Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt, en alls voru 72 mál skráð í kerfi hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.Alls voru tíu ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.Einn ökumaður var stöðvaður eftir að hafa ekið á 126 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Við afskipti lögreglu blés hann einnig í áfengismæli en mældist undir handtökumörkum. Honum var engu að síður gert að hætta akstri.
Ók á 126 kílómetra hraða eftir að hafa neytt áfengis