Ælufælni: Konur að fara í fóstur­eyðingu og fólk van­nært af ótta - Vísir

Ælufælni: Konur að fara í fóstur­eyðingu og fólk van­nært af ótta - Vísir

Ælufælni: Konur að fara í fóstur­eyðingu og fólk van­nært af ótta - Vísir

Já: ÆLUFÆLNI er til.

Og eins og orðið gefur til kynna, byggir ælufælni á ótta við uppköst. Sín og annarra.

Alvarlegustu dæmin um ælufælni eru þegar fólk er verulega vannært vegna vandans eða fer í fóstureyðingu af ótta við ógleði á meðgöngu, en um 5% hafa gert það síðarnefnda. 

Við höfum alveg séð dæmi um þetta á KMS,“ 

segir dr. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, yfirsálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni.

Sóley og Sigurbjörg J. Ludvigsdóttir sálfræðingur hafa prófað nýja meðferð við ælufælni sem lofar góðu.

„Mjög líklega er ælufælni vangreind, því einkennin skarast við einkenni annarra raskana. Ælufælni á margt sameiginlegt með OCD, sem er þráhyggju- og árátturöskun, en líka heilsukvíða og ofsakvíða, þar sem fólk hræðist viss líkamseinkenni,“ segir Sigurbjörg.

Einkenni og upphaf ælufælni

Það fyrsta sem við þurfum að gera er að skilja betur hvað þetta fyrirbæri – ælufælni – er.

„Ælufælni einkennist af miklum ótta við það að kasta upp eða verða vitni að uppköstum annarra. Oftast er óttinn þó sá að maður muni sjálfur kasta upp á endanum,“ segir Sigurbjörg.

Ælufælni er fremur sjaldgæf en er sennilega sú fælni sem er mest hamlandi og sú sem fólk leitar sér oftast aðstoðar við.

„Því sjáum við þennan vanda reglulega á KMS,“ segir Sóley og bætir við:

Það sem gerir ælufælni svona erfiða er að fólk hræðist bæði ýmislegt sem bærist innra með því eins og magaónot eða ógleði og hluti eða aðstæður í umhverfinu eins og að vera einhvers staðar þar sem maður gæti veikst. 

Það er auðveldara að forðast hluti sem eru bara í umhverfi manns, eins og köngulær.“

Sem dæmi um hvað ælufælni á sameiginlegt með þráhyggju- og árátturöskun, OCD, segir Sigurbjörg:

„Margir þvo sér óhóflega um hendur, sótthreinsa yfirborðsfleti og forðast að hugsa eða tala um ógleði og ælupestir. Þá er hjátrúarfull hegðun stundum til staðar, eins og að ganga ekki í gulu eða sniðganga hugsanir um veikindi. Sem sé að varast að ‚jinxa‘ hlutunum.“

„Fólk hefur viðvarandi áhyggjur af því að veikjast og um 80% fá óþægilegar hugsanir og sjá jafnvel fyrir sér það sem þau óttast mest,“ segir Sóley.

Mikill ótti og vanlíðan fylgja ælufælni.

„Fólki er misjafnlega ljóst hvað það óttast mest að gerist við uppköst, en algengt er að óttast að missa stjórn á sér, falla í yfirlið, kafna, fá kvíðakast eða vekja viðbjóð hjá öðrum,“ segir Sóley.

Sigurbjörg segir ælufælni eiga margt sameiginlegt með OCD en líka aðrar raskanir eins og heilsukvíða og ofsakvíða þar sem fólk hræðist viss líkamseinkenni. Mjög líklega sé ælufælni vangreind.  Vísir/Vilhelm

Hvers vegna ælufælni?

Sóley og Sigurbjörg segja ekki vitað fyrir víst hversu algeng ælufælni er.

Í hollenskri rannsókn sýndu niðurstöður að 8,8% þátttakenda óttuðust uppköst. Það er þó ekki það sama og að vera með ælufælni en eldri rannsóknir benda til þess að um 0,1% fólks sé með ælufælni.

Langflestir með ælufælni eru konur, eða níu af hverjum tíu.

