Loftslagsráðstefnan fer fram í Tyrklandi og hófst í síðustu viku. Tíu manna opinber sendinefnd fór fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, þar á meðal Jóhann Páll Jóhannsson loftslagsráðherra. Sendinefndir nærri tvö hundruð ríkja lögðu leið sína til Tyrklands. Ráðstefnunni átti að ljúka á föstudaginn og er því komin tvo daga fram yfir áætlaðan tíma. COP- ráðstefnan þetta árið gæti orðið sú lengsta í sögunni ef samkomulag næst ekki fyrir klukkan 14 í dag að staðartíma, eða klukkan 11 að íslenskum tíma.
Samningsdrög voru birt í nótt af umhverfisráðherra Tyrklands og einum forseta ráðstefnunnar, Murat Kurum. Hann gaf samningsaðilum þrjár klukkustundir til þess að leggja fram andmæli eða óska eftir breytingum áður en drögin verða formlega lögð fram.
„Við erum á mjög mikilvægum tímapunkti og markmið okkar er að komast að niðurstöðu hér,“ sagði Kurum snemma í morgunsárið.
Jarðefnaeldsneytið heit kartafla
Nokkur ríki hafa sett fram andmæli við drögin sem nánast einróma samstöðu þarf til að þau verði samþykkt. Á fimmtudag voru önnur fyrirhuguð samningsdrög lögð fram en á föstudaginn lagðist hópur ríkja, undir forystu Frakklands og Panama, gegn þeim þar sem hvergi kom fram í samningnum að draga ætti úr eftirspurn heimsins eftir jarðefnaeldsneyti.
Á lofslagsráðstefnum er orðið „jarðefnaeldsneyti“ yfirleitt ágreiningsefni. Í drögunum sem birt voru í nótt er ekki bókstaflega minnst á jarðefnaeldsneyti en vísað er óbeint til þess. Vísað er til samkomulags COP28 sem haldin var í Sameinuðu arabísku furstadæmunum árið 2023 þar sem ríki samþykktu í fyrsta sinn að „hverfa frá“ jarðefnaeldsneyti í orkukerfum.
Stór hópur ESB-ríkja er hluti af áðurnefndum hópi á meðan framleiðendur jarðefnaeldsneytis undir forystu Sádi-Arabíu þrýsta á að klausan um að draga úr eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti verði fjarlægð úr samningnum.
Í fyrstu drögum samkomulags COP31 var hins vegar minnst sex sinnum á jarðefnaeldsneyti en í uppfærðum drögum fimmtudags höfðu allar slíkar vísanir verið fjarlægðar líkt og fyrr sagði.
Fjórðu samningsdrögin lögð fram
Forsetar ráðstefnunnar vonast því til að nýjustu drögin að samkomulaginu geti orðið að málamiðlun. Hvort allir geti sætt sig við þau á enn eftir að koma í ljós. Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins eru mörg ESB-ríki líkleg til þess að hafna drögunum sem birt voru í morgun.
Nú rétt í þessu, upp úr klukkan 10, voru enn ein drögin lögð fram en samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins eru þau tólf blaðsíðna löng. Enn er ekki minnst á jarðefnaeldneyti í nýjustu drögunum sem er ein helsta krafa ESB-ríkjanna. Einni helstu kröfu bresku sendinefndarinnar um að ólíklegt sé að staðið verði við markmiðið um að halda hlýnum jarðar undir 1,5 gráðu er haldið inni í drögunum.
Þá eru ríki hvött til að auka hlut raforku í heildar orkunotkun í 35 prósent fyrir árið 2023.
Fréttin verður uppfærð.