Ríkið styrkir rithöfunda og útgáfur um rúman milljarð á ári. Skattar og gjöld af styrkjunum og virðisaukaskattur af bóksölu skila þessari upphæð og meira til í ríkiskassann. Opinbert fjármagn til bókmennta hefur engu að síður dregist saman að raunvirði síðustu ár.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Hákon Gunnarsson, rekstrarhagfræðingur, gerði fjárhagsgreiningu á virðiskeðju og vistkerfi íslenskra bókmennta.
Niðurstaðan var einföld: „Það er beinn fjárhagslegur ávinningur af því að styðja við frumsköpun í ritlist,“ segir Hákon.
Rætt var við Hákon og Önnu Leu Friðriksdóttur, formann Félags íslenskra bókaútgefenda í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má heyra hér:
Hvað er vistkerfi íslenskra bókmennta?
Til vistkerfis íslenskra bókmennta heyra samtök og stofnanir tengdar bókum og bókaútgáfu, dreifing og sala, neysla og umfjöllun auk atvinnugreina sem byggja á hugverkunum sem verða til í bókum. Kjarnastarfsemin byggir þó alltaf á frumsköpun rithöfunda og útgáfu verka þeirra.
Svo reiða aðrar atvinnugreinar í listum og afþreyingu sig oft á hugverkin sem verða til í bókum. Kjarnastarfsemin byggist þó alltaf á frumsköpun rithöfunda og útgáfu verka þeirra.
Í atvinnustefnu Íslands eru fjórar meginstoðir. Ein þeirra er hugverkaiðnaður. Þar leika ritlist og bókaútgáfa lykilhlutverk.
Hákon líkir kjarnastarfsemi rithöfunda og útgefenda við ósæð. Háræðanetið samanstendur svo af dreifingu og sölu, neytendum, þekkingariðnaði, menntastofnunum, nýsköpun og sérfræðiþjónustu.
Opinberir styrkir skila sér aftur í ríkiskassann
Anna Lea Friðriksdóttir er formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Hún er líka bókaútgefandi og bóksali. „Mér finnst það merkilegasta í þessu eiginlega að þessi skýrsla sé komin út. Þetta er eitthvað sem við höfum haft lengi á tilfinningunni og við teljum okkur vita. En það er ofboðslega gott að sjá þetta svart á hvítu í skýrslunni,“ segir Anna Lea.
Með þessari nálgun fékk Hákon yfirsýn yfir þá styrki og fjármagn sem ríkið leggur til bókmenntasköpunar. Beinir styrkir til rithöfunda og útgáfa nema rúmum milljarði á ári.
Hákon bendir á að megnið af þessum peningum fái ríkið strax aftur í formi virðisaukaskatts. „Tekjur íslenska ríkisins af bóksölu eru 900 milljónir og allar þessir styrkir eru verktakagreiðslur, það eru áætlaðar svona 2 til 300 milljónir í skatta og skyldur af þessu. Þannig að þetta kemur allt til baka,“ segir hann.
Styrkir rýrna að raunvirði
Á síðustu fimm árum hefur opinber stuðningur í formi beins fjárhagslegs stuðnings staðið nánast í stað í krónutölu. Á sama tíma hefur verðbólga verið mikil og fjármagnið því rýrnað talsvert að raunvirði.
Opinber stuðningur við vistkerfið í heild er aðeins 67% af því sem það var árið 2020. Sé eingöngu horft á kjarnastarfsemi, það er frumsköpun höfunda og útgáfu verka þeirra, er stuðningurinn 76% af því sem hann var 2020.
Á síðustu tíu árum hafa listamannalaun einni rýrnað að raunvirði. Þau eru í dag 87% af virði þess sem þau voru fyrir tíu árum ef horft er til vísitölu neysluverðs. Rithöfundasambandið hefur jafnframt bent á að á sama tíma hafi laun almennt hækkað meira en verðlag. Þá hefur fjöldi mánaða ekki haldið í við mannfjöldaþróun.
