Stundum er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Það ákvað einhver að gera nú um helgina og hringdi í lögreglu til að tilkynna um hávaða.Þegar lögreglu bar að garði reyndist ekkert saknæmt á ferðinni. Þarna höfðu aðilar misst sig í tölvuleiknum Among Us og hiti færst í leikinn. Um er að ræða tölvuleik í anda vinsælu blekkingaleikjanna Varúlfur og Mafía. Þar keppast leikmenn við að finna vísbendingar til að finna út hver á meðal þeirra er svikari. Stundum getur fólki sárnað í leikjunum ef því þykir saklaust vænt um að vera svikari eða ef svikarinn beitir brögðum til að leynast.
Lögreglan í útkall vegna tölvuleiks