Algengast er að vandinn hefjist í æsku – eða við tíu ára aldurinn að meðaltali.

„Konur eru sérstaklega útsettar fyrir vandann, en konur virðast klígjugjarnari en karlar, uppteknari af hreinlæti og því líklegri til að þróa með sér þvottaáráttu og mögulega ælufælni,“ segir Sóley.

Sigurbjörg segir ælufælni geta tengst slæmri reynslu, til dæmis því að hafa fengið slæma gubbupest sem barn eða orðið fyrir harkalegum viðbrögðum eða niðurlægingu við það að kasta upp til dæmis í skólanum. Þá geti börn þróað með sér ælufælni við að horfa upp á einhvern nákominn veikjast illa, til dæmis af salmonellusýkingu.

Sóley segir konur útsettari fyrir ælufælni og séu í miklum meirihluta. Þær séu almennt klígjugjarnari en karlmenn. Algengt er að ælufælni taki sig upp í æsku, meðalaldur tíu ára.Vísir/Vilhelm

Alvarlegar afleiðingar

Það er hræðilegt til þess að vita að konur séu að fara í fóstureyðingu eða fólk að verða vannært af ótta við að æla.

Þetta er þó hin sorglega og alvarlega staðreynd.

„Líf fólks með ælufælni verður undirlagt,“ segir Sóley og nefnir að algengt sé að fólk forðist vissar fæðutegundir, staði sem virðast ótryggir, ferðalög, ákveðin farartæki, umgengni við veikt eða ölvað fólk, inntöku lyfja eða aðstæður sem það tengir við veikindi, svo sem spítala eða biðstofur lækna.

Stundum hefur fólk með ælufælni ranglega verið greint með átröskun. 

Sumir sem haldnir eru ælufælni eru í undirþyngd vegna þess að þeir forðast svo margar fæðutegundir. 

Eða þeir geta aðeins borðað lítið í einu, því þeir óttast að verða bumbult borði þeir mikið,“ 

segir Sigurbjörg.

Margir eru líka með nánast stöðuga ógleði. Sem lýsir því vel hversu mikill óttinn er, hversu lengi hann hefur staðið og það að vera jafnvel undir æskilega kjörþyngd.

Þá er algengt að fólk með ælufælni glími við annan vanda líka, svo sem aðrar kvíðaraskanir og þunglyndi.

„Þetta skerðir auðvitað lífsgæði fólks verulega,“ segir Sóley.

Hér er áhugavert viðtal við Sóley um fullkomnunaráráttu.

Meðferðin tekur fjóra daga

Meðferðin sem Sóley og Sigurbjörg hafa verið að prófa með góðum árangri tekur aðeins fjóra daga. Hún byggir á meðferð sem á uppruna sinn að rekja til Bergen í Noregi og hefur á undanförnum árum vakið alþjóðlega athygli sem árangursrík meðferð við þráhyggju- og árátturöskun, OCD.

Sem betur fer eru leiðir til að sporna við ælufælni. Sóley og Sigurbjörg segja frá árangursríkri meðferð frá Bergen í Noregi, sem aðeins tekur fjóra daga. Doktorsverkefni Sóleyjar fjallaði einmitt um innleiðingu meðferðarinnar á Íslandi og hvort hún væri álíka árangursrík hérlendis og í Noregi.

„Á árunum 2018 til 2023 fóru 86 manns með OCD í gegnum meðferðina hjá KMS. Af þeim svöruðu 95 % meðferðinni, það er að segja voru betri að henni lokinni, og álíka margir voru mjög ánægðir með hana,“ segir Sóley. Um 68 % uppfylltu viðmið um bata og hélst árangurinn við eins árs eftirfylgd.

Í kjölfarið ákváðu Sóley og Sigurbjörg að kanna hvort meðferðin gæti einnig gagnast við ælufælni.

„Niðurstöður voru þær að allir svöruðu meðferð og 80 % þeirra sem fóru í gegnum hana náðu viðmiðum um bata,“ segir Sigurbjörg.

