Kvenna­krimmi til­einkaður pabba - Vísir

Kvenna­krimmi til­einkaður pabba - Vísir

Kvenna­krimmi til­einkaður pabba - Vísir

Birna Anna var svo vinsamleg að gefa kost á viðtali. Bókin heitir Hótel Héðinsfjörður og undir titlinum má sjá orðin „Gönguskíði. Lúxushótel. Lík.“ Hvernig ber að skilgreina þessa sögu? Birna Anna hlær við.

„Ég lagði eiginlega upp með að skrifa gamaldags morðgátu – það er að segja gamaldags að forminu til en að setja hana inn í mjög svo nútímalegar íslenskar aðstæður. Gamaldags morðgátur eru sameiginlegt áhugamál okkar pabba og hafa verið alla tíð. Ég hef alltaf haft það í huga að prófa einhvern tímann að skrifa slíka sögu. Nú gerði ég það, og bókin er tileinkuð pabba mínum, Birni Ragnarssyni.“

Háskaspil að prófa eitthvað nýtt

Birna Anna segir það rétt, sem er auðvitað ekki flókin tilgáta, að það sé mikil Agatha Christie í bókinni.

„Já, og það var með ráðum gert. Og ekki bara lausleg vísun heldur tók ég vísvitandi þræði og þemu sem liggja í gegnum hennar verk, ekki síst smásögur hennar og setti þær inn í söguna.“

Er pabbi þinn einlægur Agatha Christie-aðdáandi?

Já, hann er það og smitaði mig unga af þeim áhuga. Við höfum í gegnum árin tekið sögurnar, lesið og svo horft á þættina, borið saman sögurnar skrifaðar og sjónvarpsútgáfurnar. Við lesum aftur og aftur og horfum aftur og aftur.“

Birna Anna segir einboðið að honum sé tileinkuð sagan.

„Já, ekki spurning. Þessi bók er skrifuð með hann í huga og þetta er raunar í fyrsta sinn sem ég tileinka einhverjum bók.“

Agatha Christie er í miklu uppáhaldi hjá Birnu Önnu sem og pabba hennar.vísir/anton brink

Þótt bókin sé tileinkuð pabba þínum þá er þetta líka mikil kvennabók þótt þarna slæðist stöku karl með, en það virðist meira til málamynda?

„Já, þetta er algjör kvennasaga, það er rétt. En ég vona samt að karlar geti haft gaman að.“

Og rithöfundurinn snýr nú andskotanum upp á ömmu sína og spyr: Eða hvað finnst þér? Og mér finnst sagan æsispennandi og öllum helstu þráðum til haga haldið. Það má ekki segja of mikið en þarna er eitt og annað sem kemur verulega á óvart?

„Það er frábært að heyra. Jú, það er alltaf dálítið háskaspil að prófa eitthvað nýtt, en um leið mjög gaman. Og maður getur auðvitað aldrei vitað hvernig það heppnast. En þar liggur held ég það skemmtilega, og það má yfirfæra á allt, öll viðfangsefni, ekki bara skrif. Að prófa nýtt, læra um leið og maður gerir. Það er einhver neisti í því sem keyrir mann áfram.“

Liggur beint við að skoða líf kvenna

Birna Anna hugsar sig um.

„En varðandi kvennasöguna þá held ég að það liggi mjög beint fyrir mér að skoða líf kvenna og kvenpersónur. Mér finnst það skemmtilegt og þangað fara allar mínar sögur.“

Og þá vill nú svo vel til að mikill meirihluti lesenda er einmitt konur.

Af hverju lesa konur miklu meira en karlar? vísir/anton brink

„Mér fannst sérlega skemmtilegt með þessa sögu, að vera með þetta mjög svona ákveðna form, og að geta svo farið á flug með að búa til persónur, flækjur þeirra, sambönd, baksögur, vinkvennasambönd, allt þetta, og fara bara dálítið djúpt í það, en halda því öllu innan þessa forms. Það fannst mér í raun mjög gaman.“

Akkúrat.

„En, já, konur eru einmitt stærsti hluti lesenda, það er rétt.“ Og nú skýtur Birna Anna fram gagnspurningu sem kemur spyrlinum í opna skjöldu: „Af hverju heldur þú að karlar lesi ekki eins mikið – að minnsta kosti ekki eins mikið af skáldskap og konur?“

Já! Það er góð spurning sem ég hef því miður engin svör við. Ekki í stuttu máli, í það minnsta. Hvað varstu lengi að vinna þessa sögu?

