Fjölskylda hans greindi frá andlátinu og minntist hans sem „stórfenglegasta skartgripasmiðs okkar tíma“, að því er fram kemur í ítölskum fjölmiðlum.
Fyrirtækið Bvlgari var stofnað í Róm undir lok 19. aldar af afa Paolo Bulgari, gríska silfursmiðnum Sotirios Voulgaris, sem síðar tók upp nafnið Bulgari. Paolo hóf störf hjá fyrirtæki afa síns skömmu eftir að hann lauk námi og útskrifaðist sem einn fremsti sérfræðingur heims í gimsteinum. Seinna tók hann við stjórnartaumunum sjálfur.
Fyrirtækið færði út kvíarnar undir hans stjórn og haslaði sér völl á markaði lúxusvara. Fyrirtækið framleiðir nú meðal annars veski, ilmvötn og stendur í hótelrekstri svo eitthvað sé nefnt. Árið 2011 seldi Bulgari-fjölskyldan ráðandi hlut sinn í fyrirtækinu til frönsku samsteypunnar LVMH.
Paolo Bulgari er minnst á Instagram-síðu Bulgari-fyrirtækisins.
„Hann var sannkölluð skapandi sál sem lagði hjarta sitt í handverkið og í að hlúa að hæfileikum ungra hönnuða og skildi eftir sig varanleg spor í heimi skartgripanna.“
„Takk fyrir, herra Paolo, arfleifð þín sem skínandi leiðarljós skapandi innblásturs mun halda áfram að veita komandi kynslóðum innblástur.“