Í Facebook-færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að slysið hafi átt sér stað á Mýravegi við Vatnabyggð á Akureyri um klukkan 20:30 umræddan dag. Bíllinn er sagður vera grár á litinn.
Er viðkomandi ökumaður beðinn um að hafa samband við lögreglu sem og þeir sem kynna a hafa upplýsingar um málið eða urðu vitni að slysinu.
Hægt er að hafa samband í síma 444-2800 eða senda tölvupóst á netfangið: nordurland.eystra@logreglan.is.