Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa nú fulla hífingargetu á sjó og lítið skerta á landi. Hífingarspil í þyrlu Landhelgisgæslunnar bilaði fyrir tveimur vikum. Sigbúnaður var ekki notaður í neinni af þyrlum gæslunnar á meðan bilunin var greind. Á meðan var viðbragðsgeta gæslunnar skert í þeim verkefnum sem kröfðust hífinga.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir viðgerð lokið. Tæknilega virki búnaðurinn eins og hann eigi að gera. Hann var prófaður á föstudag en það hafa þó ekki allar þyrluáhafnir reynt á hann síðan.
Vonast er til þess að viðbragðs- og hífingargeta verði orðin full og óskert bæði á sjó og landi á næstu dögum.
Aukið viðbragð var í útköllum á meðan sigbúnaðurinn virkaði ekki og Danir og aðrar samstarfsþjóðir til taks ef þörf hefði krafið. Úr þessu verður dregið.