Nablinn vill geta horft á sjón­varpið meðan hann teflir við páfann - Vísir

Nablinn vill geta horft á sjón­varpið meðan hann teflir við páfann - Vísir

Nablinn vill geta horft á sjón­varpið meðan hann teflir við páfann - Vísir

Heima horfir Andri á sjónvarpið hvenær sem færi gefst og er sjónvarpsáhuginn slíkur að hann er farinn að íhuga að setja upp skjá á baðherberginu.

Við fengum gleðigjafann knáa í stutt spjall um eftirminnilega sjónvarpsþætti og kvikmyndir.

Það er alltaf stutt í grínið hjá Andra, hvort sem hann situr í sjónvarpssetti eða tekur að sér að halda uppi fjörinu á ýmsum mannamótum. Eftir að hann hætti að vinna á leikskóla hefur hann tekið að sér alls konar verkefni. Hann kemur fram bæði einn og með Guggu í gúmmíbát og tekur að sér að skemmta á alls konar viðburðum.

Nablinn og Gugga í gúmmíbát eru hresst og skemmtilegt teymi.

„Ég er að gigga mikið, bæði með Guggu í gúmmíbát og einn. Ég mæti með stemningskviss, veislustýri og fer með gamanmál á hinum og þessum viðburðum, allt frá gæsunum út í sogblettaglímu framhaldsskóla,“ segir Andri.

Andri átti stórleik í sjónvarpsseríunni Bannað að hlæja og komst í úrslitaþáttinn.

Laugardagarnir eru þó í sérstöku uppáhaldi. Andri hefur margsinnis komið við sögu í fótboltaþættinum Doc Zone á Sýn Sport, bæði sem gestur í setti og í innslögum utan stúdíósins. „Það er ekkert skemmtilegra en að fá allan enska boltann beint í æð.“

Þegar Andri horfir nokkur ár fram í tímann sér hann fyrir sér að gera meira af því sem hann gerir í dag. „Ef ég fæ að vinna við áhugamálin mín, fara reglulega á leiki í enska boltanum og vera í kringum skemmtilegt fólk, þá verð ég sáttur.“

Frá Paddington til Eiðs Smára með gamla hárið

Fyrstu sjónvarpsminningar Andra eru af Paddington og skrípói úr túbusjónvarpinu. Í dag horfir hann helst á gamanþætti og gamanmyndir og sækir gjarnan í íslenskt grín. Þættirnir sem Auðunn Blöndal kemur að eru í sérstöku uppáhaldi. „Eins og öll þjóðin þá fæ ég aldrei leið á þeim sjónvarpsþáttum sem Auðunn Blöndal kemur að.“

Andri segir nýjustu seríuna af Einni stjörnu fara frábærlega af stað og bíður spenntur eftir næsta þætti á Sýn+. „Svo finnst mér þriðjudagarnir frábærir því þá kemur nýr þáttur af Körfuboltakvöldi extra. Þeir eru ruglaðir, strákarnir í settinu þar.“

Hann hefur líka gaman af því að rifja upp gamla þætti.

Um daginn datt hann aftur inn í gamla þætti af Ískápastríði og hafði sérstaklega gaman af endurfundunum við Eið Smára Guðjohnsen. 

Það var gaman að sjá Eið Smára með gamla hárið sitt.

Andri er enn ekki byrjaður að horfa á jólamyndir. Hann er búinn að gera upp hug sinn um hina sígildu spurningu um Die Hard og lætur sér yfirleitt ekki nægja fyrstu myndina. „Að mínu mati er Die Hard jólamynd og ég tek alltaf allavega fyrstu þrjár myndirnar fyrir hver jól.“

Fyrsta Die Hard myndin er jólamynd að mati Andra.

Síminn í vasann og sjónvarpið kannski á baðið

Heima í sófa setur Andri engar sérstakar reglur um hvað fólk má gera á meðan það horfir. Í bíó setur hann þó sjálfum sér eina. „Þegar ég fer í bíó fer síminn í vasann á meðan myndin er í gangi.“ Hann segist vera mikill símafíkill. Bíóið sé einn af fáum stöðum þar sem honum takist að láta símann eiga sig.

