. „Þetta var ömurlegur staður, ömurlegur,“ segir h'un.
Stúlkurnar fóru á fund þáverandi mennta- og barnamálaráðherra og sögðu sögu sína. Þeim var lofað öllu fögru en síðan ekki söguna meir. „Maður hugsar bara, þarna er maður búinn að opna á þessi sár og maður er skilinn eftir með þessi sár. Og hvað svo? Á ekki að gera neitt meira? Það er frekar glatað.“
Eftir þetta sökk Þóra, sem þá var 16 ára, mjög djúpt í neyslu og varð að eigin sögn manneskja sem hún þekkti ekki einu sinni sjálf. Hún bjóð sér til ímynd sem var mjög hörð og ofbeldisfull til þess að komast af. „Ég er á götunni í átta ár, inn og út úr meðferðum en ekki að reyna að stoppa. Ég er bara inni í meðferðum til þess að reyna að fá að flytja heim til ömmu og afa eða heim til mömmu, milda einhverja fangelsisdóma eða fresta afplánun eða eitthvað svoleiðis. Mig langaði aldrei til þess að vera edrú sjálf. Mig langaði að langa það en það er ekki nóg.“
Fangelsið bjargaði sennilega lífi hennar
Árið 2011 fór Þóra í fyrsta skipti í fangelsi og segir að það hafi sennilega bjargað lífi hennar. Hún áttaði sig ekki á því fyrr en löngu síðar en nokkrum vikum eftir að hún lauk afplánun veiktist hún alvarlega og var vart hugað líf. Þóra rekur þetta tímabil í þættinum.
Eftir nokkrar vikur á spítala fékk hún að fara í meðferð á Krýsuvík en það varð ekki til þess að hún yrði edrú. „Ég var í viku á Krýsuvík þegar ég var búin að ná að ljúga að mömmu að það væru allir í meðferðinni að drekka litla kók í gleri. Hún lagði inn á mig fimm þúsund krónur og það var nóg fyrir mig fyrir næsta skammti.“ Þegar hún hugsar til baka þá gat hún varla gengið og átti hvergi heima en hún átti fyrir næsta skammti og það var það eina sem hún sá. Því þegar fólk er í virkri vímuefnaneyslu þá taki fíknin yfir allt annað.
Þóra átti eftir að fara aftur í kvennafangelsið í Kópavogi og síðar á Kvíabryggju og talar af mikilli hlýju um starfsfólkið í Kópavogi. Það hafi reynst henni vel alla tíð.
Hefur misst marga félaga
Þóra segir frá lífshlaupi sínu næstu árin í áttunda þætti Betrunar. Árið 2019 tókst henni að hætta allri neyslu og hún hefur reynst mörgum vel sem hafa verið í sömu sporum og hún. Hjarta hennar slær fyrir þennan hóp og það sem gera má betur í kerfinu.
Þóra segir að konur í fangelsum kvarti mikið undan aðgerðarleysi í afplánun. Hún telur að það þurfi að horfa meira til áfalla kvenna áður en þær fara í fangelsi. Ekki sé nóg að láta þær fá tíma hjá sálfræðingi heldur þurfi að fara fram úrvinnsla á sögu viðkomandi til þess að slík meðferð skili árangri. Annars endi fólk í sömu aðstæðum og það var í áður en það fór í fangelsi. Einstaklingsmiðaður stuðningur skipti máli enda er hópurinn fjölbreyttur.
Þóra hefur horft á eftir mörgum vinum undanfarna áratugi sem hafa látist eða horfið inn í heim geðveikinnar. Þóra varð að taka þá erfiðu ákvörðun að hætta að vera við jarðarför gamalla félaga þegar hún varð edrú. „Ef ég ætlaði að mæta í allar jarðarfarir hjá fólki sem ég þekkti þá yrði ég, því miður, ekki að gera neitt mikið annað.“
Hún segir að blöndun kynja eigi ekki að eiga sér stað innan fangelsanna og það eigi ekki að tvímenna í klefa. Í dag afplána konur í fangelsinu á Hólmsheiði og geta síðan farið á Sogn. Fjallað er nánar um það fangelsi í ellefta þætti Betrunar. Þegar dómþolar fara á Vernd eru þeir hluta af tímanum með öðrum í herbergi. Þar eru 16 herbergi, þar af átta tveggja manna herbergi.