„Þetta var samt lítil rannsókn með fáum þátttakendum og nauðsynlegt er að endurtaka hana með fleirum. En þetta er betri árangur en í þeim fáu rannsóknum sem gerðar hafa verið erlendis. Við vitum ekki enn hvort meðferðin er öflugri, það þarf að rannsaka þetta betur. En hún lofar mjög góðu,“ segir Sóley.

Hér má lesa gagnlegt viðtal við Sóleyju um OCD.

Góðu ráðin

Við fengum Sóleyju og Sigurbjörgu til að gefa okkur góð ráð, ef við teljum okkur glíma við ælufælni.

1. Leitaðu þér aðstoðar. Ælufælni er ein sú fælni sem fólk leitar sér oftast aðstoðar við og vel má ná tökum á vandanum.

2. Ekki óttast meðferðina. „Fólk er oft hrætt við að koma til meðferðar en vandinn er skoðaður í rólegheitum í tvö til þrjú skipti áður en meðferð hefst og fólk stýrir sjálft ferðinni. Það er með öðrum orðum aldrei neytt til að gera hluti sem það vill ekki. Því er um að gera að koma í matsviðtal og skoða möguleikana,“ segir Sigurbjörg.

3. Þú þarft ekki að vita orsökina. „Það þarf ekki að vita hvað orsakaði vandann til að laga hann,“ segir Sóley.

Sóley og Sigurbjörg segja ælufælni mjög lífshamlandi. Sumir séu langt undir kjörþyngd því þeir forðist að borða margar fæðutegundir og fleira af ótta við að æla. Sóley og Sigurbjörg hvetja fólk til að leita sér aðstoðar, það þurfi ekkert að skilja hvers vegna ælufælnin sé heldur fyrst og fremst að kveða hana í kútinn.Vísir/Vilhelm

4. Veldu meðferð sem virkar. Hugræn atferlismeðferð er öflugasta og mest rannsakaða úrræðið við ælufælni. Fjögurra daga meðferðin sem var nefnd hér að ofan er veitt bæði sem einstaklingsmeðferð og í hópi.

5. Ekki pína þig áfram. „Það er ekki sama hvernig þetta er gert, því margir hafa pínt sig til að gera alls konar hluti og það hefur alltaf verið jafn erfitt,“ segir Sigurbjörg.

6. Lærðu hvernig kvíðinn virkar. „Í meðferðinni er kennd tækni til að bregðast öðruvísi við kvíðanum en áður, þannig að hann fari minnkandi. Um leið og maður veit hvernig kvíðavandinn virkar má fara að breyta viðbrögðunum, þannig að önnur skilaboð séu send inn í kvíðakerfið,“ segir Sóley.

#fara #fólk #fóstureyðingu #konur #ælufælni


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262965586d/aelufaelni-konur-ad-fara-i-fostur-eydingu-og-folk-van-naert-af-otta