Heima horfir hann helst í sjónvarpinu en notar stundum fartölvuna. Hann leigir sér líka gjarnan mynd á leigunni hjá Sýn, sérstaklega eftir að hann flutti að heiman og fór sjálfur að bera ábyrgð á sjónvarpsreikningnum.

Blátt Doritos verður yfirleitt fyrir valinu þegar Andri fær sér sjónvarpssnakk. Þegar hann vill gera sérstaklega vel við sig kaupir hann Stjörnu partý mix.

Gamla góða snakkið er yfirleitt við höndina þegar Nablinn horfir á sjónvarpið.

Andri segist horfa á sjónvarpið nánast hvenær sem er dagsins og sér enn tækifæri til að fjölga þeim stundum. 

Það styttist í að ég fari að setja upp skjá inn á baðherbergi svo ég geti horft á meðan ég tefli við páfann.

Hverjir eru uppáhaldsleikararnir þínir, íslenskir og erlendir?

„Það er erfitt að velja einn uppáhalds erlendan leikara. Ég er mikill Chris Tucker maður. Það hefur líklega enginn séð Rush Hour-myndirnar oftar en ég og svo er Charlie Sheen alltaf kóngurinn.

Hér heima finnst mér Þorsteinn Bachmann alltaf geggjaður og góður í að vera skemmtilegur í alvarlegum senum. Egill Ploder er líka einn af uppáhaldsleikurum mínum en hann átti stórleik í kvikmyndinni Fullir vasar. Ég held að margir velti enn þann dag í dag fyrir sér hvort hann hefði unnið til Edduverðlauna ef hann væri menntaður leikari.“

Íslensku kvikmyndirnar Heimaleikurinn og Fullir vasar skipa stóran sess í lífi Nablans.

Hvaða þætti eða kvikmynd myndirðu vilja geta gleymt alveg, bara til að fá að horfa aftur í fyrsta sinn?

„Ég vildi óska að ég gæti gleymt þáttunum Rikki fer til Ameríku, bara til að geta séð þá aftur í fyrsta sinn. Þeir eldast eins og rauðvín og verða betri við hvert áhorf. Það sem sá maður getur borðað af góðum mat er alveg ruglað.“

Ef þér væri boðið í búningamatarboð og og allir gestirnir ættu að mæta sem persónur úr sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum, hvernig myndirðu mæta til leiks?

„Ég myndi mæta sem Björn Bragi í Kviss. Mig langar í þetta þykka, svarta hár hans og svona „game show“-mottu. Ég get hvorki safnað svona hári né mottu sjálfur, en þetta yrði skemmtilegt matarboð. Einhver má endilega bjóða mér í búningamatarboð.“

Andra langar í þykkt svart hár og „game show“-mottu eins og Björn Bragi skartar stundum.

Er einhver sjónvarpspersóna sem þú myndir helst vilja fara út að borða með?

„Ég myndi gera mikið til að fá að fara út að borða með Hvata úr sjónvarpsþáttunum Ríkinu. Auðunn Blöndal leikur hann. Hvati er alvöru meistari og það væri gaman að spjalla við hann um gellur og vinnustaðinn. Ætli við færum ekki á Fossinn.“

Hægt er að nálgast þættina Ríkið á steymisveitunni Heima. Hvati er lengst til vinstri.

Ef þú fengir lítið hlutverk í sjónvarpsseríu, hvaða þætti myndirðu velja?

„Ég væri til í að fá hlutverk í Tekinn. Það væri geðveikt að fá að taka þátt í því að hrekkja einhvern.“

Ef þú mættir aðeins mæla með einum sjónvarpsþætti og einni kvikmynd við lesendur, hvað myndirðu velja?

„Ég myndi mæla með heimildarþáttunum um körfuboltamanninn Jón Arnór Stefánsson. Þau sem eiga eftir að sjá þá ættu að horfa og þau sem sáu þá á sínum tíma ættu að horfa aftur. Þetta eru frábærir þættir og sýna einnig hvað tíðarandinn var ruglaður í kórónuveirufaraldrinum. Svo er góður karakter í aukahlutverki þarna sem er Pavel Ermolinskij.

