Gular veðurviðvaranir eru í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og miðhálendið. Viðvaranirnar gilda fram á hádegi og þar til klukkan 14:00 við Breiðafjörð og til klukkan 18:00 á miðhálendinu. Veðurstofan varar við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og vestanlands fram eftir degi.
Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, t.d. nærri Eyjafjöllum, á Reykjanesi, við Esju og Hafnarfjall og á Snæfellsnesi. Vindur getur verið varasamur fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi.
Nánari upplýsingar má finna á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu í dag
Suðaustan 13-23 m/s, hvassast í vindstrengjum á Suður- og Vesturlandi. Víða rigning, en þurrt um landið norðaustanvert. Dregur úr vindi eftir hádegi. Hiti víða 5 til 10 stig þegar kemur fram á daginn.
Suðaustan 10-18 m/s á morgun og rigning eða súld, en lengst af þurrt á Norður- og Norðausturlandi. Áfram hlýtt í veðri.