📰 Aðrar fréttir

Hlébarði of gamall til að fara í megrun – Fær að vera feitur og hamingjusamur
📅 23.11.2026 👁️ 1
Hlébarði of gamall til að fara í megrun – Fær að vera feitur og hamingjusamur
Hlébarðinn Pan Babobao í dýragarðinum í Panzhihua í Kína hefur vakið mikla eftirtekt að undanförnu fyrir holdarfar sitt. Dýragarðsverðirnir segja hann...
Íris varar við lúmskri gildru á Black Friday – Fimm atriði sem allir ættu að hafa í huga
📅 23.11.2026 👁️ 1
Íris varar við lúmskri gildru á Black Friday – Fimm atriði sem allir ættu að hafa í huga
Svikarar undirbúa sig nú fyrir Black Friday rétt eins og verslanir og neytendur. Með ótrúlegum tilboðum, fölskum netverslunum og skilaboðum um vörusen...
Stefán Einar hjólar í Þorgerði Katrínu sem talar um dylgjur – „Að hverju er verið að ýja hér?“
📅 23.11.2026 👁️ 1
Stefán Einar hjólar í Þorgerði Katrínu sem talar um dylgjur – „Að hverju er verið að ýja hér?“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra brást illa við þegar Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hana út í ráðningu Heið...
Ó­þekkt efni batt enda á tón­leika - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 1
Ó­þekkt efni batt enda á tón­leika - Vísir
Tónleikagestir hafa margir hverjir lýst því í samtali við breska fjölmiðla að þeir hafi talið reykinn hluta af tónleikunum. Gamanið kárnaði hins vegar...
Ekkert vitað hvernig íslenskur maður veiktist af creutzfeldt-jakob
📅 23.11.2026 👁️ 1
Ekkert vitað hvernig íslenskur maður veiktist af creutzfeldt-jakob
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu ekki unnt að segja til um ástæður þess að íslenskur karlmaður smita...
Man faces €15,000 in fines over graffiti in Tenerife
📅 23.11.2026 👁️ 1
Man faces €15,000 in fines over graffiti in Tenerife
A 26-year-old man faces fines totalling up to €15,000 over 10 alleged incidents of graffiti on public and private property in Santa Cruz de Tenerife. ...
Tjörnesingar og milljónirnar: Sólarsellur handa öllum?
📅 23.11.2026 👁️ 1
Tjörnesingar og milljónirnar: Sólarsellur handa öllum?
Tjörneshreppur er fámennasta sveitarfélag landsins með 54 íbúa. Innan við 100 íbúar eru í tveimur öðrum sveitarfélögum. Í Árneshreppi búa 60 og í Skor...
Sprengjuhótanir bárust stofnunum og fyrirtækjum í morgun – lögreglan telur ekki ástæðu til frekari aðgerða
📅 23.11.2026 👁️ 1
Sprengjuhótanir bárust stofnunum og fyrirtækjum í morgun – lögreglan telur ekki ástæðu til frekari aðgerða
Ríkislögreglustjóri tilkynnti í dag að ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hafi borist sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. „Lögreglan tekur allar slíkar...
Má heita Hrafnhljóð en ekki Yrma - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 1
Má heita Hrafnhljóð en ekki Yrma - Vísir
Nöfnin tvö sem nefndin hafnaði að þessu sinni voru Hinrick og Yrma. Eiginnafnið Hinrick er ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls þar sem bó...
Björguðu eftirlegukindum úr sjálfheldu í Hamarsá
📅 23.11.2026 👁️ 1
Björguðu eftirlegukindum úr sjálfheldu í Hamarsá
Þrjár kindur hefðu hlotið sorglegan dauðdaga ef ekki hefði verið fyrir sjö manna flokk frá björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi. Ærnar hröktust út í Ha...
Skoða hvort sprengju­hótanir í morgun tengist fyrri hótunum - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 1
Skoða hvort sprengju­hótanir í morgun tengist fyrri hótunum - Vísir
Í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra segir að í morgun hafi ýmsum stofnunum og fyrirtækjum borist sprengjuhótanir í tölvupósti. Lögreglan taki allar ...
Jennifer Lawrence segir þennan MAGA stuðningsmann versta kyssarann – Óþægilegt kynlílfsatriði
📅 23.11.2026 👁️ 2
Jennifer Lawrence segir þennan MAGA stuðningsmann versta kyssarann – Óþægilegt kynlílfsatriði