„Ég er búin að grípa í hana öðru hvoru undanfarin ár, satt best að segja. Ég gerði fyrsta hráa uppkastið að henni líklega 2022, tók mér þá hlé, en kom aftur að þessu og kláraði í fyrravetur.“

Fléttan lá að verulegu leyti fyrir

Birna Anna segist ekki hafa verið lengi að hnýta lausa enda í sögulok.

„Eiginlega ekki, ég var komin með stóru myndina, búin að byggja strúktúrinn áður en ég byrjaði að skrifa. Það gerði skrifin síðan mjög skemmtileg, því ég vissi hvert stefndi. Skrifin sjálf snerust mest um að skapa persónur, búa til stemmningu, tilfinningu fyrir staðnum, veðrinu, framvindu, allt þetta safaríka dót sem plottið er síðan eins og strúktúr utan um.“

Birna Anna segir þetta í fyrsta skipti sem hún hefur þennan háttinn á sem rithöfundur.

„Hinar bækurnar mínar hafa verið meira flæði og framvindan orðið til í ferlinu. En þegar maður skrifar inn í svona hefð verður strúktúrinn að halda, og því gerði ég þetta svona að þessu sinni. En persónurnar, umhverfið og stemmningin, allt þetta varð til í ferlinu hér, þó að plottið væri tilbúið fyrir fram. Svo það var fullt af frelsi í ferlinu líka.“

Hver einasti lesandi er þátttakandi í að búa til sína eigin útgáfu af sögunni sem viðkomandi les.vísir/anton brink

Gott og vel. Svo laumarðu bókmenntafræði inn í þessa súpu: „Bækur segja manni miklu meira um mannfólkið en fólkið sjálft,“ útskýrði hann, því í bókum væri maður ekki sjálfur flæktur inn í aðstæðurnar. Í bókum sæi maður fólk utan frá og fylgdist líka með innra lífi þess, utan frá, án persónulegra tengsla og tilfinningalegra hagsmuna“ (bls. 89). Þetta er býsna fín pæling, bara út af fyrir sig?

„Já, nákvæmlega! Þetta er nú galdurinn við bækur. Þær eru tækifæri okkar til að máta okkur við innra líf annarra. Og lestur er svo skapandi ferli eins og við vitum, hver einasti lesandi er þátttakandi í að búa til sína eigin útgáfu af sögunni sem viðkomandi les.“

Var alltaf illa við stimpilinn „skvísubók“

Mig hefur alltaf langað að spyrja þig út í Dís, bók sem sló í gegn og þú skrifaðir í félagi við Silju Hauksdóttur og Oddnýju Sturludóttur; þetta er fyrsta skvísubókin sem kom út á Íslandi?

„Já, sko, við vorum ekki alltaf svo hrifnar af skvísubókarstimplinum, en kannski skiptir það ekki öllu hvernig bækur eru flokkaðar, svo lengi sem fólk les þær og fær það sem það fær út úr þeim.“

Mér finnst skvísubækur stórmerkilegt fyrirbæri.

„Já. Á þessum tíma fannst okkur þetta smá svona, ef ungar konur skrifa bækur um innra líf ungra kvenna eru það skvísubækur en ef ungir karlar skrifa bækur um innra líf ungra karla þá eru það bara bækur. En það er svo sem alveg rétt að þetta var merkileg bylgja sem kom þarna í kjölfar Bridget Jones sem var líklega fyrsta skilgreinda skvísubókin og varð svo til þess að hellingur af ungum kvenrithöfundum riðu fram á ritvöllinn með samtímasögur um líf ungra kvenna.“

En þessi stimpill hefur farið í taugarnar á ykkur?

„Já, en bara af þessum ástæðum, að okkur fannst bækur karla metnar hærra að sumu leyti en bækur kvenna þó að viðfangsefnin væru þau sömu. En þetta er gömul saga og ný. Virgina Woolf sagði: „A scene in a battle-field is more important than a scene in a shop.“ Þetta er úr A Room of Ones Own en þar fjallar hún um aðstæður kvenna til skrifta.“

Birna Anna telur að viðfangsefni karla hafi fram til þessa þótt merkilegri en kvenna, stríð þyki miklu merkilegra en daglegt líf. En hvert er ég að fara með þetta? Þið skrifuðuð þetta í félagi þrjár. Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna ekki er meira um það?

