En veistu hvað: Þetta er ekki árangursríkasta leiðin til að slá í gegn eða mælast vel fyrir í samræðum.
Því samkvæmt rannsókn Harvard-háskóla náum við betri árangri með allt öðru:
Að spyrja.
Sko….
Það sem okkur er tamt að gera er að svara með því að koma með okkar eigin sögu.
Dæmi:
Einhver segir við okkur: „Ég var að koma heim frá Tene…“
Þá svörum við: „Já, við fórum einmitt til Alicante í sumar…“
Hið rétta er að spyrja: Hvernig var?
Og það sem meira er – samkvæmt þessari sömu rannsókn – eru framhaldsspurningar sérstaklega góðar.
Dæmi:
Í samskiptatilraun spjölluðu 430 manns við ókunnuga í fimmtán mínútur. Annar átti að spyrja minnst níu spurninga, hinn mest fjögurra. Þeir sem spurðu meira þóttu viðkunnanlegri.
Eitt þarf þó að hafa í huga. Of margar spurningar, eða dónalegar og endurteknar, geta snúist upp í andhverfu sína. Enginn vill lenda í yfirheyrslu yfir kaffibollanum.
Þrenn góð ráð
1. Hlustaðu eftir einu orði. Í flestum setningum er eitt orð sem stendur upp úr, eins og „Tene“, „nýja vinnan“ eða „hnéð“. Spurðu út í það.
2. Ekki skipta strax um umræðuefni. Spurðu einnar spurningar í viðbót áður en þú segir þína sögu.
3. Gefðu líka af þér. Samtal er ekki viðtal. Segðu frá sjálfum þér inn á milli svo spjallið verði á báða bóga.
Helgarverkefnið
Við morgunverðarborðið, í símtalinu við mömmu eða í heita pottinum: Spurðu einnar framhaldsspurningar áður en þú skiptir um umræðuefni. Sjáðu svo hvað gerist.
Helgarverkefnið
Við morgunverðarborðið, í símtalinu við mömmu eða í heita pottinum: Spurðu einnar framhaldsspurningar áður en þú skiptir um umræðuefni. Sjáðu svo hvað gerist.