Jennifer Lawrence segir leikarann Chris Pratt þann versta sem hún hafi þurft að kyssa. Lawrence lýsir óþægilegu kynlífsatriði með Pratt, sem þykir hal...
Missti titilinn eftir að hópspjallið lak - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 1
Missti titilinn eftir að hópspjallið lak - Vísir
Quyhn Ahn var krýnd í Víetnam í byrjun október en hélt titlinum þó í mjög stuttan tíma þar sem einhver lak einkaskilaboðum frá henni. Þar talaði hún i...
Mark­miðið ó­breytt þrátt fyrir ó­einingu á COP31 - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Mark­miðið ó­breytt þrátt fyrir ó­einingu á COP31 - Vísir
Þrýstingurinn á að ríki heims gyrði sig í brók og grípi til frekari aðgerða til þess að koma böndum á hnattræna hlýnun hefur aldrei verið meiri, þó að...
Musk dreifði færslu um Ísland – hún segir jafnrétti virðast þýða „yfirráð kvenna“
📅 23.11.2026 👁️ 2
Musk dreifði færslu um Ísland – hún segir jafnrétti virðast þýða „yfirráð kvenna“
Klukkan 01:33 aðfaranótt mánudags endurbirti Elon Musk  færslu bandaríska pistlahöfundarins Lisu Britton um að jafnrétti kynjanna á Íslandi virðist í ...
ÁTVR byrjar að bjóða upp á heimsendingu á áfengi
📅 23.11.2026 👁️ 2
ÁTVR byrjar að bjóða upp á heimsendingu á áfengi
Frá og með deginum í dag, 23. nóvember, mun ÁTVR bjóða upp á heimsendingu á vörum úr vefverslun. Boðið hefur verið upp á pantanir úr verslunum Vínbúða...
Matvælastofnun varar við vinsælu jólasmákökudeigi
📅 23.11.2026 👁️ 2
Matvælastofnun varar við vinsælu jólasmákökudeigi
Matvælastofnun varar við neyslu á öllum framleiðslulotum af jólasmákökudeigi, Þristakökum með vörumerkinu Evu Laufey sem Myllan framleiðir vegna málml...
Nauðgaði andlega fatlaðri konu
📅 23.11.2026 👁️ 2
Nauðgaði andlega fatlaðri konu
Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun, kynferðislega áreitni og brot gegn blygðunarsemi. Manninum er gefið að sök að hafa í fjölda skipta á ...
Stofnunum og fyrirtækjum bárust sprengjuhótanir í morgun
📅 23.11.2026 👁️ 2
Stofnunum og fyrirtækjum bárust sprengjuhótanir í morgun
Ýmsum stofnunum og fyrirtækjum bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í kjölfar fyrirspurnar frétta...
Þremur hótelum og einni stofnun bárust sprengjuhótanir í morgun
📅 23.11.2026 👁️ 1
Þremur hótelum og einni stofnun bárust sprengjuhótanir í morgun
Ýmsum stofnunum og fyrirtækjum bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í kjölfar fyrirspurnar frétta...
Gugga komin á fast - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 1
Gugga komin á fast - Vísir
Helber er fæddur árið 2006 og er samningsbundinn hjá Fylki en var lánaður til Víkings Ólafsvíkur í sumar.  View this post on Instagram A post shared b...
Ásakanir um dylgjur og aðdróttanir
📅 23.11.2026 👁️ 3
Ásakanir um dylgjur og aðdróttanir
„Í rauninni kemur mér ekkert lengur á óvart sem kemur úr ranni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðhe...
Hægt að panta áfengi heim frá ÁTVR
📅 23.11.2026 👁️ 2
Hægt að panta áfengi heim frá ÁTVR
ÁTVR býður upp á heimsendingu á vörum úr vefverslun frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR. Þar segir að boðið hafi verið u...
Sjúkraskrárkerfi Landspítalans lá niðri
📅 23.11.2026 👁️ 2
Sjúkraskrárkerfi Landspítalans lá niðri
Heilsugátt Landspítalans lá niðri í rúmlega korter laust eftir hádegið. Heilsugátt er rafrænt sjúkraskrárkerfi í eigu spítalans.Fréttastofu hafa boris...
Björn Bragi selur lúxusíbúð í Skugga­hverfinu - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Björn Bragi selur lúxusíbúð í Skugga­hverfinu - Vísir
Íbúðin er í fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2006. Hún var endurhönnuð árið 2019 og sá Hafsteinn Júlíusson hjá HAF Studio um hönnun. Björn Braga þarf ...