Grown Ups 2 er ein vanmetnasta mynd kvikmyndarsögunnar. Allir Íslendingar hafa pottþétt séð hana en ég mæli með því að horfa aftur og rifja upp þessa snilld.“

Ef þú mættir eyða einum karakter úr sjónvarpsþætti eða kvikmynd, hver fengi að fjúka?

„Það er bara eitt rétt svar við þessari spurningu og það er Dolores Umbridge úr Harry Potter. Allir sem horfa á Harry Potter hata þessa týpu í bleika gallanum.“

Þú situr fastur í lyftu í þrjár klukkustundir með þremur persónum úr sjónvarpsþáttum eða kvikmyndum. Hverja velurðu?

„Ég væri til í að festast í lyftu með með J.R. Ewing úr Dallas, Kenny úr We're the Millers og Sunnevu Einars úr þáttunum #Samstarf.“

Hvaða persóna úr sjónvarpsþætti eða kvikmynd væri líklegust til að verða besti vinur þinn í raunveruleikanum?

„Carter í kvikmyndinni Rush Hour væri klárlega besti vinur minn í alvörunni. Ég dýrka þessa týpu og sé margt í honum sem minnir mig á vini mína. Stifler í American Pie væri líka leikmaður sem yrði besti vinur minn og við myndum ná vel saman.“

Ef líf þitt væri kvikmynd, hvers konar mynd væri það og hvað héti hún?

„Ef líf mitt væri kvikmynd væri það Heimaleikurinn. Það er eins og þeir séu að taka knattspyrnuferilinn minn fyrir þegar þeir setja saman lið úr mönnum sem geta ekkert í fótbolta en hafa mikinn áhuga og vilja til að láta hlutina gerast. Ég mæli eindregið með þessari mynd. Hún sýnir svart á hvítu hvað félagsandinn er góður og hvað það er hollt að alast upp við að spila fótbolta. Hann er fyrir alla, sama hvort maður er góður eða lélegur.“

Veldu eina af uppáhaldsmyndunum þínum eða sjónvarpsseríunum frá útlöndum og skiptu erlendum leikara út fyrir íslenskan.

„Ég væri til í að taka Justin Timberlake út úr Friends with Benefits og setja sjálfan mig í staðinn. Það væri helvíti skemmtilegt að leika þetta hlutverk á móti Milu Kunis.“

#geta #horft #nablinn #sjónvarpið #vill


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262965251d/nablinn-vill-geta-horft-a-sjon-varpid-medan-hann-teflir-vid-pafann