Styrkir frá miðstöð íslenskra bókmennta, til útgáfu, þýðinga á íslensku, kynningarþýðinga, og ferðastyrkja hafa líka dregist saman frá 2016. Styrkirnir voru hækkaðir 2018 en eru í dag aðeins rúmur helmingur af því sem þeir voru 2020.
Viðsnúningur í rekstri forlaga
En hvað fáum við fyrir peningana? Skila þeir tilætluðum áhrifum? Árið 2018 stefndi í óefni á útgáfumarkaði. Þá hafði heildarvelta bókaútgefenda dregist saman um 43% á tíu ára tímabili.
Þá var ákveðið að forlög fengju endurgreiðslu á kostnaði vegna útgefinna bóka, svipað og tíðkast í kvikmyndabransanum. Árið 2005 lagði ríkið um 430 milljónir í þessa styrki. Sama ár námu svipaðir styrkir til kvikmyndageirans 6,6 milljörðum.
Anna Lea segir að bókaútgáfa hafi fyrir vikið náð að halda í horfinu. Raunar gerði hún meira en það því síðan lög um stuðning við útgáfu bóka voru sett hefur orðið viðsnúningur í rekstri forlaga og veltan er í dag 26% meiri en hún var þá.
„En það er kannski engin leið að segja hvernig umhverfið hefði verið ef þessi endurgreiðsla hefði ekki komið til skjalanna,“ segir hún.
Drög að bókmenntastefnu
2024 kynnti Lilja Alfreðsdóttir þáverandi menningarráðherra drög að bókmenntastefnu. Þegar Logi Einarsson tók við lagði hann fram drög að þingsályktunartillögu en hún dagaði uppi í nefnd.
Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu verður skýrslan nýtt í áframhaldandi vinnu á viðeigandi málefnasviðum.
Anna Lea segir opinberan stuðning stuðla að fjölbreytni í greininni. Án þeirra væru forlög ólíklegri til að taka áhættu. „Eins og kannski fræðibækur sem taka mörg ár í smíðum kosta mikið. Þær væru ekki að koma út þannig þetta væri kannski orðið fábreytni,“ segir Anna.
Hún ítrekar hins vegar það sem kemur fram í skýrslunni - að styrkir til bókaútgáfu séu ekki glatað fé og þeir séu ekki góðgerðarstarfsemi. „Sá peningur sem er settur í þessa styrki skilar sér aftur í ríkiskassann þannig að fjárfesting í menningu og í bók menntum er verðmætaskapandi.“
Hið séríslenska jólabókaflóð í hættu
Önnur breyting sem hefur orðið síðan 2018 er innreið Storytel og vöxtur hljóðbókamarkaðarins. Í könnun sem Miðstöð íslenskra bókmennta lét gera kom fram að 37% kvenna hlusta á hljóðbók vikulega og 19% karla.
Í skýrslunni vekur Hákon máls á því að þetta geti haft keðjuverkandi afleiðingar, ekki síst þegar kemur að jólabókaflóðinu.
Í dag stendur salan fyrir jólin undir um 40% tekna forlaganna. Hún byggist á því að bókin sé vara sem hægt er að gefa í jólagjöf, ekki þjónusta sem greidd er í áskrift.
Anna Lea segir markaðinn hafa breyst að mörgu leyti. „Kiljum hefur kannski farið fækkandi þýðingum í einhverjum tilvikum en það er að aukast útgáfa barnabóka. Matreiðslubækur er svo nánast að hverfa, reyndar. Kannski stærsta breytingin er hversu stórar hljóðbækurnar eru orðnar, sérstaklega kannski hér á landi.“ segir hún.
„Við sjáum teikn á lofti um að bóklestur samt sem áður sé að aukast aftur, aðeins. Eftir svona mörg ár í röð sem hann hefur farið minnkandi.“
Hljóðbókaflóð að vori?
