Ekkert hefur spurst til hans síðan á þriðjudaginn 10. nóvember síðastliðinn.
Nikulás er rúmir 170 sentimetrar á hæð og þéttvaxinn. Talið er líklegt að hann haldi til í Reykjavík, einhversstaðar í Hvalfirði eða á Akranesi. Þegar hann fór að heiman var hann klæddur í grænan þunnan sumarjakka, gallabuxur og strigaskó með bláan bakpoka.
„Þeir sem hafa vitneskju um hvar Nikulás gæti hafa haldið sig undanfarna daga eða hvar hann er staddur, vinsamlega hringið í 112 eða sendið tölvupóst á 0776@lrh.is“