📰 Aðrar fréttir

Kína grípur til neyðaraðgerða á hlutabréfamarkaði – tæknifyrirtæki hafa fallið um meira en 40 prósent
📅 22.11.2026 👁️ 0
Kína grípur til neyðaraðgerða á hlutabréfamarkaði – tæknifyrirtæki hafa fallið um meira en 40 prósent
Kína grípur til neyðaraðgerða á hlutabréfamarkaði – tæknifyrirtæki hafa fallið um meira en 40 prósent Fréttin22. nóvember 2026Efnahagsmál, ErlentLeave...
Þakplötur losnuðu í óveðri – röskun á millilandaflugi og björgunarsveitir kallaðar út
📅 22.11.2026 👁️ 0
Þakplötur losnuðu í óveðri – röskun á millilandaflugi og björgunarsveitir kallaðar út
Þakplötur losnuðu í óveðri – röskun á millilandaflugi og björgunarsveitir kallaðar út Fréttin22. nóvember 2026Innlent, Samgöngur, VeðurLeave a Comment...
Björn Jón skrifar: Stjórnglæpamennirnir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Björn Jón skrifar: Stjórnglæpamennirnir
Mynd Sænski hagfræðingurinn Gustaf Cassel (1866–1945) sagði eitt sinn að skipulagn
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna endar í uppnámi – ríki ná ekki samkomulagi um jarðefnaeldsneyti
📅 22.11.2026 👁️ 0
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna endar í uppnámi – ríki ná ekki samkomulagi um jarðefnaeldsneyti
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna endar í uppnámi – ríki ná ekki samkomulagi um jarðefnaeldsneyti Fréttin22. nóvember 2026Erlent, Evrópusambandið,...
Eldur logaði í húsbíl á Sævarhöfða
📅 22.11.2026 👁️ 1
Eldur logaði í húsbíl á Sævarhöfða
Eldur logaði í húsbíl á Sævarhöfða í Reykjavík í dag. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um eldinn klukkan 12:40. Guðjón Ingason, varð...
1984 hefur hýst umdeildar síður þrátt fyrir stefnu gegn ofbeldi og hatri
📅 22.11.2026 👁️ 1
1984 hefur hýst umdeildar síður þrátt fyrir stefnu gegn ofbeldi og hatri
Í kjölfar umfangsmikillar tölvuárásar á íslenska hýsingarfyrirtækið 1984 ehf., sem náði hámarki 20. nóvember, hefur komið fram að fyrstu verk árásarma...
Hár­lokkur Georges Washington á upp­boði - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Hár­lokkur Georges Washington á upp­boði - Vísir
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins segir að lokkurinn hafi um stund verið í eigu Johns Gadsby sem hélt veislur fyrir Washington skömmu áður en sá síða...
Náðu ekki saman um lokasamþykkt – COP31 í sögubækurnar
📅 22.11.2026 👁️ 0
Náðu ekki saman um lokasamþykkt – COP31 í sögubækurnar
Engin lokasamþykkt var undirrituð á COP31, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem staðið hefur yfir í Antalíu í Tyrklandi undanfarna daga. Tilkynn...
RAF's next fighter jet could be last crewed combat aircraft
📅 22.11.2026 👁️ 1
RAF's next fighter jet could be last crewed combat aircraft
The head of the RAF said AI-enabled and uncrewed aircrafts are expected to start flying in UK airspace next year.
Eyþór borgaði 16.900 kr. fyrir sæti á tónleikum en aðrir gestir eyðilögðu upplifunina - „Spurning um tillitsemi og virðingu“
📅 22.11.2026 👁️ 1
Eyþór borgaði 16.900 kr. fyrir sæti á tónleikum en aðrir gestir eyðilögðu upplifunina - „Spurning um tillitsemi og virðingu“
Stjórnendaþjálfarinn Eyþór Eðvarðsson er ekki lukkulegur með tónleika sem fóru fram í gær til heiðurs George Michael.Þrátt fyrir að hafa borgað um 17 ...
Björgvin Franz birtir „væmnastatusinn“ sem allir hafa beðið eftir – „Lífið er svo MIKLU betra“
📅 22.11.2026 👁️ 2
Björgvin Franz birtir „væmnastatusinn“ sem allir hafa beðið eftir – „Lífið er svo MIKLU betra“
Leikarinn Björgvin Franz Gíslason er ástfanginn. Það hefur reyndar ekki verið mikið leyndarmál, en Smartland greindi frá því í sumar að leikarinn hefð...
Eldur í húsbíl á Sævarhöfða - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Eldur í húsbíl á Sævarhöfða - Vísir
