Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fordæmir harðlega meint áform Rússa um að ráða úkraínskan rappara af dögum í Danmörku.Dönsk yfirvöld saka Rússa um að hafa lagt á ráðin um morð á úkraínsk-bandarískum rappara sem átti að koma fram á tónleikum skammt frá Kaupmannahöfn í september.Þorgerður Katrín bregst við tíðindunum á samfélagsmiðlinum X þar sem hún segir fréttirnar frá Danmörku óhugnanlegar og fordæmir tilraunir Rússa til að beita ofbeldi á yfirráðasvæði bandalagsríkja.
Rússar sakaðir um að skipuleggja morð í Danmörku – Þorgerður Katrín bregst við