Finnska ríkisútvarpið Yle greinir frá og hefur eftir Joni Sjöberg, yfirmanni finnsku strandgæslunnar, að þegar tekist hefur að ráða niðurlögum eldsins sé stefnt að því að draga skipið út fyrir finnska lögsögu.
Áhöfn rússneska ipsins Sparta II, sem var á leið til Kalíníngrad, var flutt frá borði flutningaskipsins og um borð í rússneskt björgunarskip.
Bæði hafa finnski og eistneski herinn sagt að líklegt sé að drónarnir sem hæfðu skipið hafi verið á vegum Úkraínu. Enginn hefur þó lýst yfir ábyrgð á árásinni.
Forsætisráðherra Finnlands, Perreri Orpo, tjáði sig um árásina í færslu á X í gær og segir meðal annars stríð teygja anga sína til Finnlands.
„Stríðið teygir anga sína til nærsvæða okkar. Finnsk yfirvöld sinna ástandinu á Finnlandsflóa, þar sem drónaárás hefur hæft rússneskt kaupskip. Úkraína á rétt á því að berjast gegn innrásaraðilanum,“ skrifaði Orpo.