Fyrsti gestur Páls að þessu sinni er Gunnar Haraldsson hagfræðingur og fyrrverandi formaður Fjármálaráðs til áratugar. Þeir ræða stöðuna í efnahagsmálum sem brennur á landsmönnum.
Þá verður farið yfir það sem stendur hæst í pólitíkinni með Hildi Sverrisdóttur þingmanni Sjálfstæðisflokksins og Sigmari Guðmundssyni þingmanni Viðreisnar.
Næst ræðir Páll við Sigurð Hannesson, framkvæmdarstjóra Samtaka iðnaðarins, til að ræða meðal annars samdrátt í byggingariðnaði. Mikið framboð er á húsnæði en eftirspurn virðist hverfandi, fólki er sagt upp störfum í stórum stíl og standa mörg verktakafyrirtæki á brauðfótum.
Í lok þáttar koma stöllurnar sem halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins – þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir í Komið gott – og fara yfir það sem bar hæst í fréttum vikunnar með sínum hætti.
Hlusta á á þáttinn í beinni útsendinu á Bylgjunni eða í spilaranum hér að neðan.