Tveir aðrir hafa verið handteknir vegna málsins en þeir hafa ekki verið ákærðir.
Yfirvöld í Danmörku hafa haldið spilunum varðandi málið þétt upp að sér en tilvist þess var fyrst opinberuð í dómsal í Danmörku nú í morgun, þegar mennirnir voru færðir fyrir dómara.
Báðir lýstu yfir sakleysi sínu, samkvæmt frétt danska ríkisútvarpsins.
Blaðamenn fengu ekki aðgang að málaferlunum í morgun og eru upplýsingar um málið því enn takmarkaðar.
Reynt að myrða sama mann í Póllandi skömmu áður
Yfirvöld í Póllandi sögðu frá því í sumar að þarlendur maður hefði verið handtekinn vegna gruns um að hann ætlaði að myrða Kyivstoner fyrir rússneska leyniþjónustu. Rapparinn, sem heitir í rauninni Albert Vasiliev, er einnig með bandarískan ríkisborgararétt.
Sjá einnig: Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá
Fyrir innrásina í Úkraínu 2022 bjó hann og vann í Rússlandi. Öryggisþjónusta Rússlands, FSB (arftaki KGB), hefur sakað Kyivstoner um að hafa komið að drónaárás á rússneskt hergagnafyrirtæki í Moskvu. Rússar hafa haldið því fram að rapparinn hafi spilað rullu í því að smygla drónum sem notaðir voru til árásarinnar inn í Rússland, frá Slóvakíu og í gegnum Pólland og Belarús.
Frá febrúar 2022 hafa Rússar ítrekað verið sakaðir um skemmdarverk og ýmis konar árásir í Evrópu. Meðal annars má nefna launmorð, íkveikjur og jafnvel sprengjuárásir. Í mörgum tilfellum hafa útsendarar rússneskra leyniþjónusta haft samband við menn í þeim löndum þar sem þeir vilja að þessi verk séu framin og er gjarnan um smáglæpamenn að ræða.