Myndir af athöfninni fara nú eins og eldur í sinu um netið. Á þeim má sjá parið umkringt hvítum rósum. Cyrus er í hvítum kjól með opið bak en Morando var í svörtum jakkafötum.
Meðal gesta var fjölskylda Cyrus, þar á meðal faðir hennar og söngvarinn Billy Ray Cyrus. Þá var lagið Love is Like a Butterfly með Dolly Parton spilað en hún var guðmóðir Cyrus. Á föstudag kom nánasta fjölskylda parsins saman og borðaði kvöldmat saman daginn fyrir brúðkaupið.
Cyrus og Morando hittust fyrst á blindu stefnumóti árið 2021. Þá trúlofuðu þau sig á ferðalagi í Asíu í desember árið 2025.
„Það er erfitt að koma mér á óvart því ég vil stjórna öllum aðstæðum og ég segi þér, ég var svo, svo, svo hissa,“ sagði Cyrus um trúlofunina samkvæmt BBC.
Cyrus er ein þekktasta poppstjarna í heimi og hóf ferilinn sem aðalpersónan í þáttunum Hannah Montana. Hún hefur gefið út fjölda laga líkt og Party in the U.S.A., Wrecking Ball og Flowers. Cyrus var áður gift leikaranum Liam Hemsworth en þau skildu árið 2019.
Morando er trommuleikari í hljómsveitinni Liily og spilaði þar áður með hljómsveitinni The Regrettes. Árið 2022 spilaði hljómsveitin í þættinum Miley's New Year's Eve Party sem Cyrus stjórnaði.