Þrátt fyrir að kvenfangar geti verið með mjög ung börn með sér í afplánun þá myndi hún aldrei bjóða barni upp á að vera með foreldri í fangelsinu á Hólmsheiði. Hún hefur ekki setið þar inni en kemur oft þangað, meðal annars með Afstöðu, og hugsar þá með sér: „Úff ég gæti aldrei setið þarna inni. Mér finnst þetta rosalega kalt og það er ekkert sem tekur utan um mann þegar maður kemur þarna inn.“
Arndís Vilhjálmsdóttir geðhjúkrunarfræðingur starfaði meðal annars í geðheilsuteymi fangelsa þegar það var sett á laggirnar. Hún rannsakaði stöðu kvenna í fangelsum í meistaraprófsverkefni sínu við Háskólann á Akureyri.
Í rannsókninni, sem var eigindleg, ræddi Arndís við níu konur sem voru í fangelsi. Þær voru allar með mikla áfallasögu og í vímuefnaneyslu sem yfirleitt var rótin að afbrotasögu þeirra.
Ofbeldi, vændi og vímuefni
Lýsingar kvennanna í rannsókn Arndísar taka á. Ein þeirra lýsir samskiptum sínum við barnsföður sinn: „Fór svo í meðferð, entist þar í fimm vikur, fór í bæjarleyfi til að fara til tannlæknis, við [barnsfaðirinn] lentum í slagsmálum og hann handleggsbraut mig. Sérsveitin kom heim og handtók hann og þá flosnaði ég bara upp úr meðferðinni. Það leið vika, þá kom hann bara og sótti mig með hrúgu af kókaíni. Síðan reyndi ég að fara aftur í meðferð, þá sótti hann mig eftir viku.“
Ofbeldið var ekki einungis í nánum samböndum. „Ég hef verið í sambandi í eitt og hálft ár en fyrir það þá var ég að stunda vændi, ég var líka með körlum, sofa hjá til þess að fá húsaskjól og dóp. Maður leitast bara eftir því, þá er maður bara góður.“
Ein lýsir því að hafa þurft að þrauka á götunni og komast ekki í næturathvarf: „Sérstaklega á nóttunni, að komast, til dæmis ef það var seint, að komast ekki á Konukot, bara ef það var kalt og komast hvergi inn. Þetta er bara harka, maður er að gera hluti sem maður vill ekki gera, til að ná sér í efni. Þetta snýst bara um það.“
Hluti kvennanna sem Arndís ræddi hafa látist og hún segir það vera í samræmi niðurstöður rannsókna, fólk sem hefur orðið fyrir svona reynslu lifir skemur.
Mesta áfall kvennanna var staða barnanna. Þær höfðu eignast börn og jafnvel misst þau frá sér. Arndís segir að úrræðin séu allt önnur fyrir konur í fangelsum en karla. Þetta komi skýrt fram í skýrslum frá opinberum aðilum undanfarin ár. Enginn meðferðargangur sé fyrir konur í fangelsum og mun minni möguleikar á námi á Hólmsheiði, þar sem þær eru vistaðar, enda aðeins fjarnám í boði þar ólíkt því sem er á Litla-Hrauni og Sogni. Arndís segir Fangaverk hafi breytt miklu fyrir konurnar, að hafa eitthvað fyrir stafni.
Arndís ræðir í þættinum um viðhorf til og aðstæður fólks sem vistað er í fangelsum. Hún er fegin því að uppsetnin gagnavers í nágrenni við fangelsið á Hólmsheiði hafi verið stoppuð af. Í umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur kemur fram að fangar séu viðkvæmur hópur með ýmsar áskoranir. Þeir séu ekki í aðstöðu til að fara annað til að komast frá ónæðinu. Fangarnir á Hólmsheiði fái að stunda útivist innan afmarkaðs svæðis og mjög líklegt sé að hljóð frá gagnaveri bærist þangað.
„Það segir okkur líka hvað okkur, sem samfélagi, finnst um þennan hóp. Að okkur finnist bara allt í lagi að koma upp einhverju gagnaveri rétt hjá þar sem einstaklingar eru frelsissviptir og komast hvergi,“ segir Arndís.
Að sögn Arndísar er staða kvenna í íslenskum fangelsum sambærileg því sem gerist annars staðar. Þær eru eldri en karlarnir þegar þær fara fyrst í fangelsi og með meiri geðrænan vanda en þeir. Hún nefnir kvíða, þunglyndi, áfallastreituröskun og taugaþroskaraskanir.