Don Toliver postpones London O2 arena show after Manchester evacuation
📅 23.11.2026 👁️ 2
Don Toliver postpones London O2 arena show after Manchester evacuation
Don Toliver's show on Sunday was evacuated after an "unknown substance" was released into the crowd.
Ukraine war: How drone attacks on Russian ships in Libya unfolded
📅 23.11.2026 👁️ 3
Ukraine war: How drone attacks on Russian ships in Libya unfolded
Two Russian ships were hit by Ukrainian drones in Libya on Sunday, with verified videos showing huge fireballs, smoke plumes and sea drones attacking ...
Fær að setjast aftur í forstjórastólinn
📅 23.11.2026 👁️ 2
Fær að setjast aftur í forstjórastólinn
Stjórn Nvidia tilkynnti í dag að hún ætlaði að skipa Jensen Huang aftur í starf forstjóra félagsins.Endurráðning Huangs hlaut einróma samþykki stjórna...
Hver einasta króna til Semu - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Hver einasta króna til Semu - Vísir
Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og stjórnarformaður Miðeindar, hlaut verðlaunin á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember síðastliðinn. Hann er 31. han...
„Hvers konar dylgjur og hálf­kveðnu vísur eru þetta eigin­lega?“ - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
„Hvers konar dylgjur og hálf­kveðnu vísur eru þetta eigin­lega?“ - Vísir
Ólafur hóf mál sitt á að tala um að hin meinta barátta ríkisstjórnarinnar gegn sérhagsmunum í þágu almannahagsmuna tæki á sig furðulegri myndir með hv...
Spjallið með Frosta Logasyni | Gervigreindin tekur yfir – hverjir halda vinnunni?
📅 23.11.2026 👁️ 2
Spjallið með Frosta Logasyni | Gervigreindin tekur yfir – hverjir halda vinnunni?
Hvað gerist þegar gervigreindin getur séð um matarinnkaupin, smíðað forrit og tekið að sér verkefni sem hingað til hafa krafist heilu starfsteymanna? ...
Rússar vara við frekari stigmögnun á Eystrasalti
📅 23.11.2026 👁️ 2
Rússar vara við frekari stigmögnun á Eystrasalti
Dmitry Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda í Kreml, varaði í morgun við stigmögnun átaka á Eystrasalti eftir að finnsk stjórnvöld greindu frá því...
Björn Ingi segir þetta hafa verið skelfileg mistök: „Það er svo kalt í lauginni“
📅 23.11.2026 👁️ 2
Björn Ingi segir þetta hafa verið skelfileg mistök: „Það er svo kalt í lauginni“
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins, segir að það hafi verið skelfileg mistök af hálfu ríkisstjó...
Laus úr fangelsi 14 árum eftir harmleikinn – 32 létust
📅 23.11.2026 👁️ 2
Laus úr fangelsi 14 árum eftir harmleikinn – 32 létust
Francesco Schettino, fyrrverandi skipstjóri skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, hefur verið látinn laus úr fangelsi á Ítalíu. Schettino var dæmdur í...
Greip tæki­færið og nýtti sönginn á sviðinu - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Greip tæki­færið og nýtti sönginn á sviðinu - Vísir
Ungfrú alheimur fer fram í 75. skiptið í José Miguel Agrelot-íþróttahöllinni í San Juan í Púertó Ríkó í ár og taka rúmlega hundrað lönd þátt. Keppnin ...
Skortur á við­vörun um mengað hveiti vekur furðu - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Skortur á við­vörun um mengað hveiti vekur furðu - Vísir
Vísir greindi í síðustu viku frá hveitiskandal í Danmörku eftir að ummerki eftir dýr og myglu fundust í korngeymslum Danish Agro sumarið og haustið 20...
Man dies after being pulled from sea in Fuerteventura
📅 23.11.2026 👁️ 2
Man dies after being pulled from sea in Fuerteventura
A man has died after being rescued from the sea at Playa de Los Pozos in Puerto del Rosario, Fuerteventura,  yesterday afternoon (Sunday).The incident...
Vilhjálmur Þorsteinsson ætlar að láta verðlaunafé Jónasar Hallgrímssonar renna til varnar Semu Erlu
📅 23.11.2026 👁️ 2
