Afleiðingar óveðursins 14. október, þegar mikið tjón varð á Siglufirði, voru ræddar á fundi Siglfirðinga og Veðurstofunnar. Veðurstofan kynnti hvað spár og mælingar sýndu og hverjar afleiðingarnar hefðu verið í bæjarfélaginu. Markmiðið var meðal annars að greina hvort viðvörunarstig og orðalag á viðvörun hefði lýst nægilega vel hættunni sem skapaðist.
Hafdís Huld Björnsdóttir, bæjarstjóri í Fjallabyggð, segir að aðstæðurnar sem sköpuðust hafi ekki komið Siglfirðingum sérstaklega á óvart.
„Það sem við hefðum viljað sjá betur eru þessi samskipti áður. Fá nákvæmar spár og geta undirbúið okkur með viðeigandi hætti. Það er fullt af hugmyndum hvernig við viljum bæta þetta en eins og með marga hluti snýst þetta um kostnað og hvort ávinningur af mælingunum og betri veðurspám sé meiri en kostnaðurinn.“
Nýr vindmælir mun ekki bæta spár
Ein af mögulegum úrbótum sem veðurstofan leggur til er annar vindmælir á Siglufirði. Hann muni þó líklega ekki bæta spár og sé ekki innan fjármögnunarramma Veðurstofunnar.
„Það að nýr veðurmælir sé settur upp hvort það sé í raun og vera að ná að fanga þessar aðstæður sem sköpuðust. Það er kannski það sem að við skoðum, munum við ná að fanga það eða ekki. Það er þá eitthvað sem við þurfum að blanda saman: sögunni, reynslunni og þeim mælingum sem eru til staðar,“ segir Hafdís Huld.
Ekki hefur verið ákveðið að setja upp nýjan veðurmæli eða breyta vinnulagi Veðurstofunnar en Hafdís er ánægð með þá vinnu sem stendur yfir.
„Við erum alla vega ánægð með samtalið við Veðurstofuna og að við séum að finna lausnir saman.“