Finnska ríkisútvarpið Yle greinir meðal annars frá og hefur eftir finnska hernum að hann hafi orðið var við árásina í austanverðum Finnska flóa við Eystrasalt, á milli Eistlands, Rússlands og Finnlands.
Samkvæmt Rússum var skipið á leið til Kalíngrad en ríkisstjóri Leníngrad-héraðsins Aleksandr Drozdenko greindi frá í skilaboðum á forritinu Telegram. Þar segir að árásin hafi átt sér stað þremur sjómílum frá rússnesku landamærunum á alþjóðlegu hafsvæði. Verið sé að flytja áhöfnina frá borði og umfang tjóns á skipinu sé til skoðunar. Ekki hefur komið fram hver stendur að baki árásinni.
Finnska landamæraeftirlitið segir að skipið hafi nú rakið inn í finnska lögsögu og að eftirlitið sé á leið á vettvang en að árásin skapi ekki hættu fyrir aðra skipaumferð.
Danska ríkisútvarpið greinir frá því að tilkynningar hafi borist um dróna yfir Eystrasalti í nótt og að þotur á vegum NATO hafi verið sendar á loft. Íbúar Eistlands hafi verið varaðir við í kjölfarið og Finnar sett á ýmsar takmarkanir á flug- og skipaumferð.
Ekki er ljóst hvort að takmarkanir finnskra stjórnvalda séu vegna árásarinnar á skip Rússa. Þann 12. nóvember síðastliðinn öxluðu Úkraínumenn ábyrgð á rússnesku herskipiá svipuðu svæði.
Forsætisráðherra Finnlands, Perreri Orpo, tjáir sig um árásina í færslu á X og segir meðal annars stríð teygja anga sína til Finnlands.
„Stríðið teygir anga sína til nærsvæða okkar. Finnsk yfirvöld sinna ástandinu á Finnlandsflóa, þar sem drónaárás hefur hæft rússneskt kaupskip. Úkraína hefur rétt til að berjast gegn innrásaraðilanum,“ skrifar hann.