Engin lokasamþykkt var undirrituð á COP31, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem staðið hefur yfir í Antalíu í Tyrklandi undanfarna daga.
Tilkynnt hefur verið að ekki standi til að reyna áfram að semja.
Ástæðan er sú að ríki heims komu sér ekki saman um hvernig skuli orða kafla um jarðefnaeldsneyti í lokasamþykkt ráðstefnunnar. Fjölmörg ríki vildu koma inn orðalagi um að fasa út notkun jarðefnaeldsneytis en olíuframleiðsluríki settu sig upp á móti því.
Chris Bowen, ráðherra í áströlsku ríkisstjórninni og aðalsáttasemjari COP31, sagði að ráðstefnugestir hafi þurft að kljást við „flóknasta og spennuþrungnasta andrúmsloft í alþjóðakerfinu í manna minnum“.
Ekki var minnst einu orði á jarðefnaeldsneyti í drögum að lokasamþykkt á óreiðukenndum lokafundi ráðstefnunnar í morgun. Þau drög voru þó ekki samþykkt.
Ráðstefnunni átti að ljúka fyrir helgi en hún var framlengd þar sem samningamenn náðu ekki saman. Það er venjan á þessum ráðstefnum en þó hefur hún aldrei verið framlengd eins og í ár. Ráðstefnan í Antalíu sló met og fer í sögubækurnar fyrir að skila engri lokasamþykkt. Það hefur aðeins einu sinni áður gerst, á COP15 í Kaupmannahöfn árið 2009.
Helga Barðadóttir, formaður íslensku samninganefndarinnar, var á leið heim frá Tyrklandi þegar fréttastofa náði af henni tali um hádegi.
„Þegar byrjað er að vinna að svona lokaákvörðun þá koma bara ríkin saman og þetta verður svona eins og ákveðinn óskalisti, það var talað um jólatréð, þetta var orðið svo mikið skreytt og margt sem menn vildu hafa þarna inni. Og svo þegar var búið að sjóða þetta niður í texta sem var borinn fram í gærmorgun, að þá vantaði þar til dæmis allt um jarðefnaeldsneyti sem hafði verið inni í fyrri textum, sem höfðu verið lagðir fram. Þannig það varð eiginlega til þess að við höfum ekki stutt þetta,“ segir hún
Hún bætir við:
„Við höfum stutt þau ríki sem hafa viljað fá þetta sterkara orðalag inn í ákvörðunina og taka á vísundum og mannréttindum og þeim málum sem við höfum verið að styðja í samningunum.“
Öll aðildarríki verða að skrifa undir lokasamþykktina. Loftslags- og orkumálaráðherra Írlands, Darragh O'Brien, segir olíuríki hafi hertekið samningaviðræðurnar.
Hann segir að aðildarríki Evrópusambandsins geti ekki sætt sig við samningsdrög sem fyrir liggja, þar sem þau ganga ekki nógu langt í því að fasta út notkun jarðefnaeldsneytis. Olíuríki hafi hertekið samningaviðræðurnar. Írland fer með formennsku í ráðherraráði ESB.
„Við munum ekki styðja ákvörðun, eða einhvern Antalíu-samning, þar sem ekki er einu sinni minnst á jarðefnaeldsneyti, sem er helsta orsök loftlagsbreytinga,“ sagði O'Brien við AFP í morgun. AFP reyndi að ræða við samningamenn Sádi-Arabíu, sem hafa verið þeir hörðustu þegar kemur að hagsmunagæslu olíuframleiðsluríkja, en án árangurs.
Allt bendir til þess að viðræðum um lokasamþykkt verði frestað, sem gerir að verkum að þeim verður velt yfir á næstu COP-ráðstefnu, sem haldin verður í Addis Ababa í Eþíópíu 8. til 19. nóvember á næsta ári.