Vilhjálmur Þorsteinsson ætlar að láta verðlaunafé Jónasar Hallgrímssonar renna til varnar Semu Erlu
Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og stjórnarformaður máltæknifyrirtækisins Miðeindar, segist ætla að láta verðlaunafé Verðlauna Jónasar Hallgrímsson...
„Ég sé ekki alveg stóra glæpinn í þessu“
📅 23.11.2026 👁️ 2
„Ég sé ekki alveg stóra glæpinn í þessu“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hafnar því að ekki hafi verið greitt fyrir hlut hans í strandveiðiútgerðinni Sleppu hf. Hann segir að s...
Ætla að stækka flugvöllinn á Kastrup umtalsvert
📅 23.11.2026 👁️ 2
Ætla að stækka flugvöllinn á Kastrup umtalsvert
Til stendur að stækka Kaupmannahafnarflugvöll umtalsvert. Áætlanir gera ráð fyrir að flugvöllurinn geti tekið á móti 55 milljónum farþega árlega að fr...
Rak við á Tjóðsavninu - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Rak við á Tjóðsavninu - Vísir
En einnig skelltu þeir sér á Tjóðsavnið í Þórshöfn. Þar kom í ljós að þeir höfðu misst tökumanninn sinn á Kanye West-tónleika í Madríd og maginn á Ste...
Telur Evrópu hafa mun minna vægi en áður
📅 23.11.2026 👁️ 2
Telur Evrópu hafa mun minna vægi en áður
Leiðtogar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína komu saman í fyrsta sinn á sögulegum fundi í Shenzhen í Kína í síðustu viku. Ekki virðast hafa verið stigin...
Forsætisráðherra Tékklands gagnrýnir 100 milljarða evra aðstoð ESB við Úkraínu – segir eigin aðildarríki sitja á hakanum
📅 23.11.2026 👁️ 2
Forsætisráðherra Tékklands gagnrýnir 100 milljarða evra aðstoð ESB við Úkraínu – segir eigin aðildarríki sitja á hakanum
Forsætisráðherra Tékklands gagnrýnir 100 milljarða evra aðstoð ESB við Úkraínu – segir eigin aðildarríki sitja á hakanum Fréttin23. nóvember 2026Erlen...
Ættu frekar að styðja fyrirtækin en sekta þau vegna árása
📅 23.11.2026 👁️ 2
Ættu frekar að styðja fyrirtækin en sekta þau vegna árása
Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækisins 1984, hrósar viðbrögðum CERT-IS við netárásinni sem gerð var fyrir helgi en kallar eftir...
Two migrant boats arrive in south Tenerife
📅 23.11.2026 👁️ 2
Two migrant boats arrive in south Tenerife
Two migrant boats arrived at the Port of Granadilla in south Tenerife this morning (Monday), after making their way across the Atlantic without assist...
Marta hefur búið hér í 18 og hálft ár – missti af prófinu á tveimur tímum
📅 23.11.2026 👁️ 2
Marta hefur búið hér í 18 og hálft ár – missti af prófinu á tveimur tímum
Marta Cąber hefur búið á Íslandi í 18 og hálft ár, stundar nám á íslensku við Háskóla Íslands og er forstöðumaður frístundaskólans Ösp við Njarðvíkurs...
Hlakkar til fleiri ævin­týra með Kára - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Hlakkar til fleiri ævin­týra með Kára - Vísir
„Ég elska þig meira með hverju ári ástin mín og hlakka til að skrifa saman fleiri ævintýri í söguna okkar,“ skrifar Eva í færslu á Instagram og birtir...
Viðvörun í tölvunni kostaði hann rúman milljarð – Lögreglan leitar nú manns
📅 23.11.2026 👁️ 2
Viðvörun í tölvunni kostaði hann rúman milljarð – Lögreglan leitar nú manns
67 ára karlmaður í New York varð fyrir barðinu á ótrúlegri svikamyllu þegar hann var blekktur til að kaupa gullstangir fyrir níu milljónir Bandaríkjad...
Sigurjón svarar fyrir viðskiptin: „Það er ekkert í þessu nema illvilji Moggans“
📅 23.11.2026 👁️ 2
Sigurjón svarar fyrir viðskiptin: „Það er ekkert í þessu nema illvilji Moggans“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hafnar fullyrðingum Morgunblaðsins um að hann hafi gefið rangar upplýsingar um sölu útgerðarfélagi sínu...
Þorgerður og falsreikningur Heiðu
📅 23.11.2026 👁️ 2
Þorgerður og falsreikningur Heiðu
Þorgerður og falsreikningur Heiðu Fréttin23. nóvember 2026Fjármál, Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Heiða...