Reiknað er með að hviður nái allt að 35 metrum á sekúndu undir fjöllum sunnan- og vestantil á landinu í kvöld og þangað til á morgun. Gular viðvaranir taka gildi síðdegis.
Íbúar við Silfursmára í Kópavogi óttast að fyrirhuguð háhýsi skerði útsýni og breyti forsendum íbúðakaupa þeirra. Áformin gera ráð fyrir allt að tíu hæða húsum. Formaður skipulags- og umhverfisráðs segir hæðir og byggingarmagn enn óákveðin og að tekið verði tillit til athugasemda íbúa.
Þá fjöllum við um fjölsótta bókahátíð í Hörpu og segjum frá því hvaða áhrif gervigreind hefur haft á byltur fólks á hjúkrunarheimilum.