„Undir Eyjafjöllum er reiknað með hviðum allt að 35 metrum á sekúndu síðar í dag frá um klukkan 18 og til miðnættis. Eins á utanverðu Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli frá um klukkan 20 í kvöld og til hádegis á morgun.
Um tíma í fyrramálið utan til á Snæfellsnesi. Þá verður hvasst á Reykjanesbraut, þvert á akstursstefnu um tíma snemma í fyrramálið,“ segir í ábendingum til vegfarenda frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.
Veðrið er varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, segir á vef Veðurstofunnar en gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Suður- og Vesturlandi vegna hvassviðris eða storms.
Á höfuðborgarsvæðinu og Faxaflóa eru viðvaranir í gildi frá klukkan 21 í kvöld til klukkan 13 á morgun. Á Suðurlandi er viðvörun í gildi frá 20 í kvöld til klukkan 11 á morgun, á Breiðafirði frá 02 í nótt til 14 á morgun og frá 21 til 18 á miðhálendinu.
Spár gera ráð fyrir að seinnipartinn á morgun muni draga úr vindi og það lægi svo um munar á vestanverðu landinu.