„Já, það er spurning. Samskrif eru mjög algeng, ef ekki næstum því reglan, í handritaskrifum, bæði í sjónvarpi og kvikmyndum. En í bókum er það langoftast einn höfundur.“

Er að lifa drauminn

Er þetta ef til vill mýtan sem flækist fyrir, snillingurinn einn berklaveikur uppi á kvistherbergi að skrifa, eða er þetta eitthvað annað?

„Ekki má gleyma því að ritstjórar og yfirlesarar koma að hverri einustu bók og bók er í raun sjaldnast einstaklingsverkefni eða afrek eins þjáðs berklaveiks (!) snillings, þótt hann sé á endanum skrifaður fyrir verkið.“

Varst þú með góðan ritstjóra?

„Ójá, ég hef verið svo heppin að hafa sama ritstjóra alla tíð, Pál Valsson, og allir sem þekkja hann og hafa unnið með honum vita að þar fer einstakur fagmaður og vinur sem kemur að öllum mögulegum og ómögulegum hliðum þess að koma handriti úr óreiðu í flott bókarform.“

Þetta er þín fimmta bók. Ætlaðirðu alltaf að verða rithöfundur?

„Já, eiginlega var það snemma minn draumur, að vinna fyrir mér með skrifum. Og ég fékk vinnu ung sem blaðamaður og fór svo yfir í að skrifa bækur alfarið. 

Birna Anna Björnsson segir skilgreininguna skvísubók, þá um Dís, hafi alltaf farið í taugarnar á þeim rithöfundum sem hana skrifuðu.vísir/anton brink

Ég las mikið sem barn, var alltaf með bók í hönd, kláraði barnabækurnar ung og byrjaði snemma að lesa fullorðinsbækur og var alltaf dálítið með hausinn ofan í bókum. Ég fór svo í heimspeki í háskólanum og gerði það eiginlega til að fá dýpri sýn á orð, texta og hugmyndir. Þetta var kannski ekki beint plan, kannski auðveldara að sjá þráðinn eftir á, en leiðin lá samt í þessa átt.“

Þannig að þú ert að lifa drauminn? (Birna Anna hlær við þessari skelfilegu spurningu.)

„Erum við ekki öll alltaf að eltast við drauminn! En já, kannski í stóru myndinni, það er frábært að vinna við það sem er skemmtilegt, þó að það komi alveg stundir þar sem maður efast um hvort þetta sé það mikilvægasta sem hægt er að leggja af mörkum fyrir mannkynið,“ segir Birna Anna og hlær dátt.

Að láta ekki vinnuna skilgreina sig um of

„En svo má ekki gleyma því að vinnan er eitt og lífið er eitt og við erum ekki endilega vinnan okkar. Þetta finnst mér eitthvað sem ég hef verið að læra siglandi inn í miðjan aldur,“ segir Birna.

Eru þeir alltof margir kannski sem láta vinnuna skilgreina sig? Þiggja sjálfsmyndina þaðan?

„Ég veit það ekki alveg, ég held kannski þegar fólk er yngra þá skipti þetta meira máli, hvað við „gerum“. Og það er ekki endilega fólki sjálfu að kenna, samfélag okkar er dálítið þannig uppbyggt, „hvað gerir þú“ er oft fyrsta spurningin og það setur fólk í hólf. En svo þegar við eldumst sjáum við að við erum svo margt fleira, og annað fólk er svo margt fleira en bara það sem það gerir. Ég er mjög hlynnt því að meta fólk fyrir það sem það er og alls ekki út frá því hvað það gerir í vinnunni.“

Þú skrifar fyrir íslenskan markað en býrð úti í New York?

„Já, ég bý í New York mestan partinn af árinu, en er samt slatta mikið heima á Íslandi. En ég er á Íslandi öll sumur og jól og kem mikið heim almennt. Ég hugsa að ég sé heima svona 3–4 mánuði af árinu og restina í New York. Og þú sérð að ég kalla Ísland ennþá heima. Og mun alltaf gera það.“

Hvenær fluttirðu út og hvað kom til?

„Ég flutti út 2005 til að fara í framhaldsnám. Ég tók MA-gráðu í bókmenntafræði við New York University og svo þegar ég var búin var ég alls ekki tilbúin að kveðja borgina. 