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst útkallið klukkan 12:40 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var eld...
Við­brögð Við­reisnar „sjokkerandi“ - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Við­brögð Við­reisnar „sjokkerandi“ - Vísir
Ný Maskínukönnun var birt í gær og voru helstu tíðindin að Viðreisn tapaði fylgi. Flokkurinn fór úr 11,4 prósenta fylgi niður í 9,2 prósent. Á rúmum m...
Öngþveiti í Kringlunni vegna bikars ensku úrvalsdeildarinnar
📅 22.11.2026 👁️ 1
Öngþveiti í Kringlunni vegna bikars ensku úrvalsdeildarinnar
Bikar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er til sýnis í Kringlunni í dag.Bikarinn er einn sá þekktasti í fótboltaheiminum, er um meter á hæð og ve...
Centrica boss says he is 'hugely concerned' over impact of soaring energy bills
📅 22.11.2026 👁️ 1
Centrica boss says he is 'hugely concerned' over impact of soaring energy bills
Chris O'Shea says the number of people unable or unwilling to pay their energy bills will increase when prices jump in the new year.
BBC apologises after noise disruption during Strictly
📅 22.11.2026 👁️ 1
BBC apologises after noise disruption during Strictly
Strictly Come Dancing judge Motsi Mabuse was giving feedback to Delta Goodrem when she paused after the sound started playing.
Ekkert hrædd við eldgos og æfa rýmingu í skólanum
📅 22.11.2026 👁️ 2
Ekkert hrædd við eldgos og æfa rýmingu í skólanum
Skólahald hófst á ný í Grindavík í haust, í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur í nóvember fyrir þremur árum. Systkinin Mía, tíu ára, og Pétur, á...
Gull í höfn þrátt fyrir á­skoranir - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Gull í höfn þrátt fyrir á­skoranir - Vísir
Haft er eftir Georgi Arnari Halldórssyni þjálfara Kokkalandsliðsins í tilkynningu þess efnis: „Dagurinn gekk mjög vel og liðið stóð sig frábærlega þrá...
Djúp von­brigði - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Djúp von­brigði - Vísir
Loftslagsráðstefnan COP31 hefur slegið met í tímalengd en hann er kominn á annan dag fram yfir áætlaðan tíma. Þetta er fyrsti fundurinn eftir að ljóst...
Nýja skiltið fauk af - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 1
Nýja skiltið fauk af - Vísir
Til stendur að opna starfsemi Golfturnsins í Turninum við Smáratorg næstu helgi í rými þar sem áður var Arena rafíþróttamiðstöðin. Hluti af undirbúnin...
Miley Cyrus er gift og hún og faðir hennar hafa grafið stríðsöxina
📅 22.11.2026 👁️ 2
Miley Cyrus er gift og hún og faðir hennar hafa grafið stríðsöxina
Söngkonan Miley Cyrus er gift. Hún og hennar heittelskaði, Maxx Morando, gengu upp að altarinu í gær.
Þorgerður Katrín: Við verðum dæmd af verkunum, ekki flokkaflakki einhverra einstaklinga
📅 22.11.2026 👁️ 2
Þorgerður Katrín: Við verðum dæmd af verkunum, ekki flokkaflakki einhverra einstaklinga
Ríkisstjórnin verður ekki metin af því hvort einhverjir flakki milli flokka. Hún verður metin af verkum sínum. Hluti af því að vera í pólitík er að fa...
Vefsíða Félagsins Ísland-Palestína mögulega ónýt eftir netárás
📅 22.11.2026 👁️ 3
Vefsíða Félagsins Ísland-Palestína mögulega ónýt eftir netárás
Minnst þrjár íslenskar vefsíður þar sem lýst er yfir stuðningi við málstað Palestínumanna voru eyðilagðar í netárásinni á vefhýsingarfyrirtækið 1984. ...
Klæðning og þakplötur losnað í hvass­viðrinu - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Klæðning og þakplötur losnað í hvass­viðrinu - Vísir
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveit á Suðurnesjum hafi sinnt útkalli í Suðurnesjabæ þegar þakplata losnaði af ...
Veikindafjarvera talin kosta tólf milljarða á ári - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 3
Veikindafjarvera talin kosta tólf milljarða á ári - Vísir
Fjallað er um þetta í ársskýrslu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2026. Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri samtakanna, s...