Hún nefnir fjársvelt heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfi sem þýði að oft sé ófaglært fólk að vinna með þeim sem þurfi stuðning. Þeir sem fremja afbrot og fá dóma hafa oft verið í kerfinu allt frá barnsaldri.
Hefur áhrif á fjölmarga
Hreinn Hákonarson var fangaprestur þjóðkirkjunnar í rúman aldarfjórðung, frá 1993 til 2019. Hann segir að starf fangaprests sé víðáttumikið, fyrsta hlutverk hans sé að sálusorga fanga og aðstandendur þeirra og sjá um helgihald innan fangelsanna. Fangaprestar sinna einnig mörgum öðrum verkefnum sem tengjast föngum.
Hreinn segir að þegar einn maður fer í fangelsi hafi það áhrif á miklu fleiri, svo sem fjölskyldur og vini. Staða kvenna í fangelsum sé oft erfiðari en karla. Margar þeirra eigi börn og þær eigi jafnvel í útistöðum við barnaverndaryfirvöld eða í forræðisdeilum við feður barnanna. Karlfangar eigi auðvitað börn líka og sakni þeirra en hafi ekkert endilega verið í sambandi við þau áður en þeir fóru í fangelsi.
Þegar Hreinn var fangaprestur voru dæmi um að konur væru barnhafandi þegar þær komu í fangelsi og eins að þær yrðu þungaðar í afplánun. Í þættinum rifjar hann upp konu sem kom með nýfætt barn inn í fangelsið og hann skírði.
Staða kvenna sé oft önnur en karla í undirheimunum þar sem karlarnir fóðri þær á fíkniefnum til að halda þeim undirgefnum og stjórna þeim. Hreinn segist telja kynjaskiptingu í fangelsum af hinu góða því oft myndist spenna á milli fanga þegar konur og karlar eru höfð innan sama fangelsis líkt og stundum hefur verið.
Fangelsið á Kópavogsbraut 17 var tekið í notkun í apríl 1989. Þar var áður unglingaheimili ríkisins. Allir kvenfangar voru vistaðir þar en einnig karlfangar. Hægt var að hafa þar 12 fanga ef allir klefar voru nýttir og á þessum tíma voru yfirleitt ekki nema 4-5 konur í afplánun. Því var fljótlega ákveðið að vista einnig karla þar. Eins og Hreinn kemur inn á í áttunda þætti Betrunar var reynt að velja fremur rólega karlfanga, með styttri dóma að jafnaði, menn sem gátu unnið og höfðu ekki brotið af sér með því að beita konur eða börn ofbeldi. Kvennafangelsinu í Kópavogi var lokað í maí 2015.
Árið 2023 gaf umboðsmaður Alþingis út skýrslu sem var unnin á grundvelli eftirlits OPCAT með stöðum þar sem frelsissviptir einstaklingar dvelja. Sjónum var sérstaklega beint að aðbúnaði og aðstæðum kvenna í fangelsum og hvernig afplánun horfir við þessum hópi í samanburði við karla.
Eins og staðan er núna eru kvenfangar eingöngu vistaðir í tveimur af þeim fjórum fangelsum sem Fangelsismálastofnun rekur; á Hólmsheiði og Sogni. Í skýrslunni er fjallað um aðbúnað, þjónustu og öryggi í framangreindum fangelsum og komið á framfæri ábendingum og tilmælum til viðeigandi aðila. Þar var meðal annars þeim tilmælum beint til stjórnvalda að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að kvenfangar hefðu í reynd sömu möguleika og karlar á að afplána í opnu fangelsi við viðunandi aðstæður. Í kjölfarið var rýmum fyrir konur fjölgað í fangelsinu á Sogni. Þar dvelja nú sex konur en til stendur að byggja við og fjölga rýmum fyrir konur í sjö, það er um eitt frá því sem nú er. Þær verða í sérbyggingu og því meiri aðskilnaður á milli kynja en í dag. Nánar er fjallað um fangelsið á Sogni í ellefta þætti Betrunar og Hólmsheiðarfangelsið kemur við sögu í mörgum þáttum en alls verða þættirnir tólf talsins.
Betrun er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudögum. Hægt er að hlusta á 8. þáttinn í heild hér fyrir ofan.