Birna Anna var ekki búin að fá nóg af New York, hún elskar borgina og ætlaði að vera eitt ár í viðbót, annað til og þarna er hún enn.vísir/anton brink

Ég ákvað því að vera eitt ár enn, og svo eitt ár enn, svo eitt ár áfram og hér er ég enn. Þetta var ekki beint planað, þetta bara gerðist í þessu flæði sem lífið gjarnan er.“

Og tíminn flýgur?

„Heldur betur. Ég gjörsamlega elska þessa borg og þess vegna er ég nú hérna enn. Nema ég gæti ekki hafa verið svona lengi í burtu ef ég væri ekki í svona sterkum tengslum við Ísland og væri ekki svona mikið heima. Mér finnst ég í raun eiga tvö heimili.“

Dæturnar skilja íslensku vel

Birna Anna er með fjölskyldu úti í Bandaríkjunum.

„Já, ég á mann og tvær dætur, 12 ára og 15 ára. Sú eldri, Kata, var að byrja í „high school“ og sú yngri, Lára, er í „middle school“.“

Og tala dætur þínar íslensku?

„Þær skilja hana vel og tala svona frekar einfalda íslensku, enskan þeirra er þó miklu sterkari. Maðurinn minn, Peter, er enskumælandi, svo enska er mest töluð á heimilinu. En grunnurinn er þarna svo sannarlega og þegar við komum heim á sumrin þá liðkast alltaf fyrir íslenskunni þeirra. Þær eiga stóran hóp af íslenskum frændsystkinum og vinum sem þær eyða miklum tíma með á sumrin og í skólafríum.“

Þetta er býsna sterkur kokteill: Íslensk kona sem býr í New York ritar Agöthu Christie-krimma sem staðsettur er á nútíma Íslandi?

„Haha, já, vonandi er þetta bara fínasti kokteill!“

En hvers vegna krimmi?

„Þetta er satt að segja bara þessi morðgátuáhugi, árátta okkar pabba. Það er kveikjan að þessu, það sem keyrði þetta af stað. Svo þegar ég var byrjuð fannst mér svo ótrúlega gaman að búa til þessar (vonandi) safaríku persónur innan þessa forms.“

Vinirnir í New York kvarta yfir því að geta ekki lesið

Glæpasagan virðist halda sínu á metsölulistum en á móti kemur að bóksala hefur hrunið á undanförnum tíu árum um helming. Hvað veldur því, að þínu mati?

„Er þetta ekki að stóru leyti vegna þess að fólk er að lesa á öðru formi, það hlustar í meira mæli á hljóðbækur? Þannig að fólk er kannski að lesa/hlusta mikið á bækur þó að það kaupi þær ekki eins mikið á bókarforminu.“

En sérðu fyrir þér að bókin komi út á öðru tungumáli? Nú ættu að vera hæg heimatökin?

„Já, það yrði nú skemmtilegt ef það tækist og kannski er það næsta verkefni að koma henni út í Bandaríkjunum.

Birna Anna segir vini hennar í New York gjarnan kvarta undan því að þeir geti ekki lesið bækurnar hennar.vísir/anton brink

Vinir mínir í New York kvarta að minnsta kosti yfir því að geta ekki lesið hana og ég held að þau séu ekki bara að vera „næs“ þegar þau segja að efnið gæti höfðað til fólks í Bandaríkjunum. Íslenskur vinkvennahópur sem fer í skíðaferð á afskekkt lúxushótel verður veðurtepptur í sögulegum stormi og svo er framið morð!“

Ertu byrjuð á næstu bók?

„Já, ég er byrjuð á nýrri bók, og hún er allt allt öðruvísi en þessi.“

Athyglisvert. Og ég veit að það þýðir ekkert að pumpa þig um efni hennar?

Þögn.

Og það passar.

