Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum lækkuðu duglega í gær og margir greinendur skella skuldinni á gervigreindarfyrirtæki. Fjárfestar séu orðnir efins um að þessi fyrirtæki séu jafnverðmæt og hlutabréfaverð þeirra gefur til kynna.
Dario Amodei, stofnandi Anthropic, sem rekur gervigreindarforritið Claude, hringdi bjöllu NASDAQ hlutabréfamarkaðarins á Wall Street á fimmtudag sigri hrósandi. Frumútboð félagsins er af mörgum talið það stærsta í sögunni. Markaðsvirði í lok fyrsta dags þess á markaði nam 1.300 milljörðum dollara.
En þrátt fyrir gott gengi þennan fyrsta dag lækkaði verðið um 9% í gær. Þar að auki lækkaði örgjörvaframleiðandinn Nvidia, sem gustað hefur um að undanförnu, um 14%. Nýleg rannsókn fjármálaeftirlits Bandaríkjanna gæti haft eitthvað um það að segja.
Fjárfestar eru margir farnir að efast um að gervigreindarfyrirtæki séu jafnverðmæt og hlutabréfaverð þeirra gefur til kynna. Enn sé að mörgu leyti óvíst hvort gervigreindarfyrirtæki skili miklum hagnaði, alltént hvort þau skili hagnaði sem er í takti við fjárfestingar þeirra í hvers kyns innviðum fyrir gervigreind. Ævintýralegum upphæðum hefur verið sturtað upp á síðkastið í gagnaver og ekki eru allir sannfærðir um að þetta fjáraustur skili sér aftur til hlutabréfaeigenda.
Nasdaq-vísitalan lækkaði um 5,3% í gær, S&P vísitala 500 verðmætustu fyrirtækja á Wall Street um 3,7% og Dow Jones um 1,9%. Þar með fór árshækkun Nasdaq út um gluggann og gott betur. Vísitalan er 2,7 prósentum lægri en um áramót. Markaðir opna ekki aftur fyrr en á mánudagsmorgun og víst þykir að einhverjir fjárfestar sofi illa um helgina fyrir áhyggjum.
Greinendur segja að nýafstaðnar þingkosningar í Bandaríkjunum, þar sem Repúblikanar töpuðu illa, geti haft áhrif. Þeir telja að með sigri Demókrata sé líklegra að hömlur verði settar á gervigreind og uppbyggingu gagnavera og því vilji fjárfestar forða eignum sínum í skjól áður en kemur til lækkana.
Þó eru greinendur ekki á einu máli. Sumir telja fjárfesta bregðast of harkalega við, enda séu tekjur og hagnaður tæknifyrirtækja enn mikill.