„Hæð fyrir austan land og lágur þrýstingur suðvestan og vestan við landið munu valda stífri suðlægri átt hjá okkur næstu daga. Búast má við úrkomusömu veðri, en lítil eða engin úrkoma norðan- og norðaustanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Í kvöld eykst vindur og búast má við suðaustan átt, 15 til 23 metrum á sekúndu, með slyddu og síðar rigningu. Í nótt og framan af morgundegi verður áfram suðaustan hvassviðri eða stormur með rigningu, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi og hlýnar í veðri.
Vindhviður gætu farið yfir 35 metra á sekúndu við fjöll, einkum nærri Eyjafjöllum, á Reykjanesi og við Esju. Gular viðvaranir eru í gildi á Suður- og Vesturlandi frá klukkan 20 í kvöld, laugardag 21. nóvember, til klukkan 18 annað kvöld, sunnudag, 22. nóvember.
Spár gera ráð fyrir að seinnipartinn muni draga úr vindi og það lægi svo um munar á vestanverðu landinu. Áfram megi þó búast við úrkomu.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á morgun: Suðaustan og sunnan 13-20 m/s og rigning, en þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi. Dregur úr vindi á vestanverðu landinu eftir hádegi. Hiti 4 til 10 stig.
Á mánudag: Vaxandi suðaustanátt, víða 10-15 síðdegis. Rigning, en lengst af þurrt norðanlands. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag: Suðlæg átt 8-13. Rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum, slydda vestanlands, en þurrt á Norðurlandi. Kólnar heldur.