#kvennakrimmi #pabba #tileinkaður #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262964234d/kvenna-krimmi-til-einkadur-pabba

📰 Aðrar fréttir

Handklæði kom Hollywood-stjörnu í stórkostleg vandræði – Krafinn um 750 milljónir
📅 21.11.2026 👁️ 1
Handklæði kom Hollywood-stjörnu í stórkostleg vandræði – Krafinn um 750 milljónir
Bandaríska leikaranum Stephen Baldwin hefur verið stefnt af tryggingafélagi sem krefur hann um rúmlega sex milljónir dollara, jafnvirði um 750 milljón...
Sigmundur Ernir skrifar: Fénýting forsetaembættis
📅 21.11.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Fénýting forsetaembættis
Mynd Á tveggja vikna ferð minni um Bandaríkin, fyrr í mánuðinum,
Óvæntur glaðningur beið íbúanna í póstkössunum – Enginn veit hver var að verki
📅 21.11.2026 👁️ 1
Óvæntur glaðningur beið íbúanna í póstkössunum – Enginn veit hver var að verki
Íbúar fjölbýlishúss í hollensku borginni Schiedam hafa á undanförnum dögum fengið heldur óvænta glaðninga í póstkassa sína.Að minnsta kosti tíu íbúar ...
Miðflokkurinn á flugi – Ný könnun vekur athygli
📅 21.11.2026 👁️ 1
Miðflokkurinn á flugi – Ný könnun vekur athygli
Miðflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og mælist nú með 15,1 prósent. Flokkurinn mældist með 13,4 prósent í október og hefur ...
El Salvador sendir yfir tvö þúsund hermenn til Haítí gegn glæpagengjum
📅 21.11.2026 👁️ 2
El Salvador sendir yfir tvö þúsund hermenn til Haítí gegn glæpagengjum
El Salvador hefur sent ríflega tvö þúsund hermenn til Haítí til að berjast við glæpagengi, eftir að fjórir salvadorskir flugvirkjar sem störfuðu með ö...
Lög­reglan lýsir eftir Niku­lási - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Lög­reglan lýsir eftir Niku­lási - Vísir
Ekkert hefur spurst til hans síðan á þriðjudaginn 10. nóvember síðastliðinn.  Nikulás er rúmir 170 sentimetrar á hæð og þéttvaxinn. Talið er líklegt a...
Réttlætir óviðeigandi hegðun dreifingu á kynferðislegu myndefni?
📅 21.11.2026 👁️ 1
Réttlætir óviðeigandi hegðun dreifingu á kynferðislegu myndefni?
Það getur varðað við hegningar- og persónuverndarlög að dreifa stafrænu efni af fólki í aðstæðum sem ættu að vera einkamál óháð því hvort þeir sem á m...
Siglfirðingar funda með Veðurstofunni í kjölfar óveðursins
📅 21.11.2026 👁️ 1
Siglfirðingar funda með Veðurstofunni í kjölfar óveðursins
Afleiðingar óveðursins 14. október, þegar mikið tjón varð á Siglufirði, voru ræddar á fundi Siglfirðinga og Veðurstofunnar. Veðurstofan kynnti hvað sp...
Íslendingar verða að vera vakandi fyrir mögulegum aðgerðum Rússa hér
📅 21.11.2026 👁️ 1
Íslendingar verða að vera vakandi fyrir mögulegum aðgerðum Rússa hér
Utanríkisráðherra segir tilraunir Rússa til að fá danska menn til að ráða úkraínskan rappara af dögum endurspegla alvarlega öryggisógn. Til greina kem...
Velta fyrir sér hver næsta Bond-stúlkan verði - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 1
Velta fyrir sér hver næsta Bond-stúlkan verði - Vísir
Það kom án efa þó nokkrum á óvart að Pattinson hafi orðið fyrir valinu og gera netverjar nú góðlátlegt grín að því að leikarinn steli starfi allra ann...
Tíma­setningin engin til­viljun - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
Tíma­setningin engin til­viljun - Vísir
Lögregla telur sig komna með nokkuð skýra mynd af atburðarásinni í Austurbergi umrædda nótt. Fullorðnir feðgar, sonurinn á miðjum fertugsaldri og faði...
Princess Catherine's cancer journey to be depicted in new show
📅 21.11.2026 👁️ 1
Princess Catherine's cancer journey to be depicted in new show
Catherine has spoken about how "cancer does change you" in a documentary that will be screened on BBC One on 29 November.
Fjárfestar óstyrkir yfir lækkun gervigreindarfyrirtækja í gær
📅 21.11.2026 👁️ 2
Fjárfestar óstyrkir yfir lækkun gervigreindarfyrirtækja í gær
Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum lækkuðu duglega í gær og margir greinendur skella skuldinni á gervigreindarfyrirtæki. Fjárfestar séu orðnir efins u...
Hefur séð allar 25 James Bond-myndirnar – Þessi er sú allra versta
📅 21.11.2026 👁️ 2
Hefur séð allar 25 James Bond-myndirnar – Þessi er sú allra versta
Nú þegar staðfest hefur verið að Robert Pattinson taki við hlutverki James Bond af Daniel Craig er ekki úr vegi að rifja upp rúmlega sex áratuga sögu ...
Ráðist á rúss­neskt skip á Finnska flóa - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
Ráðist á rúss­neskt skip á Finnska flóa - Vísir
Finnska ríkisútvarpið Yle greinir meðal annars frá og hefur eftir finnska hernum að hann hafi orðið var við árásina í austanverðum Finnska flóa við Ey...
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Við erum ekki eyland þó að við séum eyja
📅 21.11.2026 👁️ 2
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Við erum ekki eyland þó að við séum eyja
Utanríkismálin eru beintengd hagsmunum okkar hér innanlands. Utanríkismálin hafa verið í deiglunni allt kjörtímabilið og þegar ríkisstjórnin var myndu...
Við­reisn tapar fylgi og Miðflokkur rís - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Við­reisn tapar fylgi og Miðflokkur rís - Vísir
Í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi í nóvember mælist Samfylkingin stærst með 27,8% fylgi. Flokkurinn missir örlítið fylgi mill...
Ásdís gefur ekkert eftir: Samfélagsbanki geti reynst skattgreiðendum dýrkeyptur
📅 21.11.2026 👁️ 2
Ásdís gefur ekkert eftir: Samfélagsbanki geti reynst skattgreiðendum dýrkeyptur
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, stendur föst á þeirri skoðun sinni að ríkið eigi að selja Landsbankann og nýta söluandvirðið til að greið...
Princess of Wales: Catherine talks about her cancer journey in new documentary Heal
📅 21.11.2026 👁️ 2
Princess of Wales: Catherine talks about her cancer journey in new documentary Heal
"There is a much, much deeper part to what a cancer diagnosis shifts in you," says Catherine in the documentary.
Zelensky says Crimean Bridge strikes 'fair response' as he meets UK's Streeting
📅 21.11.2026 👁️ 2
Zelensky says Crimean Bridge strikes 'fair response' as he meets UK's Streeting
Ukraine's president says Kyiv acted after 109 separate Russian aerial attacks on bridges in Ukraine.
Glæ­ný könnun um fylgi flokka á Al­þingi - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Glæ­ný könnun um fylgi flokka á Al­þingi - Vísir
Reiknað er með að hviður nái allt að 35 metrum á sekúndu undir fjöllum sunnan- og vestantil á landinu í kvöld og þangað til á morgun. Gular viðvaranir...
Bréf Róberts Spanó sem utanríkisráðuneytið hefði átt að lesa
📅 21.11.2026 👁️ 2
Bréf Róberts Spanó sem utanríkisráðuneytið hefði átt að lesa
Erna Bjarnadóttir skrifar: Í janúar 2010, þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave-lögin var fram undan, leitaði Samband ungra sjálfstæðismanna til umb...
Missti ævisparnaðinn á einni nóttu – Það sem hann sagði eiginkonunni vekur athygli
📅 21.11.2026 👁️ 2
Missti ævisparnaðinn á einni nóttu – Það sem hann sagði eiginkonunni vekur athygli
Hollywood-leikarinn John Malkovich hefur rifjað upp hvernig hann missti nánast allan ævisparnað sinn í einu umfangsmesta fjársvikamáli sögunnar.Leikar...
Búin með fyrstu þrep til­raunarinnar í Hval­firði - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
Búin með fyrstu þrep til­raunarinnar í Hval­firði - Vísir
Rannsóknafélagið Röst stendur fyrir tilrauninni. Hún felst í því að veita útþynntri vítissódalausn út í Hvalfjörð til þess að kanna fýsileika þess sem...
Átakanlegt útkall hefur fylgt Sigurði árum saman: „Mér var ekki boðin áfallahjálp“
📅 21.11.2026 👁️ 2
Átakanlegt útkall hefur fylgt Sigurði árum saman: „Mér var ekki boðin áfallahjálp“