Samnings­drög á COP31 sögð gríðar­leg von­brigði - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Samnings­drög á COP31 sögð gríðar­leg von­brigði - Vísir
Launakostnaður vegna veikindafjarveru hjá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu er áætlaður um tólf milljarðar króna á ári. Framkvæmdastjóri samtaka þ...
Signal tekur fyrir  að taka skjáskot af spjalli
📅 22.11.2026 👁️ 2
Signal tekur fyrir að taka skjáskot af spjalli
Samskiptaforritið Signal herðir varnir gegn því að gervigreind geti lesið einkasamtöl notenda. Í því felst meðal annars að taka fyrir að notendur geti...
Björgunarsveitir kallaðar út í Reykjanesbæ og Kópavogi í morgun
📅 22.11.2026 👁️ 1
Björgunarsveitir kallaðar út í Reykjanesbæ og Kópavogi í morgun
Björgunarsveitir í Reykjanesbæ og Kópavogi voru kallaðar út í morgun vegna þakplötu og klæðninga sem hafði losnað. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór ...
Hver er dýrasta og ódýrasta jólamáltíðin?
📅 22.11.2026 👁️ 3
Hver er dýrasta og ódýrasta jólamáltíðin?
Senn líður að jólum og jólin kosta peninga, sérstaklega í dýrtíð eins og nú er. Íslendingar halda gjarnan í hefðirnar og borða ávallt það sama um jóli...
Sigbúnaður gæslunnar virkar
📅 22.11.2026 👁️ 3
Sigbúnaður gæslunnar virkar
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa nú fulla hífingargetu á sjó og lítið skerta á landi. Hífingarspil í þyrlu Landhelgisgæslunnar bilaði fyrir tveimur vik...
Ný samnings­drög birt í lang­vinnum við­ræðum - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Ný samnings­drög birt í lang­vinnum við­ræðum - Vísir
Loftslagsráðstefnan fer fram í Tyrklandi og hófst í síðustu viku. Tíu manna opinber sendinefnd fór fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, þar á meðal Jóhan...
Ef gervi­greindin væri ekki sleikju­leg færi sjálf­s­traustið fyrir lítið - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 3
Ef gervi­greindin væri ekki sleikju­leg færi sjálf­s­traustið fyrir lítið - Vísir
Og hann var að senda frá sér nýja bók – Öld ímyndunaraflsins – sem trónir nú efst á metsölulistum. Er ég að gleyma einhverju? „Nei, nei, ég er reyndar...
Lögreglan í útkall vegna tölvuleiks
📅 22.11.2026 👁️ 4
Lögreglan í útkall vegna tölvuleiks
Stundum er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Það ákvað einhver að gera nú um helgina og hringdi í lögreglu til að tilkynna um hávaða.Þegar lögreglu...
Hrefna segir heilbrigðiskerfið hafa brugðist sér - Miklar kvalir eftir meðferð á Landspítalanum – „Ég hef ekki viljað lifa lengur“
📅 22.11.2026 👁️ 2
Hrefna segir heilbrigðiskerfið hafa brugðist sér - Miklar kvalir eftir meðferð á Landspítalanum – „Ég hef ekki viljað lifa lengur“
Hrefna Thomsen Árnadóttir er tveggja barna móðir á fertugsaldri. Hún ætti því ef allt væri eðlilegt að vera í blóma lífsins en svo er í raun ekki. Hre...
Nýr vefur Veðurstofunnar kostaði næstum hálfan milljarð – og gæti dottið út þegar mest á reynir
📅 22.11.2026 👁️ 3
Nýr vefur Veðurstofunnar kostaði næstum hálfan milljarð – og gæti dottið út þegar mest á reynir
Nýi vefur Veðurstofu Íslands, vedur.is, sem fór í loftið 17. nóvember 2026. Mynd: Veðurstofa Íslands. Nýi vefur Veðurstofunnar er þjónustaður um skýja...
Miley Cyrus gengin í það heilaga á ný - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Miley Cyrus gengin í það heilaga á ný - Vísir
Myndir af athöfninni fara nú eins og eldur í sinu um netið. Á þeim má sjá parið umkringt hvítum rósum. Cyrus er í hvítum kjól með opið bak en Morando ...
Hviður allt að 40 metrum á sekúndu - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 4
Hviður allt að 40 metrum á sekúndu - Vísir
„Það hefur blásið hressilega sunnan- og vestanlands í nótt og heldur áfram fram eftir degi. Hvassast hefur verið á suðvesturhorninu, þar sem mælst hef...
