Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins segir að lokkurinn hafi um stund verið í eigu Johns Gadsby sem hélt veislur fyrir Washington skömmu áður en sá síðarnefndi lést árið 1799. Síðar eignaðist safnari að nafni John K. Lattimer lokkinn sem hlaut hann frá afkomanda Gadsbys. Nýr eigandi þessa dýra hárlokks hefur ekki verið nafngreindur.
Er þetta þó langt frá því að vera „verðmætasti“ hárlokkur Washingtons en þrír slíkir, sem geymdir voru í hálsmeni, seldust fyrir nærri 40.000 dali, eða nærri fimm milljónir íslenskra króna, árið 2021. Nærri fimmtíu hárlokkar Washingtons eru varðveittir, meðal annars á safni á fyrrum heimili hans, Maunt Vernon.
Auk hárs hans hafa ýmsir aðrir munir hans verið seldir á uppboðum í gegnum tíðina. Í júlí síðastliðnum seldist bréf undirritað af Washington frá árinu 1776 fyrir 109.800 dali eða tæpar fjórtán milljónir króna.
George Washington leiddi bandarískar hersveitir til sigurs gegn Bretum í bandaríska frelsisstríðinu og átti þátt í að semja stjórnarskrá Bandaríkjanna áður en hann varð fyrsti forseti landsins árið 1788. Hann lét af embætti árið 1797 eftir tvö kjörtímabil.