Sigurður Árni Reynisson, kennari og fyrrverandi lögreglumaður, rifjar upp átakanlegt útkall sem hefur fylgt honum árum saman. Hann segir að honum hafi...
Vikulokin: Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur
📅 21.11.2026 👁️ 3
Vikulokin: Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur
Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00.Í fyrsta hluta þáttarins v...
Gúmmíhanski í lífræna ruslinu getur kostað sigurinn
📅 21.11.2026 👁️ 2
Gúmmíhanski í lífræna ruslinu getur kostað sigurinn
Íslenska kokkalandsliðið er í Lúxembúrg á HM í matreiðslu og ætlar sér sigur. Ísland hefur lengi verið í fremstu röð og tvívegis unnið til bronsverðla...
„Bláskógarskatturinn“: Odd­vitinn frétti af gjaldinu í fjöl­miðlum - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
„Bláskógarskatturinn“: Odd­vitinn frétti af gjaldinu í fjöl­miðlum - Vísir
„Ekkert símtal barst frá forsætisráðuneytinu eða atvinnuvegaráðuneytinu. Enginn hafði samband til að kynna áformin eða leita eftir sjónarmiðum sveitar...
Gerði áður grín að fólki sem bjó sig undir hamfarir – Nú er hún sjálf farin að safna birgðum
📅 21.11.2026 👁️ 2
Gerði áður grín að fólki sem bjó sig undir hamfarir – Nú er hún sjálf farin að safna birgðum
Breski pistlahöfundurinn Annabel Fenwick Elliott gerði áður grín að fólki sem safnaði neyðarbirgðum og bjó sig undir stórfelldar hamfarir. Nú er hún s...
Rússar sakaðir um að skipuleggja morð í Danmörku – Þorgerður Katrín bregst við
📅 21.11.2026 👁️ 3
Rússar sakaðir um að skipuleggja morð í Danmörku – Þorgerður Katrín bregst við
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fordæmir harðlega meint áform Rússa um að ráða úkraínskan rappara af dögum í Danmörku.Dönsk yfirvöld ...
Jólaföndursdagur varð desemberdagur – móðir og bæjarfulltrúi gagnrýna nafnið
📅 21.11.2026 👁️ 3
Jólaföndursdagur varð desemberdagur – móðir og bæjarfulltrúi gagnrýna nafnið
Fléttuð jólahjörtu, klassískt danskt jólaföndur. Myndin er ekki frá Munkholmskolen. Mynd: Björn Söderqvist / Wikimedia Commons (CC BY-SA 2.0). Fléttuð...
Reiknað með kröftugum hviðum undir fjöllum - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 5
Reiknað með kröftugum hviðum undir fjöllum - Vísir
„Undir Eyjafjöllum er reiknað með hviðum allt að 35 metrum á sekúndu síðar í dag frá um klukkan 18 og til miðnættis. Eins á utanverðu Kjalarnesi og un...
Nablinn vill geta horft á sjón­varpið meðan hann teflir við páfann - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Nablinn vill geta horft á sjón­varpið meðan hann teflir við páfann - Vísir
Heima horfir Andri á sjónvarpið hvenær sem færi gefst og er sjónvarpsáhuginn slíkur að hann er farinn að íhuga að setja upp skjá á baðherberginu. Við ...
Ók á 126 kílómetra hraða eftir að hafa neytt áfengis
📅 21.11.2026 👁️ 3
Ók á 126 kílómetra hraða eftir að hafa neytt áfengis
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt, en alls voru 72 mál skráð í kerfi hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan...
Borga íslenskar bókmenntir sig?
📅 21.11.2026 👁️ 4
Borga íslenskar bókmenntir sig?
Ríkið styrkir rithöfunda og útgáfur um rúman milljarð á ári. Skattar og gjöld af styrkjunum og virðisaukaskattur af bóksölu skila þessari upphæð og me...
Jólasíldin komin á fötur í Neskaupstað og skilar nýjum tækjum á sjúkrahúsið
📅 21.11.2026 👁️ 3
Jólasíldin komin á fötur í Neskaupstað og skilar nýjum tækjum á sjúkrahúsið
Jólasíldin er klár í Neskaupstað. Mörgum þykir síldin ómissandi á aðventunni og föturnar frá Síldarvinnslunni afla fjár til tækjakaupa á sjúkrahúsi Au...
Auglýsa eftir ökumanni sem ók á dreng á rafhlaupahjóli
📅 21.11.2026 👁️ 4
Auglýsa eftir ökumanni sem ók á dreng á rafhlaupahjóli
Lögreglan á Norðurlandi eystra auglýsir eftir ökumanni sem ók á dreng á rafhlaupahjóli á Mýrarvegi við Vanabyggð þriðjudagskvöldið 22. september.Atvik...