Eitt úrbótatækifærið sem bent er á í skýrslunni snýr að hljóðbókum. Þar er mælt með því að setja mörk á útgáfu hljóðbóka þar til 6-9 mánuðum eftir prentútgáfu bókar til að efla sölu á prentuðum bókum.
Þegar er kominn vísir að slíku hljóðbókaflóði á vori. Anna Lea bendir þó á að bókmenntir, hvort sem er á upptöku eða pappír, sé ólík streymisveitum í sjónvarpi. Það er önnur upplifun að hlusta á hljóðbók en lesa pappírseintakið. „Þegar þú lest bók og heldur á henni í höndunum, ertu ekki að þvo þvottinn, að viðra hundinn í leiðinni. Þá er þetta bara stund sem þú átt.“
Rithöfundar eru láglaunastétt
Hákon bendir á að styðja þurfi við frumsköpun. Breytingar í bókaútgáfu og sölu síðustu ár hafi haft áhrif á tekjur rithöfunda. „Það er frábær árangur sem einstaka rithöfundar hafa náð í útlöndum en rithöfundar heilt yfir eru láglaunastétt,“ segir hann.
„Það eru 800 félagar í Rithöfundasambandinu, það eru held ég 2-3% þeirra sem fá listamannalaun heilt ár,“ bætir hann við. „Það er nú ekki meira en það.“
Fæstir fá úthlutað starfslaunum yfir allt árið. Greiðslurnar fyrir 2025 voru 560.000 á mánuði og það eru verktakagreiðslur. Það þýðir um 350 þúsund krónur í vasann og því fylgja kvaðir um að ekki má vinna meira en 33% starfshlutfall til að drýgja tekjurnar.
Hákon bendir jafnframt á að samkvæmt hugmyndinni um klasa sem hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta varðandi virðiskeðjuna, þá borgi sig fyrir alla í greininni að hugsa um þá sem sjá um frumsköpunina, það er rithöfundana.
„Þeim mun framar í virðiskeðjunni sem þú ert, því mun líklegra að það muni skila sér í framtíðinni. Fyrir utan hvað þetta er, og það er síðan önnur umræða, mikilvægi þess að við höldum áfram að tala íslensku.“
Virðisaukaskattur á bækur mismunandi á Norðurlöndum
Á grundvelli greiningarinnar hefur Hákon tekið saman tillögur um það sem vert væri að skoða ef markmiðið er að efla opinberan stuðning. Eitt sem lengi hefur verið í umræðunni er virðisaukaskattur af bókum. Í dag er hann 11%. Hákon gaumgæfði hvernig honum er háttað í löndunum í kringum okkur.
„Virðisaukaskattur af bóksölu skilar íslenska ríkinu 900 milljónum á ári sem eru miklir peningar. Það er enginn virðisaukaskattur á bókum í Noregi og Danir eru núna með frumvarp í Folketinget sem gerir ráð fyrir niðurfellingu á 25% virðisaukaskatti,“ nefnir hann sem dæmi. „Ef menn eru að hugsa um þessa aðgerð þá er kosturinn sá að það mun nýtast á öllu vistkerfinu,“ bætir hann við.
Fastverð óráðlegt en stéttarfélög gætu styrkt bókakaup til heilsuræktar
Það er ýmislegt fleira sem mætti hugsa sér. Í skýrslunni skoðar Hákon aðra kosti sem tíðkast annars staðar, svo sem fast verð á bókum. Samkvæmt hans greiningu myndi sú lausn lítt stoða og í raun töpuðu allir á slíku fyrirkomulagi. Anna Lea segir vel hægt að vera skapandi í lausnum og finna skemmtilegar leiðir til að efla útgáfu.
Í Færeyjum gefa lífeyrissjóðirnir öllum börnum að 18 ára aldri átta bækur sem þau fá sendar heim. „Svo er ég í stéttarfélagi og þar get ég sótt um líkamsræktarstyrk. Ég væri alveg til í að sjá að þú gæti sótt um svona hugrækt eða bókastyrk.“ segir Anna Lea að lokum.