Minnst þrjár íslenskar vefsíður þar sem lýst er yfir stuðningi við málstað Palestínumanna voru eyðilagðar í netárásinni á vefhýsingarfyrirtækið 1984. Formaður Félagsins Ísland-Palestínu segir þetta vera árás á tjáningarfrelsið.
Vefhýsingarfyrirtækið 1984 þurfti að stöðva alla þjónustu eftir að víðtæk tölvuárás var gerð á það í síðustu viku. Ekki liggur fyrir hver stóð að árásinni.
Í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær segir að margt bendi til þess að upphaflegt markmið árásarinnar hafi verið að taka niður vefsíður sem styðja málstað Palestínu.
„Það er þannig að heimasíðan okkar, sem við erum búin að halda úti í áraraðir, hún er víst eyðilögð,“ segir Hjálmtýr Heiðdal, formaður Félagsins Ísland-Palestína.
Óljóst sé hvort hægt verði að bjarga gögnum og endurreisa síðuna.
„Það kostar fé að koma upp góðri síðu. Ég veit ekki hvort einhver afrit séu til staðar. Ég bara bíð eftir því að vita af því.“
Minnst tvær aðrar íslenskar vefsíður sem styðja málstað Palestínumanna urðu einnig fyrir þessari árás. Það er vefsíðan Lifi Palestína og vefsíða Vonarbrúar sem styrkir barnafjölskyldur á Gaza.
„Ég myndi segja að þegar svona kemur upp á að það er beinlínis ráðist á tjáningarfrelsi Íslendinga, þá er það mjög alvarlegt mál. Mér finnst að einhverjir sem láta sig mannréttindi og tjáningafrelsi skipta, og íslenska ríkisstjórnin í rauninni, ættu að koma með einhver viðbrögð“