Paolo Bulgari er látinn - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Paolo Bulgari er látinn - Vísir
Fjölskylda hans greindi frá andlátinu og minntist hans sem „stórfenglegasta skartgripasmiðs okkar tíma“, að því er fram kemur í ítölskum fjölmiðlum. F...
Miley Cyrus marries Maxx Morando in California ceremony
📅 22.11.2026 👁️ 3
Miley Cyrus marries Maxx Morando in California ceremony
The couple have been together for four years and were engaged in 2025.
Enn logar í rúss­nesku skipi á Finnska flóa - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Enn logar í rúss­nesku skipi á Finnska flóa - Vísir
Finnska ríkisútvarpið Yle greinir frá og hefur eftir Joni Sjöberg, yfirmanni finnsku strandgæslunnar, að þegar tekist hefur að ráða niðurlögum eldsins...
Gular veðurviðvaranir í gildi til hádegis en lengur á miðhálendinu
📅 22.11.2026 👁️ 2
Gular veðurviðvaranir í gildi til hádegis en lengur á miðhálendinu
Gular veðurviðvaranir eru í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og miðhálendið. Viðvaranirnar gilda fram á hádegi og þar t...
Missing man found dead at Famara cliffs in Lanzarote
📅 22.11.2026 👁️ 2
Missing man found dead at Famara cliffs in Lanzarote
A missing man has been found dead at the Famara cliffs in the north of Lanzarote following a search involving emergency teams, drones and a rescue hel...
„Þarna byrjar mín saga“
📅 22.11.2026 👁️ 3
„Þarna byrjar mín saga“
Þóra Björg Sirrýjardóttir hefur stutt vel við bakið á fólki sem hefur farið út af réttu brautinni. Hún þekkir líka vel veruleika þeirra. Neyslusaga he...
Byggingar­iðnaður, efna­hags­mál og pólitík á Sprengi­sandi - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Byggingar­iðnaður, efna­hags­mál og pólitík á Sprengi­sandi - Vísir
Fyrsti gestur Páls að þessu sinni er Gunnar Haraldsson hagfræðingur og fyrrverandi formaður Fjármálaráðs til áratugar. Þeir ræða stöðuna í efnahagsmál...
Ælufælni: Konur að fara í fóstur­eyðingu og fólk van­nært af ótta - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 3
Ælufælni: Konur að fara í fóstur­eyðingu og fólk van­nært af ótta - Vísir
Já: ÆLUFÆLNI er til. Og eins og orðið gefur til kynna, byggir ælufælni á ótta við uppköst. Sín og annarra. Alvarlegustu dæmin um ælufælni eru þegar fó...
Ælufælni: Konur að fara í þungunar­rof og fólk van­nært af ótta - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Ælufælni: Konur að fara í þungunar­rof og fólk van­nært af ótta - Vísir
Já: ÆLUFÆLNI er til. Og eins og orðið gefur til kynna, byggir ælufælni á ótta við uppköst. Sín og annarra. Alvarlegustu dæmin um ælufælni eru þegar fó...
Flúði kúgunina í Íran en fær nú líflátshótanir á Ís­landi - Vísir
📅 22.11.2026 👁️ 2
Flúði kúgunina í Íran en fær nú líflátshótanir á Ís­landi - Vísir
Saqar Yari ólst upp í samfélagi þar sem hún þurfti sífellt að gæta orða sinna og hegðunar. Hún segist snemma hafa átt í árekstrum við kennara sína veg...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Óþekkti þingmaðurinn
📅 22.11.2026 👁️ 4
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Óþekkti þingmaðurinn
Mynd Pistlahöfundur man eftir ótal skiptum á liðnum ár
Jet2 launches new seats with increased legroom on flight to Tenerife
📅 22.11.2026 👁️ 3
Jet2 launches new seats with increased legroom on flight to Tenerife
Jet2 has introduced new lightweight seats on its flights, with the first aircraft fitted with them flying from Manchester to Tenerife last Friday (19t...
Eldur logar enn um borð í rússneska flutningaskipinu
📅 22.11.2026 👁️ 4
Eldur logar enn um borð í rússneska flutningaskipinu
Finnski herinn telur líklegt að Úkraínumenn standi að baki árásinni á rússneska flutningaskipið Sparta 2 á Finnlandsflóa í gærmorgun. Stjórnvöld í Úkr...