Aug­lýsa eftir öku­manni eftir að ekið var á dreng - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Aug­lýsa eftir öku­manni eftir að ekið var á dreng - Vísir
Í Facebook-færslu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir að slysið hafi átt sér stað á Mýravegi við Vatnabyggð á Akureyri um klukkan 20:30 umræddan d...
Government concerned that rising UK flight costs will affect tourism in the Canary Islands
📅 21.11.2026 👁️ 4
Government concerned that rising UK flight costs will affect tourism in the Canary Islands
The Canary Islands Government has warned that fewer airline seats and higher ticket prices could affect tourism in the coming months, particularly fro...
Sekur um í­kveikju mann­skæðra gróðurelda - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Sekur um í­kveikju mann­skæðra gróðurelda - Vísir
Rannsókn leiddi í ljós að eldurinn var líklega kveiktur viljandi á nýársdag. Hann var slökktur en blossaði aftur upp þann 7. janúar og dreifðist hratt...
Gul viðvörun vegna suðaustan hvassviðris
📅 21.11.2026 👁️ 5
Gul viðvörun vegna suðaustan hvassviðris
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun því von er á hvassviðri eða stormi á landinu sunnan- og vestanverðu í kvöld og í nótt. Vindhviður gætu farið ...
Woman arrested for stealing from holiday apartments in Fuerteventura
📅 21.11.2026 👁️ 4
Woman arrested for stealing from holiday apartments in Fuerteventura
A woman has been arrested on suspicion of stealing cash and valuables from holiday apartments in Costa Calma, in the south of Fuerteventura.The Guardi...
Loka landamærunum milli Eistlands og Rússlands
📅 21.11.2026 👁️ 4
Loka landamærunum milli Eistlands og Rússlands
Ríkisstjórn Eistlands hefur ákveðið að loka landamærunum milli Eistlands og Rússlands í sex mánuði frá 1. desember. Með þessum aðgerðum vilja Eistar s...
Fight over fossil fuels leaves COP31 climate talks in deadlock
📅 21.11.2026 👁️ 3
Fight over fossil fuels leaves COP31 climate talks in deadlock
Countries from nearly 200 countries are in a deadlock to try and get a new global climate agreement.
PM Andy Burnham will meet the Birmingham pub bombing families in the new year
📅 21.11.2026 👁️ 4
PM Andy Burnham will meet the Birmingham pub bombing families in the new year
Andy Burnham has confirmed that he will meet families in Birmingham early in the new year.
Hvass­viðri og við­varanir í kortunum - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Hvass­viðri og við­varanir í kortunum - Vísir
„Hæð fyrir austan land og lágur þrýstingur suðvestan og vestan við landið munu valda stífri suðlægri átt hjá okkur næstu daga. Búast má við úrkomusömu...
Leyni­vopnið í öllum sam­ræðum: Næsta spurning - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Leyni­vopnið í öllum sam­ræðum: Næsta spurning - Vísir
En veistu hvað: Þetta er ekki árangursríkasta leiðin til að slá í gegn eða mælast vel fyrir í samræðum. Því samkvæmt rannsókn Harvard-háskóla náum við...
Óttar Guðmundsson skrifar: Heimsendaspámenn
📅 21.11.2026 👁️ 4
Óttar Guðmundsson skrifar: Heimsendaspámenn
Mynd Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf út bæklinginn
Söngurinn sem fóður andans og friðsamleg andspyrna
📅 21.11.2026 👁️ 3
Söngurinn sem fóður andans og friðsamleg andspyrna
Söngur skipar stóran sess í lífi íbúa Eystrasaltsríkjanna þriggja: Eistlands, Lettlands og Litáens. Þjóðlögin skipta hundruðum þúsunda í Lettlandi og ...
Ráðgjöf Heiðu Kristínar: Gaf út reikning áður en samningurinn var undirritaður – og tvo eftir að hann rann út
📅 21.11.2026 👁️ 3
Ráðgjöf Heiðu Kristínar: Gaf út reikning áður en samningurinn var undirritaður – og tvo eftir að hann rann út
Fyrsti reikningur Nebraska ehf., félags Heiðu Kristínar Helgadóttur, til utanríkisráðuneytisins vegna ráðgjafar hennar við Þorgerði Katrínu Gunnarsdót...