Ríkisstjórn Eistlands hefur ákveðið að loka landamærunum milli Eistlands og Rússlands í sex mánuði frá 1. desember. Með þessum aðgerðum vilja Eistar setja meiri pressu á Rússland og sýna Úkraínu stuðning sinn.
Eistneska ríkisútvarpið greinir frá.
Eistneska utanríkisráðuneytið boðaði rússneskan diplómata á fund sinn í gær til að mótmæla miklum árásum Rússa á Úkraínu undanfarna daga. Honum var jafnframt greint frá ákvörðun ríkisstjórnarinnar um lokun landamæranna.
Mikilvægar öryggisráðstafanir
Utanríkisráðherrann Margus Tsahkna á blaðamannafundi í gær að lokun landamæranna vera mikilvægar öryggisráðstafanir sem myndu takmarka möguleika Rússlands til að ráða fólk, vera með áróður, skipuleggja skemmdarverk og komast fram hjá viðskiptaþvingunum með því að fara yfir landamærin.
Hann sagði það skyldu stjórnvalda að vernda öryggi Eistlands og ytri landamæri Evrópusambandsins. Eistland mætti heldur ekki leyfa Rússlandi að skapa ótta og óvissu eða beina athyglinni frá því að styðja Úkraínu.
Utanríkisráðherrann sagði að Rússland bæri ábyrgð á lokun landamæranna, en Rússar hefðu staðið fyrir fjölmörgum árásum gegn Eistlandi og Evrópu undanfarið og árásirnar hefðu orðið sífellt alvarlegri. Lokun landamæranna verður endurmetin eftir hálft ár og lokunin framlengd ef þurfa þykir.
Ýmsar ferðatakmarkanir á landamærum við nágrannalönd
Eistar eru ekki eina þjóðin sem hefur lokað landamærunum við Rússland. Landamærin milli Finnlands og Rússlands hafa verið lokuð síðan í desember 2023, og Lettland, Litáen og Pólland hafa takmarkað verulega ferðir yfir landamærin við Rússland á undanförnum árum.
Ákvörðunin um lokun landamæranna hefur áhrif á fólk og farartæki á landamærastöðvum, en vöruflutningar með lestum verða áfram leyfðir en undir ströngu tollaeftirliti.