Miðflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og mælist nú með 15,1 prósent. Flokkurinn mældist með 13,4 prósent í október og hefur því bætt við sig 1,7 prósentustigum milli mánaða.Frá þessu er greint á Vísi.Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins með 27,8 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn mælist næststærstur með 22,3 prósent. Báðir flokkar standa nokkurn veginn í stað milli mánaða.
Miðflokkurinn á flugi – Ný könnun vekur athygli