„Það hefur blásið hressilega sunnan- og vestanlands í nótt og heldur áfram fram eftir degi. Hvassast hefur verið á suðvesturhorninu, þar sem mælst hefur stormur, meira en 20 metrar á sekúndu, á nokkrum mælistöðvum,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Varasamar eða hættulegar aðstæður fyrir ferðamenn og útivistarfólk
Á Breiðafirði er viðvörun í gildi til klukkan 14 í dag en hvassast er á Snæfellsnesi. Á miðhálendinu er viðvörun í gildi lengst, eða til klukkan 18 í kvöld. Búast má við vindhviðum allt að 35 til 40 metrum á sekúndu. Varasamar eða hættulegar aðstæður geta verið fyrir ferðamenn og útivistarfólk, segir á vef Veðurstofunnar, og er fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Hvassast er í efri byggðum á höfuðborgarsvæðinu og er viðvörun í gildi þar og á Faxaflóa til klukkan 13 í dag. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tilkynningar um foktjón, meðal annars um bárujárnsplötur sem höfðu fokið.
Á Suðurlandi er viðvörun í gildi til klukkan 11 en hvassast er á Reykjanesi og undir Eyjafjöllum. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem geta farið yfir 35 metra á sekúndu. Veðrið getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Sjá einnig: Blæs hressilega fram eftir degi